Fréttablaðið - 12.05.2010, Side 22
DEKUR
„Upplifunin er æðisleg; maður
fær silkimjúkar fætur á eftir og
er gagntekinn notalegri vellíðan,“
segir Elfa Dögg Þórðardóttir mann-
virkja- og umhverfisfulltrúi, sem
átti hugmyndina að Hveragarðinum
sem lofar dásamlegu dekri í miðbæ
Hveragerðis, þar sem opnuð verður
ný aðstaða til vatns- og leirfótabaða
um helgina.
„Hveragerði stendur á mögnuðu
bæjarstæði þar sem allt sjóðbull-
ar af heitu vatni inni í bænum og
utan við bæinn. Við áttum fyrirtaks
laug til fótabaða í miðbænum, sem
í rennur allt affall af hverasvæðinu
sem og affall af borholu Orkuveit-
unnar, og þegar ég bar undir bæj-
arstjórnina hvort við ættum ekki
að auka nýtingu svæðisins með leir-
og hverafótaböðum var henni tekið
fagnandi,“ segir Elfa Dögg þar sem
hún bakar rúgbrauð og sýður sér
gómsæt landnámshænuegg meðan
hún baðar tærnar í heilnæmum leir
og hveravatni.
„Leirinn tökum við úr kulnuðum
hverum í umhverfi bæjarins, og
eins og náttúruleirinn sem notað-
ur er í leirböð Náttúrulækningafé-
lagsins er hann sjálfhreinsandi og
bakteríudrepandi, sem gerir hann
ávallt nýjan og ferskan fyrir næsta
mann, auk þess að vera bólgueyð-
andi og hafa heilsubætandi áhrif,“
segir Elfa Dögg í fögrum og freist-
andi Hveragarðinum. Hann er svo
sannarlega einstakur á heimsmæli-
kvarða, því hvergi er nálægð byggð-
ar jafn mikil við virkt háhitasvæði
þar sem gestum gefst tækifæri til
að verða vitni að fjölbreyttri nýt-
ingu háhitans.
„Í Hveragarðinum er skemmti-
legt aðstöðuhús í fallegri gróður-
vin þar sem ræktuð eru appelsínu-
og bananatré ásamt kaffirunna. Þar
er hægt að fá sér kaffi og með því
og kaupa heimaræktað grænmeti.
Auk þess geta gestir fylgst með
brauðbakstri, soðið sér egg í sérút-
búnu neti og gætt sér á gúrku snafsi,
en íslenskar landnámshænur hafa
tekið sér bólfestu í Hveragarðin-
um, ungum sem öldnum til mikillar
ánægju,“ segir Elfa Dögg um heild-
stæða nýtingu hverasvæðisins. Með
þessari nýjung hafa Hvergerðing-
ar tekið stórt skref til tengingar við
þá notkun sem tíðkaðist á svæðinu í
árdaga byggðar þegar fólk sótti sér
heilsubót með því að liggja í leir-
böðum á hverasvæðinu, húsmæður
suðu mat í hverum og mættu þar
reglulega til stórþvotta.
thordis@frettabladid.is
Tásur, rúgbrauð og egg
Faraldsfóturinn getur orðið lúinn á ferðalögum um landið og svalandi tilhugsun að geta dýft þreyttum
tám í hveravatn og kælandi leirbað, eins og nú gefst færi á undir berum himni í Hveragerði.
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, og Elfa Dögg Þórðardóttir njóta snemmsumarsælu í nýja Hveragarðinum þar sem
landsmenn geta nú komið og leyft náttúruöflunum að dekra við fætur sína, bragðlauka og andann. MYND/GUÐMUNDUR ÞÓR GUÐJÓNSSON
SKRÚBBBURSTI örvar blóðflæðið og losar dauðar
húðfrumur á yfirborði húðar. Má nota bæði í sturtu en
einnig til að þurrbursta líkamann.
20% afsláttur
af öllum Basler vörum
út Maí.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447
M eirapró f
U p p lýsin gar o g in n ritun
í s ím a 5670300