Fréttablaðið - 12.05.2010, Page 6
6 12. maí 2010 MIÐVIKUDAGUR
Til sölu eða leigu bækistöð á Suðurlandi:
Staðsetning: Eyrarbakki í Árborg.
Stærð: 1.705 m2 og skiptist í tvo stóra sali, skrifstofur,
starfsmannaaðstöðu og fl .
Tilvalið sem verkstæði, geymsla, aðstaða fyrir vinnufl okka,
lager, og fl . Stór athafnalóð (3.500 m2) fylgir sem veitir
stækkunarmöguleika síðar.
Hagstætt verð.
Upplýsingar í símum: 661 6800 og 660 1060
®
KLAUSTRIÐ EFTIR PANOS KARNEZIS
FRÁ ÞEIM SEM GUÐ VILL TORTÍMA
TEKUR HANN FYRST VITGLÓRUNA
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
„Kyrrlát, nánast þögul,
frásögn en um leið brenn-
heitt, mannlegt drama ...
máttug og fumlaus.“
–Times
Þýðandi: Árni Óskarsson
neon
SPLUNKUNÝ
KILJA!
NÁTTÚRA „Það skal viðurkennast að
þetta var mikilfenglegt. Ég sá berg-
ið rifna við efstu brún og falla átta-
tíu til hundrað metra í sjó fram,“
segir Haraldur Sverrisson, skip-
stjóri á Sporði VE, sem var sjónar-
vottur að því í fyrrinótt þegar mikil
fylla hrundi úr Bjarnarey, einni af
úteyjum Vestmannaeyja.
Haraldur var á leið á miðin um
fjögurleytið um nóttina þegar hann
sá spilduna falla niður með tilheyr-
andi rykmekki og boðaföllum.
Pétur Steingrímsson, sem er vel
kunnugur í Bjarnarey, fór út í eyna
í gær og segir að tugþúsundir tonna
af grjóti hljóti að hafa hrunið. Nú
sé fjara þar sem áður var tíu til tut-
tugu metra dýpi við bergið. Farið
eftir fylluna gangi tuttugu metra
inn í bergið og sé fimmtíu metra
breitt. Hrunið er það þriðja úr
Bjarnarey á jafnmörgum vikum.
„Mér sýnist að það eigi eftir
að hrynja meira því þetta er allt
sprungið þarna úti,“ segir Pétur.
Nyrsti hluti svokallaðs Réttarhauss
hrundi og með honum tapaðist svo-
kallaður Brekahellir. Ásýnd Bjarn-
areyjar hefur því breyst mikið auk
þess sem veiðistaðir töpuðust en
Pétur segir einnig ljóst að mikið af
lundaholum hafi farið í sjóinn.
Ingvar A. Sigurðsson, forstöðu-
maður Náttúrustofu Suðurlands,
segir að hrun sem þetta verði með
reglulegu millibili. Starfsmenn
stofunnar munu fara á næstu
dögum og skoða aðstæður. - shá
Sjómaður varð vitni að því þegar gríðarmikil skriða féll í sjó fram:
Ásýnd Bjarnareyjar gjörbreytt
BJARNAREY Farið eftir skákina sem
klofnaði úr berg inu gengur tuttugu
metra inn í eyjuna. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
PAKISTAN, AP Fjórtán manns féllu í
Pakistan í gær í loftárás sem gerð
var með ómönnuðum loftförum á
vegum bandarísku leyniþjónust-
unnar CIA. Þrjár loftárásir hafa
verið gerðar síðan upp komst um
tilraun til að fremja hryðjuverk
með bílasprengju í New York í byrj-
un maímánaðar.
Fullyrt er að hinir föllnu hafi
allir verið uppreisnarmenn í Waz-
iristan-héraði, en það hefur ekki
fengist staðfest. Stjórnvöld í Pak-
istan mótmæla formlega árásun-
um, en talið er að árásirnar séu í
raun gerðar með þeirra leyfi og
aðstoð. Waziristan er hérað við
landamæri Pakistans og Afganist-
ans, og er í raun stjórnað af höfð-
ingjum ættbálka á svæðinu frek-
ar en pakistönskum stjórnvöldum.
Bandarísk stjórnvöld hafa undan-
farið aukið þrýsting sinn á pakist-
önsk stjórnvöld um að hefja hern-
aðaraðgerðir í héraðinu til að draga
úr áhrifum Al-Kaída hryðjuverka-
samtakanna.
Talið er að aukin áhersla banda-
rískra stjórnvalda á árásir í Pak-
istan standi í beinu samhengi við
tilraun til að fremja hryðjuverk
á Times-torgi í New York 1. maí
síðastliðinn. Maður grunaður um
verknaðinn hefur verið handtek-
inn, og hefur hann sagst hafa feng-
ið þjálfun í Waziristan. - bj
Bandaríkin gera loftárásir í Pakistan eftir tilraun til að fremja hryðjuverk í New York:
Fjórtán fallnir eftir loftárás
AUKIN GÆSLA Pakistanskur hermaður
leitar á mönnum skammt frá landamær-
um Afganistans. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Tæplega sextugur
maður hefur verið dæmdur í
átján mánaða fangelsi í Héraðs-
dómi Reykjavíkur fyrir fíkniefna-
smygl.
Maðurinn, sem er Lithái, var
ákærður fyrir að hafa staðið að
innflutningi á rúmlega hálfu kílói
af kókaíni. Hann kom til lands-
ins með flugi frá Kaupmannahöfn
með fíkniefnin falin innvortis, en
hann var handtekinn við komu
til Keflavíkurflugvallar. Maður-
inn játaði brot sitt fyrir dómi og
hefur þegar hafið afplánun. - jss
Átján mánaða fangelsi:
Dæmdur fyrir
smygl á kókaíni
Ætlar þú að taka sumarfrí
á meðan HM í knattspyrnu
stendur yfir?
JÁ 15%
NEI 85%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á að sameina iðnaðarráðuneyt-
ið og sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðuneytið í eitt atvinnu-
vegaráðuneyti?
Segðu skoðun þína á vísir.is.
BRETLAND/AP David Cameron, leið-
togi breska Íhaldsflokksins, er for-
sætisráðherra Bretlands. Elísabet
drottning veitti Cameron stjórn-
armyndunarumboð í gærkvöldi
stuttu eftir að Gordon Brown baðst
lausnar. Cameron hefur náð sam-
komulagi við Frjálslynda demó-
krata um myndun samsteypu-
stjórnar en formlegar viðræður
hefjast fyrir helgi.
Cameron þáði stjórnarmynd-
unarumboð úr hendi drottning-
ar aðeins klukkustund eftir að
Brown hafði beðist lausnar. Hann
tók að því búnu við lyklavöldum að
Downingstræti 10 og markar það
tímamót í fleiri en einum skiln-
ingi. Þrettán ára valdatíma Verka-
mannaflokksins er lokið. Cameron
er yngsti forsætisráðherra Breta
síðan Lord Livingstone gegndi
embættinu 1812. Íhaldsmenn og
Frjálslyndir mynda fyrstu sam-
steypustjórn landsins í sjötíu ár.
Í stuttri ræðu á tröppum
Down ingstrætis 10 í gærkvöldi
sagði Cameron að framundan
væru margar erfiðar ákvarðan-
ir en ásamt Nick Clegg, leiðtoga
Frjálslyndra, yrði haldið fast um
stjórnartaumana og ólíkar áhersl-
ur flokkanna myndu ekki standa í
veginum fyrir því að endurvinna
traust almennings, vinna bug á
fjárlagahallanum og félagslegum
vanda. Báðir flokkar hafi fallist
á málamiðlanir sem gerðu þeim
kleift að vinna saman þrátt fyrir
ólíkar stefnuskrár.
Cameron var í gærkvöldi þegar
tekinn við að mynda ríkisstjórn
sína. George Osbourne verður fjár-
málaráðherra og William Hague
utanríkisráðherra. Líkur eru leidd-
ar að því að Nick Clegg muni taka
við varaforsætisráðherraembætti;
embætti sem í raun felur ekki í sér
nein völd. Því er ekki útilokað að
Clegg muni jafnframt gegna öðru
og valdameira embætti sem muni
jafnframt eiga við um fleiri úr
röðum Frjálslyndra sem munu fá
þungavigtarembætti í sinn hlut.
Barack Obama, forseti Banda-
ríkjanna, var fyrsti erlendi þjóð-
höfðinginn til að óska Cameron til
hamingju í stuttu símtali í gær-
kvöldi.
svavar@frettabladid.is
Cameron tekinn við
sem forsætisráðherra
David Cameron, leiðtogi breska Íhaldsflokksins, er arftaki Gordons Brown í
stóli forsætisráðherra Breta. Samkomulag hefur náðst á milli Íhaldsflokksins og
Frjálslyndra demókrata um samsteypustjórn, hinnar fyrstu í landinu í 70 ár.
NÝR FORSÆTISRÁÐHERRA BRETA David Cameron tók við lyklavöldum í forsætisráðherrabústaðnum í Downingstræti 10 í gær-
kvöldi. Með honum er eiginkona hans, Samantha. Þau eiga von á barni í september. NORDICPHOTOS/AFP
KJÖRKASSINN