Fréttablaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 102

Fréttablaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 102
62 8. maí 2010 LAUGARDAGUR folk@frettabladid.is > LANGAR Í BARN Söngkonan Pink er byrjuð aftur með fyrrum eiginmanni sínum og er nú farin að huga að barneignum. „Við erum ekki að reyna að eign- ast barn þessa stundina. En ég hlakka mikið til að byrja að reyna,“ var haft eftir söngkonunni. Tímaritið Art Newspaper greinir frá því að baróness- an Francesca von Habsburg ætli að draga úr umsvifum sínum í íslensku listalífi. Listamiðstöð í Kaaber-hús- inu er meðal þess sem sett verður í salt. Art Newspaper slær því upp í grein eftir blaðamanninn Clemens Bomsdorf að barónessan Frances- ca von Habsburg ætli að draga úr starfi sínu á Íslandi eftir að hafa verið áberandi í íslensku lista- lífi. Francesca hefur stutt fjölda íslenskra listamanna undanfarin ár og lagt þeim lið en meðal þess sem barónessan hyggst setja í salt er fyrirhuguð listamiðstöð í gamla Kaaber-húsinu við Sætún. Hún átti að hýsa Nýlistasafnið, dán- arbú Dieter Roth og stóran hluta af umfangsmiklu listaverkasafni barónessunnar. Birta Guðjónsdóttir, safnstjóri Nýlistasafnsins, segir þetta vera „ekki-frétt“ hjá Art Newspaper. „Þessi listamiðstöð náði aldrei lengra en að vera hugmynd sem var kastað fram. Menn fóru ef til vill aðeins fram úr sér í umræðu og umfjöllun um þetta mál,“ segir Birta. Barónessan sagði í viðtali við Morgunblaðið fyrir rúmu ári að listamiðstöðin væri nauðsynleg í ljósi bankahrunsins. Von Habs- burg seldi síðan þrjátíu listaverk í sinni eigu fyrir meira en hundrað milljónir króna á uppboði í Lond- on og sagði í umræddu viðtali að þann pening ætti að nota til að leggja þessu verkefni lið. „Ég veit að sem stendur hefur enginn á Íslandi fé til að setja í stofnun sem þessa, og þess vegna ákvað ég að selja þessi verk úr safninu mínu, safna fé og setja verkefn- ið á flot. Þetta verður að gerast NÚNA, í þessum aðstæðum, á þessum tíma,“ sagði Habsburg við Morgunblaðið. Birta segir engin samskipti hafa átt sér stað við barónessuna frá þessum tíma. Og þau hafi ekkert séð af þessum peningum sem bar- ónessan lýsti yfir að skyldi varið til safnsins og uppbyggingu þess. „Og við áttum aldrei von á því að þess- ir peningar myndu skila sér beint til Nýlistasafnsins. Ég veit ekkert hvað gerist í framtíðinni. Þetta er hreinlega eitthvað sem við höfum ekkert pælt í undanfarið ár.“ freyrgigja@frettabladid.is LISTAMIÐSTÖÐ BARÓNESSU VIÐ SÆTÚN Í UPPNÁMI „Þetta er alveg geðveikt,“ segir tónlistarkonan Lára Rúnarsdóttir. Lag hennar I Wanna Be, sem er tekið af hennar síðustu plötu Surprise, var í gær lag dagsins á heimasíðu breska tónlist- artímaritsins Q. Mikill fjöldi tónlistar- áhugamanna skoðar síðuna á degi hverj- um og því er um mjög góða kynningu að ræða fyrir Láru. Einnig fylgdi með á síð- unni nýtt myndband Láru við lagið, sem Bretinn Henry Bateman leikstýrði. Lára þakkar árangurinn fyrst og fremst öðrum Breta, umboðsmanni sínum, Nick Knowles, sem hún réð fyrir skömmu. „Þetta er allt honum að þakka, fyrir utan hvað tónlistin er skemmtileg. Það er mér að þakka,“ segir Lára og hlær. Knowles býr hér á landi og starfaði síðast við alþjóðlegu tískuhátíðina í Reykjavík, RFF, sem var haldin í vor. „Hann kom óvart á tónleika hjá mér. Hann þekkir gítarleikarann minn og sá að þetta ætti mikla möguleika í heimalandinu hans,“ segir hún um samstarf þeirra. Lára flýgur til Bretlands í júní þar sem hún ætlar að funda með nokkrum útgáfu- fyrirtækjum í von um að komast þar á samning. Í framhaldinu vonast hún til að Surprise komi út þar í landi. Hún mun einnig hita upp fyrir söngkonuna Amy McDonald 9. júní í London og spila víðs vegar um borgina í eina viku í framhald- inu. Í júlí er síðan fyrirhuguð hringferð um Ísland. Lára hefur í nógu að snúast því næst á dagskrá er ferðalag til Dan- merkur þar sem hún tekur þátt í vinnu- búðum lagahöfunda í Árósum. Flestir höfundarnir koma frá Norðurlöndunum og standa búðirnar yfir í eina viku. - fb Lára með lag dagsins hjá Q LÁRA RÚN- ARSDÓTTIR Lára átti lag dagsins á heimasíðu breska tón- listartíma- ritsins Q. VAR BARA Á HUGMYNDASTIGI Birta Guðjónsdóttir segir fyrirhugaða listamið- stöð Francescu von Habsburg hafa eingöngu verið á hugmyndastigi og að menn hafi aðeins farið fram úr sér. Barónessan seldi verk á upp- boði í London fyrir hundrað milljónir sem áttu að nýtast í þetta verkefni en þeir peningar hafa aldrei sést. Hugmyndin var sú að listamiðstöðin ætti að rísa í Kaaber-húsinu við Sætún. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær, þá hyggst klámframleiðandinn Vivid senda frá sér klámmynd- band með sjónvarpsstjörnunni Kendru Wilkinson í aðalhlutverki. Kendra hefur hótað að kæra, en þeir sem trúa að hún vilji í raun og veru stöðva myndbandið verða sífellt færri. Kendra birtist á forsíðu tímaritsins OK! sama dag og tilkynningin um myndbandið var send til fjölmiðla. Það rennir stoðum undir þá kenningu að hún sé sjálf á bak við útgáfuna og sé að hanna atburðarás til að auka sölu myndbandsins. Samkvæmt fréttamiðlinum Radar stofn- aði Kendra fyrirtæki árið 2008 sem átti að sjá um sölu á kynlífsmyndböndum hennar og fyrrverandi kærasta hennar. Í gær kom svo fram að hún ætlaði að selja fjölmörg gróf myndbönd. Það virðist vera að rætast núna. Kendra selur kynlífs- myndböndin sjálf Á BAK VIÐ TJÖLDIN Kendra er talin vera að selja eigin kynlífsmyndbönd í laumi. Dagskráratriði óskast Hitt Húsið Sími: 411 5500 17juni@hitthusid.is www.17juni.is Auglýst er e ir skemm - og sýningaratriðum fyrir þjóðhá ðarskemmtun í Reykjavík. Dagskráin fer fram í miðborg Reykjavíkur og stendur hún frá morgni l kvölds. Gert er ráð fyrir barna og ölskylduskemmtunum á sviðum, tónleikum, leiktækjum og ýmsum sýningum og götuuppákomum. Hægt er að sækja um fl utning atriða, uppákomur og viðburði á vef þjóðhá ðarnefndar www.17juni.is. Umsóknum er einnig hægt að skila í Hi Húsið, Pósthússtræ 3-5, 101 Reykjavík á eyðublöðum sem þar fást. Umsóknarfrestur rennur út þann 12. maí n.k. 17. júní í Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.