Fréttablaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 59

Fréttablaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 59
starfsmönnum til að vinna að verkfræðilegum atriðum varðandi þann vélbúnað sem nota þarf við t.d. aðskilnað fitu úr fiski- eða kjötúrgangi. Fjöldi starfa: 2 IR34 Flugvélatengdur iðnaður á Íslandi Nýsköpunarmiðstöð Íslands er að styðja frumkvöðla sem stefna að því að hefja hér á landi iðnrekstur sem tengdur er flugiðnaðinum. Er um að ræða tvö megin verkefni, annars vegar flugvélamálun og hins vegar innréttingasmíði. Fjöldi starfa: 2 IR35 Rafbraut: Leifstöð – Reykjavík Nýsköpunarmiðstöð Íslands er að vinna ásamt aðilum á Reykjanesi við að endurskoða áætlanir um raflest sem tengi Leifstöð og gengi jafnframt hlutverki hryggjarsúlu í samgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnið felst í að safna nýjustu upplýsingum og uppfæra eldri niðurstöður. Fjöldi starfa: 2 IR36 Áhrif gosösku á flugvélahreyfla Nýsköpunarmiðstöð Íslands og fyrirrennarar hennar hafa safnað mikilli þekkingu á sviði málmþreytu, tæringar og efjufræða. Með þessu verkefni verða lögð drög að samhæfingu þessarar þekkingar til þess að beita á hið mikilvæga svið áhrifa gosösku á túrbínur flugvéla. Fjöldi starfa: 2 IR37 Vestfirðir. Hin fögru fimm – fyrstu skrefin Vinna heildstætt yfirlit yfir stöðu húsa í Ísafjarðarbæ sem byggð eru fyrir 1918. Felst í því að mynda húsin, hafa samband við eigendur og meta ástand og þörf fyrir utanhúsviðhald. Fjöldi starfa: 1 IR38 Roð og rekaviður. Stefnumót handverksfólks og hönnuða á Vestfjörðum Um er að ræða undirbúning fyrir stefnumótið og aðstoð við að móta verkefnið og gera sem best úr garði þannig að afrakstur verkefnisins verði söluvænt handverk. Verkefnið þarf listnema, vöruhönnunarnema og viðskiptanema í 2 mánuði. Fjöldi starfa: 1 IR39 Mælingar á raka í útveggjum húsa og rakaviðnámsstuðla í yfirborðshúðum, sem tilbúnir eru til tilrauna - Fjöldi starfa: 3 IR40 Uppfærsla upplýsinga og skjalstjórnun Gagna- og uppfærsluvinna við upplýsingaveitu um stofnun og rekstur fyrirtækja á heimasíðu Impru Nýsköpunarmiðstöðvar. Skönnun og skjölun á rafrænum gögnum. Fjöldi starfa: 2 IR41 Rannsóknir og aðstoð Nýsköpunarmiðstöð Íslands óskar eftir þremur stöðugildum með það í huga að aðstoða við rannsóknir. Fjöldi starfa: 3 IR42 Matvælamiðstöð Austurlands Þróunarstarf þjónustu Egilsstaða. Þróa og vinna að skilgreiningu á þjónustu Matvælamiðstöðvar Austurlands. Fjöldi starfa: 2 IR43 Aðstoð við þróun kennsluefnis í stafrænni framleiðslutækni Vestmannaeyjar-verkefnið gengur út á aðstoð við gerð kennsluefnis og miðlun þess í stafrænni framleiðslutækni. Verkefnið gengur út á þróun kennsluefnis fyrir notkun á tölvustýrðum laserskurðartækjum, fræsivélum, vinylskerum og notkun á ýmsum opnum hönnunartólum fyrir aðila sem hafa lítinn bakgrunn í notkun slíks búnaðar. Fjöldi starfa: 2 IR44 Vöktun flúors og áburðarefna (Ca, Mg, K, P, S) í ösku, jarðvegi, plöntum og drykkjarvatni búpenings á öskufallssvæðinu undir Eyjafjöllum sumarið 2010 Vakta magn flúors í vatni og fóðri í túnum og vatnsbólum undir Eyjafjöllum. Fylgjast með útskolun úr öskuþekjunni og jarðveginum. Greining áburðarefnis í sýnum til að fylgjast með áhrifum öskunnar á styrk næringarefna. Fjöldi starfa: 1 IR45 Sérfræðingur í markaðsrannsóknum Verkefnið felst í markaðsrannsóknum vegna erlendar markaðssetningar nýrrar tækni fyrir blóma- og matjurtarækt í gróðurhúsum. Fjöldi starfa: 1 IR46 A/B/C Markaðsstarf, tækniþjónusta og þróun A) Sölu- og markaðsstarf á erlenda markaði. Undirbúningur og framkvæmd beinnar markaðssetningar erlendis. Úthringingar til núverandi og væntanlegra viðskiptavina erlendis. Markaðskannanir vegna markaðssóknar erlendis. Fjöldi starfa: 1 B ) Ritstjóri handbókar fyrir erlenda viðskiptavini Umsjón, ritstjórn og frágangur handbókar vegna innleiðingar nýrrar tækni á erlenda markaði. Fjöldi starfa: 1 C ) Tæknimenn Verkefnið felst í þjónustu í nánum samskiptum við viðskiptavini vegna eftirfylgni við markaðssókn erlendis. Þátttaka í áframhaldandi þróun á tæknibúnaði hjá nýsköpunarfyrirtæki. Fjöldi starfa: 2 IR47 Markaðssetning erlendis Verkefnið felst í markaðsrannsóknum, vinnu við gagnagrunn og markaðssetningu erlendis á heilbrigðistækni. Fjöldi starfa: 2 IR48 A/B Námsmenn í efnaverkfræði eða efnafræði A ) Rannsóknir og þróunarstarf á Háhitaeinangrun úr Kalsíum Silikati til notkunar í m.a. rafgreiningarker álvera og sem einangrun háhitagufulagna í jarðhitaverum. B ) Vinna við þróun lífvirkra beingræðsluefna. Verkefnið sem snýst um nýtingu á lífvirkni kítinafleiða til beinviðgerða og endurnýjunar beins. Fjöldi starfa: 2 IR49 Rannsóknir á þýskum útboðsmarkaði Verkefnið felst í rannsókn á þýskum útboðsmarkaði, mögulegum útboðum þar, útboðsreglum og útboðsferlum, sem íslenskir verktakar gætu tengst í því skyni að efna til verkefna og skapa sér og öðrum atvinnu. Fjöldi starfa: 1 IR50 Aðstoð við frumkvöðla og fyrirtæki á frumkvöðlasetrum Nýsköpunarmiðstöðvar Til að mæta erfiðu atvinnuástandi og til að örva nýsköpun í landinu hefur Nýsköpunarmiðstöð Íslands opnað nokkur ný frumkvöðlasetur. Leitað er eftir tveimur viðskiptamenntuðum starfsmönnum til að aðstoða frumkvöðla og fyrirtæki á setrunum við að vinna að framgangi viðskiptahugmynda sinna. Fjöldi starfa: 2 IR51 Markaðs- og kynningarstarf Verkefnið felst í markaðs- og kynningarstarfi erlendis, fyrir nýsköpunarfyrirtæki á sviði heilbrigðistækni. Megináhersla er á markaðsátak í Þýskalandi og Danmörku. Fjöldi starfa: 1 IR52 Þróunarverkefni á sviði upptöku og greiningu heilarits í læknisfræðilegum tilgangi Markmið verkefnisins er að þróa hugbúnað fyrir upptöku og greiningu heilarits í læknisfræðilegum tilgangi sem byggt er upp til þess að nýta kosti nútíma netvæðingar til þess að auka sveigjanleika kerfisins. Fjöldi starfa: 2 IR53 Bráðameðferð við slagæðablæðingum úr legi Um er að ræða rannsóknir og þróun á lyfjameðferð við slagæðablæðingum úr legi. Markmið verkefnisins er að setja upp aðferð til að skoða viðbragðshraða og samdráttarkraft legvöðvans í svæfðum dýrum. Fjöldi starfa: 2 IR54 Gagnaúrvinnsla í nýsköpunarverkefni á sviði heilbrigðistækni Verkefnið, sem unnið er í samstarfi við sjúkrastofnanir felst í prófunum á ýmsum nýjum greiningaraðferðum. Verkefnið felur einnig í sér prófanir á greiningarkerfum við mismunandi aðstæður og greiningu á áreiðanleika. Verkefnið felur í sér mikla sérstöðu sem getur verið mjög áhugaverð fyrir nema á tilgreindum sviðum. Fjöldi starfa: 2 IR55 Þróunarverkefni á sviði lyfjafræði Leitað er að aðstoðarmönnum í verkefni sem felur í sér þróun prótínlyfs gegn kransæðasjúdómi og kransæðastíflu og gegn öðrum skammvinnum eða þrálátum bólgusjúkdómum. Fjöldi starfa: 2 IR56 Markaðssetning erlendis á sviði heilbrigðistækni Verkefnið er á sviði upplýsingaleitar á Norðurlöndum vegna markaðssetningar, vinnsla kynningarefnis, samskipti við dreifingarfyrirtæki á Norðurlöndum o.fl. Fjöldi starfa: 1 IR57 Vinna á rannsóknarstofu Óskað er eftir nema til að vinna á rannsóknarstofu við þróun vöru á sviði heilsutækni. Fjöldi starfa: 1 IR58 Verkefni á sviði lyfjaþróunar Verkefnið felst í framhaldsþróun á stílum unnum úr lýsisafurðum. Klínískar rannsóknir á lyfinu eru að fara í gang. Fjöldi starfa: 1 IR59 Skimun fyrir þáttum sem auka virkni krabbameinslyfja Unnið er að framkvæmd lyfjanæmnisprófa á lifandi krabbameinsfrumum sjúklinga sem undirgangast eiga krabbameinslyfjameðferð í því skyni að sérsníða lyfjameðferð að hverjum sjúklingi fyrir sig. Fjöldi starfa: 2 IR60 Markaðssetning fyrir sérvirk ensím Verkefni á sviði kynningar- og markaðsstarfs fyrir sérvirk ensím á erlendum markaði. Fjöldi starfa: 1 IR61 Þróunarverkefni á sviði orkulíftækni Verkefnið snýst um notkun orkulíftækni til að framleiða prótínmjöl í fóður úr vetni, brennisteini og jarðvarma. Um er að ræða notkunartilraunir á afurðum. Fjöldi starfa: 1 IR62 Markaðssetning á netinu Um er að ræða verkefni á sviði netmarkaðssetningar á þjónustu á Norðurlöndunum. Fjöldi starfa: 1 IR63 Markaðssókn í Evrópu, Ameríku, Kóreu og Ástralíu Um er að ræða verkefni á sviði markaðssetningar á íslenskri útgáfu, skemmti- og fræðsluefni og tónlist. Fjöldi starfa: 1 IR64 Viðskiptaþróun og erlend markaðssetning Um er að ræða viðskiptaþróun og markaðssetningu erlendis á nýrri tæknilausn. Vinna þarf rannsóknir á erlendum mörkuðum og taka þátt í aðlögun vörunnar að þörfum markaða. Fjöldi starfa: 1 IR65 Markaðsetning erlendis Um er að ræða viðskiptaþróun og markaðssetningu erlendis á nýrri tæknilausn. Vinna þarf rannsóknir á erlendum mörkuðum og taka þátt í aðlögun vörunnar að þörfum markaða. Fjöldi starfa: 1 IR66 Markaðssetning á veflausnum erlendis á netinu Verkefnið felst í markaðssetningu erlendis, netmarkaðssetningu og uppbyggingu viðskiptatengsla. Fjöldi starfa: 1 IR67 Upplýsingatækni Verkefni á sviði upplýsingatækni sem felur í sér að þróa hugbúnað og aðferðafræði til þess að auka tengsl og virkni almennings í ferli opinberra ákvarðana. Unnið verður með þróunarfyrirtæki á sviðinu. Fjöldi starfa: 3 ORKUSTOFNUN IR68 Opinbert eftirlit með afkastagetu lághitasvæða á Íslandi Markmið verkefnisins er að meta hvort afkastageta lághitasvæða á Íslandi geti annað eftirspurn eftir heitu vatni til ársins 2050. Verkefnið felst í að leggja til leiðir til þess að tryggja langtímanýtingu jarðhitakerfa og greina með hvaða hætti opinber eftirlitsaðili skuli tryggja slíka nýtingu. Fjöldi starfa: 2-3 HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTI HEYRNAR- OG TALMEINASTÖÐ HR01 Gæðahandbók – Gagnainnsláttur Safna saman og skrá alla ferla hjá stofnuninni. Margir ferlar eru til á skráðu formi en yfirfara þarf þá og samræma útlit svo úr verði heildstæð Gæðahandbók fyrir Heyrnar- og talmeinastöðina. Fjöldi starfa: 1 HEILBRIGÐISSTOFNUN AUSTURLANDS HR02 Lóðir og umhverfi Verkefnið felst í fegrun og frágang Brynhildargarðsins við starfsstöð stofnunarinnar á Egilsstöðum. Fjöldi starfa: 1 HR03 Upplýsingavinnsla Starfið fellur undir skrifstofustörf. Verkefnið felst einkum í innslætti á tölfræðilegum upplýsingum vegna skýrslugerðar en einnig í öflun gagna innan og utan stofnunar og úrvinnslu þeirra. Verkefnið miðar að uppbyggingu öflugs gagnagrunns til upplýsingagjafar og samanburðar á starfsemistölum. Fjöldi starfa: 1 SJÚKRATRYGGINGAR ÍSLANDS HR04 Starf við skönnun pappírsgagna til að koma þeim á rafrænt form Skönnun á pappírsgögnum vegna nýlegra og eldri slysamála sem eru í gangi og skoða þarf margoft á meðan þau eru í gangi. Fjöldi starfa: 3-4 HEILBRIGÐISSTOFNUN VESTURLANDS HR05 Þjónustukönnun á starfssvæði nýrrar stofnunar Undirbúa og keyra viðhorfskönnun um heilbrigðisþjónustu á Vesturlandi. Byggt verður á spurningalista Landlæknisembætti sem er aðgengilegur í þessu sambandi. Fjöldi starfa: 1-2 HR06 Uppsetning rafræns birgða- og innkaupakerfis Uppsetning innkaupakerfis sem styðst við Oracle gagnagrunn, undirbúningur, uppsetning og innsláttur gagna sem aðgengilegur verður stjórnendum á öllum átta starfsstöðvum stofnunarinnar. Leiðsögn hefur innkaupastjóri HVE. Hæfniskröfur: Ungt háskólafólk í viðskiptafræði, tölvufræði o.þ.h., fólk sem lokið hefur framhaldsskólanámi. Fjöldi starfa: 2 LYFJASTOFNUN HR07 Markaðseftirlit með lyfjum Hugmyndin er að gera n.k. sérlyfjaeftirlit í lyfjaheildsölum, þ.e. fara þangað með umbúðasýnishornasafn Lyfjastofnunar og skoða ákveðið hlutfall pakkninga, eða öll lyf frá ákveðnum fyrirtækjum, eða t.d. öll dýralyf og kanna hvort samræmi sé milli þess sem við höfum samþykkt og þess sem er á markaðnum. Fjöldi starfa: 1 HR08 Markaðseftirlit með lyfjum Skoða hvort áletranir á umbúðum séu réttar og fara þá fram á breytingar ef svo er ekki. Fjöldi starfa: 1 HR09 Skoðun undanþáguheimilda Skoðun á undanþáguheimildum (undanþága frá íslenskum áletrunum o.s.frv.) aftur í tímann og athuga hvort þær hafa runnið úr gildi, án þess að fyrirtækin hafi leyst úr málum, þ.e. hvort lyf er á markaði á grundvelli útrunninna undanþáguheimilda. Fjöldi starfa: 1 HR10 Vinna við úrvinnsluverkefni Ýmis úrvinnsluverkefni á eftirlitssviði Fjöldi starfa: 1 HR11 Laganemi við endurskoðun lyfjalaga Endurskoðun lyfjalaga og þeirra reglugerða sem tengjast Lyfjastofnun. Fjöldi starfa: 1 HEILSUGÆSLA HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS HR12 Miðlæg sjúkraskrárgeymsla – Röðun sjúkraskráa í kerfi Um er að ræða átaksverkefni sem lýtur að flokkun og röðun sjúkraskráa og að koma framtíðarskipulagi á gögn sem geymd eru miðlægt, s.s. sjúkraskrár frá sjúklingum lækna sem nú eru látnir og ennfremur allar sjúkraskrár látinna einstaklinga hjá þeim heilsugæslustöðvum sem heyra undir stofnunina. Fjöldi starfa: 2 LANDLÆKNIR HR121 Skrá um 220 bréf Bjarna Pálssonar, fyrsta landlæknisins 1760-1779 Þar má m.a. finna lýsingar af sjúklingum og aðstæðum þeirra og auk annars samtíma fróðleiks. Þessi bréf eru aðgengileg í einni bók í Þjóðskjalasafninu og eru skrifuð með s.k. fljótaskrift. Fjöldi starfa: 1 HR122 Stafrófskver ICD-10 Yfirferð gagna úr rafrænni samkeyrslu orðasafna – Stafrófskver ICD-10 er til rafrænt á ensku hjá embættinu og til stendur að keyra það rafrænt saman við íðorðasöfn og yfirfara skrár sem koma út úr rafrænum samkeyrslum og undirbúa til útgáfu þann hluta sem er með einkvæmri svörun úr völdum íðorðasöfnum. Fjöldi starfa: 1-2 LANDSPÍTALINN - SKURÐLÆKNINGASVIÐ HR13 Leiðrétting á vöruskrám skurðstofanna Vöruskrá LSH sem er í Oracle kerfinu er kerfi sem Fjársýsla ríkisins notar fyrir allar sínar stofnanir. Komið hefur í ljós að vöruskrá skurðstofanna hefur ekki verið uppfærð sem skyldi og einnig eru um margar rangfærslur að ræða sem nauðsynlegt er að leiðrétta. Fjöldi starfa: 1 HR14 Leiðrétting á bakkablöðum og leiðrétting á uppskriftum fyrir aðgerðir Í hverjum aðgerðarbakka sem notaður er í aðgerð fylgir svokallað bakkablað með innihaldslýsingu á verkfærum bakkans. Verið er að flytja þessar upplýsingar í annað tölvukerfi og í framhaldi af því er nauðsynlegt að yfirfara og leiðrétta þessi blöð. Hverri aðgerð fylgir uppskrift af þeim búnaði og verkfærum sem á að nota. Þessar upplýsingar liggja inn í tölvukerfi sem heitir Orbit. Vegna mikilla breytinga í vöruskrá Oracle sem tengist Orbit er nauðsynlegt að uppfæra og yfirfara uppskriftirnar. Fjöldi starfa: 1 LANDSPÍTALINN HR141 Kortlagning á stöðu áhættumats starfa á öllum deildum/starfseiningum spítalans Vinna drög að fræðsluherferð vegna áhættumats starfa sem innleidd verður í haust. Fjöldi starfa: 3 HR142 Vinna við að sameina ofbeldisskráningu innan tveggja atvikaskráningakerfa Landspítala Breyting á skráningablaði. Forritun kerfa, umsóknir um leyfi s.s. persónuvernd. Prófun kerfa. Fjöldi starfa: 3 HR143 Úrvinnsla, öflun og framsetning (á vef) tölulegra upplýsinga Jafnréttisnefnd Landspítala hefur aflað tölulegra upplýsinga er varpa ljósi á stöðu starfsmanna út frá kyni. Nefndin hefur ekki bolmagn til að vinna úr tölunum og setja þær fram á frambærilegan og aðgengilegan hátt á vef spítalans eins og æskilegt er. Fjöldi starfa: 1 SJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI HR15 Lagfæring á göngustígum í skóginum vestan við Kristnesspítala Þar þarf að hreinsa órækt og klippa greinar. Fjöldi starfa: 1 HR16 Hreinsun úr geymslum Hreinsun úr geymslum og útbúa aðstöðu fyrir fornmuni, ásamt flutningi, pökkun og skráningu þeirra. Fjöldi starfa: 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.