Fréttablaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 48
„Það verður fjör hjá mér þessa
helgi,“ segir Pamela De Sensi tón-
listarkennari, sem er listrænn
stjórnandi barnatónleika í Saln-
um á morgun. Tónleikarnir bera
titilinn „Töfrahurð“ og ástæðuna
segir Pamela vera þá að börn sem
séu beinir þátttakendur í tónleik-
unum, gangi gegnum töfrahurð á
sviðinu og breytist í litla Mozarta
og Händela. Þau fái í framhaldinu
að stjórna heilli sinfóníuhljóm-
sveit eða hjálpa til við flutninginn
á annan hátt. „Á barokktímanum,
þegar Händel var uppi, stjórnaði
hljómsveitarstjóri ekki með priki
heldur staf og okkar litli Händel
mun gera það líka,“ segir hún bros-
andi. Þarna er greinilega eitthvað
spennandi á ferðinni.
Pamela mælir með því að börn
komi klædd í diskó- og dansföt á
hátíðina ef þau geta. Fjöllistamenn
frá Götuleikhúsinu ætla að efna til
leikja og sýna ýmsar listir áður en
aðaltónleikarnir hefjast og and-
litsmálarar bjóða upp á ókeypis
málun.
Klassíska diskótekið hefst klukk-
an eitt. Þá kynnir Sigurþór Heim-
isson leikari sem í þessu samhengi
nefnist DJ Sóri, klassíska danstón-
list eftir Händel, Mozart, Bizet og
Strauss. Áheyrendur fá að koma
upp á svið og kynnast takti, hljóð-
færum og nótnabókum hjá Sinfón-
íuhljómsveit áhugamanna sem er
hljómsveit hússins þessa dagstund.
Sérstakur dansherra á tónleikun-
um verður stórtenórinn Jóhann
Friðgeir Valdimarsson, dansarar
úr Listdansskóla Íslands leiða börn
í dansinn og litlir prinsar og prins-
essur svífa um undir valstakti.
Töfrahurð er fimmtu tónleik-
arnir í sérstakri barnatónleika-
röð Salarins sem Pamela De Sensi
stjórnar. Áður hefur hún staðið
fyrir Karnivali dýranna, Sögum
draugsins Tíbrí sem fluttar voru á
hrekkjavöku og Hljóðunum í frum-
skóginum þar sem áherslan var á
slagverksleik. „Hugmyndin með
þessari tónleikaröð er sú að börn-
in fái að taka þátt í flutningi tón-
listar, finna taktinn og læra í gegn-
um leik og töfra,“ segir Pamela.
„Hér verður haldið áfram á þeirri
braut.“ gun@frettabladid.is
Litadýrð, töfrar og tónar
Pamela De Sensi tónlistarkennari ætlar að stjórna fjölskylduhátíð í Salnum á morgun, sunnudag, sem
hefst með götuleikhússtemningu í anddyrinu klukkan hálf eitt og síðan breytist Salurinn í diskótek.
„Hugmyndin með þessari tónleikaröð er sú að börnin fái að taka þátt í flutningi
tónlistar, finna taktinn og læra í gegnum leik og töfra,“ segir Pamela De Sensi tónlist-
arkennari. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLILítill Händel heilsar hljómsveitarstjóranum Oliver Kentish. MYND/STEINGRÍMUR ÞÓRHALLSSON
MÖMMUDAGAR eru í Bláa lóninu um
helgina. Þá fá allar mæður í fylgd með börn-
um frítt í lónið. Nánar á www.bluelagoon.is.
Veitingastjóri:
Eldhúsið er staðsett miðsvæðis í húsinu og
tengist þremur góðum sölum sem henta vel
til veitinga- og veisluhalda. Hægt er að
halda tvær veislur samtímis þar sem matar-
gestir geta verið um 80 í minni sal og 220 í
þeim stærri. Eldhúsið er mjög vel tækjum
búið en í því er m.a. eldbökunarofn fyrir
pizzubakstur.
Við leitum að aðila/aðilum til samstarfs sem
hafa eftirfarandi kosti/eiginleika:
veisluhalda.
Viðburða- og skemmtanastjóri:
lega heppilegur til ýmissa viðburða. Auðvelt er
að skipta húsinu upp í misstór rými en í heild
Aðstaðan hentar mjög vel fyrir hópa með bæði
matarveislu og skemmtun.
Við leitum að aðila/aðilum til samstarfs sem
hafa eftirfarandi kosti/eiginleika:
í hverju horni.
Allar nánari upplýsingar gefur Ingólfur Árnason.
897 1403 ingolfur@skaginn.is
www.gamlakaupfelagid.is
fyrir unga sem aldna og fylgir keppendum jafnan
fjöldi aðstandenda.
þar sem fjöldi listamanna munu koma fram og
Óskað er eftir samstarfsaðilum til að koma að rekstri Gamla Kaupfélagsins
SVELTUR SITJANDI KRÁKA EN FLJÚGANDI FÆR