Fréttablaðið - 12.05.2010, Page 26
12. MAÍ 2010 MIÐVIKUDAGUR
Hér á árum áður gátu menn varla valið nýja máln-
ingu á vistarverur sínar án þess að rýna í litlar pruf-
ur á litaspjaldi. Nú er hins vegar hægt að setja saman
heilu litaskemun á vefnum og prófa sig áfram með
liti, þökk sé vefsíðum á borð við benjaminmoore.
com. Þar er hægt að skoða ljósmyndir af herbergj-
um og þegar notandinn finnur það
sem líkist einna helst hans eigin
herbergi getur hann prófað á
það nokkra mismunandi
liti og séð hver virkar
best.
Smiðjuvegur 76 | 200 Kópavogur | Sími 414 1000 | www.tengi.is
Unidrain gólfniðurföll eru frábær lausn fyrir sturtuna
við endurnýjun baðherbergisins eða í það nýja.
Glæsileg hönnun úr ryðfríu stáli. Þau eru lögð að vegg
og vatnshallinn er aðeins í eina átt. Leysir mörg vandamál.
Einföld og fljótleg uppsetning.
Innréttingarnar frá Ifö hafa slegið í gegn á Íslandi sem
og annars staðar. Hægt er að velja um nokkrar áferðir.
Koma samsettar og eru þ.a.l. mjög auðveldar
í uppsetningu.
Tengi býður upp á margar gerðir af salernisskálum og hér
má sjá þá nýjustu frá Ifö. Sérlega auðvelt í þrifum og að
sjálfsögðu með hæglokandi setu.
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 l Umsjónarmenn auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is s. 512 5411
● ILMUR OG LISTAVERK Ferskt og frískandi loft er
eitthvað sem allir þrá á baðherberginu. Hreinlæti skipt-
ir þar vissulega öllu máli og því kemur ekkert í staðinn
fyrir að hafa allt pússað og fínt. Stundum gefst þó ekki
ráðrúm til að þrífa baðið nógu rækilega þegar von er
á gestum og þá getur verið betra en ekkert að hressa
upp á aðstæður með því að rífa upp sápu með sætri
lykt eða kveikja á ilmkerti.
Falleg skál eða listaverk í öðru formi setur líka svip á
náðhúsið og dregur að sér athyglina.
Á Netinu er hægt að prófa ýmsa liti á baðherbergið áður en
gengið er frá kaupum á málningu. NORDICPHOTOS/GETTY
Baðherbergið málað á netinu
Verslunin Tengi sérhæfir sig í
innflutningi og sölu á hrein-
lætistækjum og pípulagninga-
efni. Fyrirtækið, sem verður 30
ára á næsta ári, hefur í gegnum
tíðina selt vörur frá virtum og
þekktum framleiðendum.
Tengi og Mora, sænskur blöndun-
artækjaframleiðandi, eiga 25 ára
samstarfsafmæli á þessu ári. Magn-
ús Andri Hjaltason, sölustjóri hrein-
lætistækjadeildar, segir markmið
Tengis frá upphafi hafa verið að
bjóða viðurkennda vöru á hagstæðu
verði, sem standist allar helstu kröf-
ur og hafi gæðavottun.
„Við lítum á að þjónustunni sé
ekki lokið þegar viðskiptavinir
okkar hafa fengið vöruna afhenta,“
segir Magnús. „Við leggjum mikið
upp úr því að eftirþjónustan sé í
lagi, til dæmis að varahlutaþjónust-
an sé í góðu standi. Það er gaman
að segja frá því að við eigum vara-
hluti í Mora-tækin sem komu hing-
að fyrir 25 árum og einnig í fjöru-
tíu ára gömul Ifö-salerni.“
Magnús segir viðskipti Tengis
snúast um gæði, ábyrgð og þjón-
ustu. „Við getum boðið vörur í
öllum verðflokkum, en mark-
mið fyrirtækisins eru skýr: Við
bjóðum ekki upp á vöru sem við
getum ekki fullkomlega treyst og
þjónustað,“ segir hann. „Við vilj-
um byggja upp langtímasamband
með okkar birgjum, en ekki tjalda
til einnar nætur. Fólk ætti að spá
í þessa hluti áður en það ákveður
að kaupa hreinlætistæki.“
Magnús segir að starfsmenn
Tengis leggi mikið upp úr góðri
þjónustu og persónulegum sam-
skiptum við viðskiptavini og bend-
ir á að hjá fyrirtækinu starfi þjón-
ustustjóri sem tekur að sér allar
ábendingar sem berast Tengi og
leysir málin fljótt og vel. Flest-
ir starfsmenn Tengis hafi mikla
reynslu og þekkingu á hreinlæt-
istækjum og lagnaefni og hafi
unnið lengi hjá fyrirtækinu. „Það
er gríðarlega mikils virði,“ segir
Magnús. Nánar á www.tengi.is.
Gæði, ráðgjöf og þjón-
usta skipta miklu máli
„Við leggjum mikið upp úr því að eftirþjónustan sé í lagi, til dæmis að varahlutaþjónustan sé í góðu standi,“ segir Magnús.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON