Fréttablaðið - 21.05.2010, Page 26
2 föstudagur 21. maí
núna
✽ 10 1 Reykjavík
þetta
HELST
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Stefán Karlsson Ritstjóri Anna M. Björnsson
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
KOLBEINN HUGI MYNDLISTARMAÐUR
Á föstudagskvöldið ætla ég að vinna eins og Úrúk-Hai fyrir sýninguna Ellipsepilepsy
II: The Prodrome, sem mun opna í Galleríi Suðsuðvestur daginn eftir. Á laugardag-
inn verð ég með óvissuferð frá Bakkusi sem mun fara á ónefndan stað þar sem
verður myndlistarsýning, tónleikar og ýmislegt fleira spennandi.
Þ að var orðin vöntun á tón-leikastöðum eftir að Batterí-
ið brann og Grand Rokk lokaði
dyrum sínum,“ útskýrir Jón Pálm-
ar Sigurðsson, eigandi skemmti-
staðarins Venue á Tryggvagötu
22. Jón Pálmar og unnusta hans,
Rebecca Moran, reka einnig hinn
vinsæla bar Bakkus en báðir stað-
irnir mynduðu eitt sinn Gauk á
Stöng. „Venue verður nú fyrst og
fremst tónleikastaður með fjöl-
breytta og spennandi tónleika
þrjú kvöld í viku. Að loknum tón-
leikum tekur svo dansstemn-
ing við um helgar en segja
má að áherslurnar séu dálít-
ið breyttar.“ Rebecca, sem er
myndlistarkona, hefur skreytt
staðinn fagurlega að innan. „Ann-
ars eru svo sem engar stórkost-
legar útlitsbreytingar en við erum
komin með frábært hljóðkerfi sem
við fengum úr Austurbæ.“
Jón Pálmar býst við því að það
gangi vel að reka Bakkus og Venue
svona hlið við hlið. „Það er sama
fólkið sem vinnur á báðum stöð-
unum og einstaka sinnum verður
einhver sameiginlegur viðburður á
stöðunum en annars verður Bakk-
us áfram með sama sniði sem bar
þar sem plötusnúðar þeyta skíf-
um en Venue verður tónleika-
staður. Við erum búin að fara yfir
hljóðeinangrunina á milli þannig
að það ætti ekki að vera neitt sem
truflar gesti.“ Um hvítasunnuhelg-
ina opnar Venue á ný með pomp
og prakt með fjögurra daga tón-
leikaveislu sem nefnst „Maíhem“.
Meðal þeirra sem koma fram eru
hljómsveitirnar Sudden Weath-
er Change, Reykjavík!, Captain
Fufano, Útidúr og Me the Slumb-
ering Napoleon. Að loknum tón-
leikum hvers kvölds verður svo
ókeypis inn á DJ settin sem duna
fram á rauða nótt. - amb
Venue heldur tónlistarveislu um helgina:
NÝJAN TÓNLEIKASTAÐ
VANTAÐI Í BÆINN
helgin
MÍN
SÆT OG FÍN Leikkonan Gwyneth
Paltrow geislaði í silfurlitum kjól og
leðurjakka á leið út að borða í Man-
hattan í New York í vikunni.
Stórskemmtilegur fatamarkað-
ur verður haldinn klukkan 11.00
á morgun í húsnæðinu fyrir ofan
tískuverslunina GK Reykjavík við
Laugaveg. Ingibjörg Finnboga-
dóttir, Stefán Svan Aðalheiðar-
son, hárdoktorinn Jón Atli Helga-
son og Heiða Agnarsdóttir standa
saman að markaðnum og því geta
bæði stúlkur og drengir gert þar
góð kaup. Fjórmenningarnir eru
allir þekktir fyrir smekklegan og
flottan klæðnað og hyggjast þau
tæma fataskápa sína algjörlega
fyrir sumarið.
Á markaðnum verður meðal ann-
ars hægt að kaupa merkjaflíkur á
borð við Filippu K, Henrik Vibskov,
Marjan Pejoski, Chanel og Vivienne
Westwood svo fátt eitt sé nefnt auk
annars fatnaðar. „Við erum svo
sjúklega spennt fyrir þessum mark-
aði sjálf að við höfum verið að tæta
meira út úr skápunum hjá okkur.
Þetta er því orðið rosalegt magn af
fötum sem verða til sölu hjá okkur,“
segir Stefán Svan.
Markaðurinn er haldinn á Lauga-
vegi 66 og stendur frá klukkan
11.00 til klukkan 17.00. - sm
Fjórmenningar halda fatamarkað saman:
Tískuspekúlantar
selja af sér spjarir
Fyrstir koma, fyrstir fá Stefán Svan er
á meðal þeirra sem ætla að selja spjarirn-
ar af sér. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Breyttar áherslur Jón Pálmar Sigurðsson og Rebecca Moran reka staðina Bakkus og Venue sem eru þar sem Gaukur á Stöng var
einu sinni. Hér gefur að líta nýjan og litríkan bar á tónleikastaðnum Venue sem var skreyttur af Rebeccu.
Hildur Yeoman fær hrós
Vefsíðan Style Bubble býður upp
á það helsta og heitasta í tísku-
heiminum um þessar mundir. Ís-
lenski hönnuðurinn Hildur Yeoman
fékk gífurlega lofsamleg skrif þar
nú í vikunni en blaðamaður lýsir
yfir afbrýðisemi sinni yfir því
hvernig ein manneskja geti
verið svona hæfileikarík á svo
mörgum sviðum.
Fylgihlutalínu Hildar er lofuð í
hástert og þá sérstaklega hekluð-
um töskum í dýralíki sem Hildur
sýndi meðal annars á Reykjavík
Fashion Festival. Dýratöskur verða,
að mati blaðamanns Style Bubb-
le, það sem koma skal. Að lokum
lofar blaðamaður verk Hildar og
Sögu Sigurðar þar sem ljósmynd-
un og tískuteikningum var blandað
saman á sýningunni Garden of
Enchantment nú í vor. Enn er hægt
að kaupa nokkur stykki úr þeirri
sýningu í versluninni KronKron á
Laugavegi. - amb