Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.05.2010, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 26.05.2010, Qupperneq 4
4 26. maí 2010 MIÐVIKUDAGUR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is VIÐSKIPTI Setja á stjórnum fyrir- tækja strangar reglur og þeim verður að fylgja af hörku. Þetta segir Chris Pierce, forstjóri breska fyrirtækisins Global Governance Service. Hann var frummælandi á hádegisfundi í gær um stjórnar- hætti hjá fyrirtækjum á vegum Viðskiptaráðs, Samtaka atvinnu- lífsins, Kauphallarinnar og Rann- sóknamiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands. Pierce benti á að tekið hafi verið af hörku á svokölluðum hvítflibba- glæpum upp á síðkastið; hinn banda- ríski Bernard Maddoff var fyrir tæpu ári dæmdur í 150 ára fangelsi fyrir umfangsmikil og gróf fjár- málasvik og Huang Guangyu, rík- asti maður Kína í hittiðfyrra, hlaut fjórtán ára dóm fyrir mútur og inn- herjasvik í síðustu viku. Pierce sagði mikilvægt að stjórnarformaður fyrirtækis helgi sig stjórnarstarfinu og því geti hann ekki setið í mörgum stjórn- um á sama tíma. Til viðbótar eigi að kalla til óháða eftirlitsaðila sem auga hafi með stjórnum fyrirtækja. Við það ættu stjórnarhættir að batna, að hans mati. Pierce hefur unnið að málum sem þessu tengjast í Portúgal, Grikklandi og Spáni, löndum sem öll standa á haus í fjármálakrepp- unni. Hann sagði stöðu stjórnar- hátta bágborna innan ESB-ríkj- anna og vitnaði til þess að aðeins tæp fimmtán prósent fyrirtækja á Spáni birti nöfn stjórnarmanna í ársuppgjöri. „Þetta er hræðilegt,“ sagði hann . Brasilíumenn eru langt komn- ir í stuðningi við góða stjórnar- hætti, hafa sett á laggirnar nýjan hlutabréfamarkað eingöngu fyrir fyrirtæki sem tekið hafi upp viður- kennda og góða stjórnarhætti. „Það er gríðarlegur munur á fyrirtækj- um sem ástunda góða starfshætti og hinum sem ekki gera það,“ sagði Pierce og benti á að gengi hluta- bréfa í fyrrnefndu fyrirtækjunum væri tugum prósentum hærra en hinna. jonab@frettabladid.is Stjórnir fyrirtækja fóru af leið þegar þær hættu að þjónusta viðskiptavini sína og snerust gegn fyrirtækjunum eftir síðustu aldamót; Kaupþing tók yfir Skeljung og lét í hendur nýrra eigenda og Landsbankinn tók yfir stjórn Eim- skips með fjandsamlegum hætti. Þetta sagði Benedikt Jóhannesson, ritstjóri Vísbendingar, á fundinum í gær. Hann vísaði til þess að efnahagshrunið hér hefði átt sér langan aðdraganda. „Þarna voru nýir eigendur andstæðingar fyrirtækjanna,“ sagði Benedikt og benti á að þar hefðu góðir stjórnarhættir síst verið viðhafðir. Hann lagði jafnframt áherslu á að stjórnarmenn hefðu taumhald á stjórnarformanni fyrirtækja, sér í lagi ef viðkomandi á meirihluta hlutafjár. „Ef eigendur fara út af sporinu á stjórnin að gera við það athuga- semdir.“ Bankarnir brugðust fyrir löngu GENGIÐ 25.05.2010 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 216,1122 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 130,98 131,6 187,54 188,46 159,69 160,59 21,458 21,584 19,676 19,792 16,249 16,345 1,4623 1,4709 192,02 193,16 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR Heitar sósur skilja sig. Ég skil ekki af hverju. – Þú finnur fjölda girnilegra uppskrifta að kvöldmatnum á www.gottimatinn.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 0 -0 0 7 1 Herða á refsingar fyrir slæmt hátterni Mikilvægt er að herða reglur um stjórnarsetu. Breskur sérfræðingur segir fyrir- tæki sem viðhafi góða stjórnarhætti ganga betur. Efnahagshrunið hófst þegar bankarnir snerust gegn fyrirtækjunum, segir Benedikt Jóhannesson ritstjóri. CHRIS PIERCE Sumir stjórnarmenn eiga að búa yfir sérfræðiþekkingu á áhættutengd- um þáttum í rekstri, að mati bresks sérfræðings. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 25° 25° 19° 13° 19° 21° 14° 14° 21° 12° 26° 26° 25° 14° 21° 11° 8° Á MORGUN 3-8 m/s en stífari SA-til. FÖSTUDAGUR 3-8 m/s. 8 10 8 10 8 4 4 4 6 7 3 8 6 4 5 6 5 8 13 7 5 14 8 12 4 6 10 12 4 4 5 ÁFRAM RJÓMABLÍÐA um suðvestan og vestanvert landið næstu daga og helgin lítur vel út fyrir allt land- ið. Vindur verður þó heldur stífur austanlands í dag en lægir til morg- uns. Annars staðar verður áfram yfi r- leitt hægur vindur og hiti breytist lítið. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður STJÓRNSÝSLA Forstjóri Veiðimála- stofnunar rannsakar hvort Bjarni Jónsson, deildarstjóri hjá stofn- uninni, hafi sótt um og þegið styrki í gegnum einkafyrirtæki sitt í samkeppni við Veiðimála- stofnun. DV greindi frá málinu á dögunum. Fyrirtæki Bjarna, Fræðaveit- an, fékk á árunum 2008 til 2009 styrki sem námu alls 4,5 milljón- um króna, meðal annars úr rann- sóknarsjóði sem Bjarni hefur líka sótt um styrki úr fyrir hönd Veiðimálastofnunar. Sigurður Guðjónsson, forstjóri Veiðimála- stofnunar, segir ámælisvert að Bjarni hafi ekki upplýst stofnun- ina um styrki til fyrirtækis hans. Málið sé til skoðunar og sé niður- stöðu að vænta innan tíðar. Bjarni er sonur Jóns Bjarna- sonar sjávarútvegsráðherra en Veiðimálastofnun heyrir undir sjávarútvegsráðuneytið. - bs Mál deildarstjóra í skoðun: Greina hefði átt frá styrkjunum LONDON, AP Flugliðar hjá breska flugfélaginu British Airways (BA) hófu í gær fimm daga verk- fall til að mótmæla niðurskurði sem veldur því að fækka þarf flugum frá Heathrow-flugvelli í London um nánast helming. Talsmaður BA fullyrðir að hægt verði að flytja 70 prósent þeirra sem eiga pantað flug á meðan verkfallið stendur yfir. Stutt er síðan eldgosið í Eyja- fjallajökli setti allt flug í Evrópu úr skorðum og því hafa sumir flugfarþegar brugðist reiðir við verkfallinu. - sh Flugfarþegar gramir: Flugliðar hefja 5 daga verkfall EKKERT VAL Flugliðarnir lýstu skoðun sinni við Heathrow-flugvöll í gær. FRÉTTABLAÐIÐ / AP STJÓRNSÝSLA Nýtt sameinað sveitarfélag Arnarnesshrepps og Hörgárbyggðar verður annaðhvort kennt við Hörgá eða Möðruvelli. Fimm tillögur að nafni verða born- ar undir íbúa samhliða sveitar- stjórnarkosningum á laugardag. Eru það: Hörgárbyggð, Hörgár- hreppur, Hörgársveit, Möðruvalla- hreppur og Möðruvallasveit. Ellefu tillögur að auki bárust í hugmyndasamkeppni. Þær voru: Arnarbyggð, Eyjafjarðarbyggð, Gásabyggð, Gáseyrarbyggð, Hnjúkabyggð, Hraunsbyggð, Hörgárþing, Möðruvallabyggð, Smárabyggð, Þelamerkurbyggð og Öxnadalsbyggð. Sveitarstjórn tekur endanlega ákvörðun. - bþs Nýtt sveitarfélag í Eyjafirði: Kennt við Hörgá eða Möðruvelli ÍSRAEL, AP Átta skip með um 10 þúsund tonn af vistum, auk hundruða mótmælenda, eru á leið til Gasa. Ætlunin er að rjúfa her- kví Ísraelshers. Ísraelar segjast munu stöðva skipin og hafa samkvæmt heim- ildum sett upp bráðabirgðafang- elsi fyrir mótmælendurna. Þeir sem að skipalestinni standa segja að lagt verði upp frá Kýpur á föstudag til Gasa. Skipin bera sement og annan varning. Ísraelar og Egyptar settu á her- kví í Gasa eftir að Hamas náði þar völdum árið 2007. - óká Skipalest á leið til Gasa: Stefnir í átök við Ísraelsher SÖNGVAKEPPNI Hera Björk Þórhallsdóttir og flokkur hennar söng Ísland í gærkvöldi inn í úrslit Söngvakeppni evrópskra sjónvarps- stöðva með laginu Je ne sais quoi eftir Örlyg Smára. Tíu þjóðir af sautján komust áfram í keppn- inni í gær. Hera Björk og flokkur hennar steig síðastur á svið við frábærar undirtektir gesta sem tóku undir með Íslendingum í saln- um í Osló. Þegar nöfn níu þjóða voru komin á blað sem þátttakendur í úrslitakeppninni á laugardagskvöld án þess að Ísland væri komið áfram var salurinn nánast á suðu- punkti. Fagnaðarlætin voru gríðarleg þegar kynnirinn las upp nafn Íslands og íslenski fáninn fór á sinn stað í töflunni. Jóhanna Guð- rún var líka síðust upp úr hattinum með lagið Is it True í undanúrslitum í Moskvu í fyrra. Íslenskir sjónvarpsáhorfendur fengu því í annað skipti í röð að tylla sér allra fremst á stólbríkurnar áður en lag þeirra fékk grænt ljós frá Evrópu. Haft var á orði í keppnissalnum að þótt eld- gosinu á Íslandi sé lokið hafi Hera og félagar flutt það með sér til Noregs. Virðast íslensku keppendurnir njóta mikils meðbyrs ytra og vonast menn nú eftir að Ísland verði að minnsta kosti meðal tíu efstu þjóðanna þegar upp verður staðið. Annað kvöld verður seinni undanúrslita- kvöldið fyrir lokakeppnina og bætast þá við önnur tíu lög. - gar, re Hera Björk áfram með Je ne sais quoi í Eurovision en spennan hélst allt til enda: Aftur í úrslitin á síðasta farmiðanum ÁNÆGÐAR MEÐ SINN HLUT Hera Björk Þórhallsdóttir og Kristjana Stefánsdóttir fögnuðu innilega í Osló í gærkvöldi. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.