Fréttablaðið - 26.05.2010, Blaðsíða 17
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
BÍLSKÚRSSALA verður að Hávalla-
götu 16, bak við Landakotskirkju, á
laugardag og sunnudag frá 11.30 til 17.
Allur ágóði rennur til viðgerðar orgels og
kórstarfsemi Kristskirkju.
„Þetta var nokkuð mikil keyrsla og
við vorum dauðþreyttir þegar við
komum heim, en samt var þetta
auðvitað alveg frábært,“ segir
Sverrir Örn Arnarson, sölumað-
ur í Silkiborg í Danmörku, sem
skaust yfir til Þýskalands í fjórar
nætur til að sjá leik í HM í fótbolta,
sem haldið var þar sumarið 2006,
ásamt Ágústi vini sínum.
Ferðin kom þannig til að syst-
ir Sverris sótti um að fá að festa
kaup á yfir hundrað miðum á leiki
á HM löngu fyrir keppni, enda
ásókn í miða ávallt sérstaklega
mikil þegar mótin eru haldin í
Evrópu. „Þetta var mikið ferli því
nýtt tölvupóstfang þurfti að fylgja
hverri pöntun,“ segir Sverrir.
„Hún þurfti því að búa til rúmlega
hundrað ný tölvupóstföng og á end-
anum fékk hún vilyrði fyrir tíu eða
tuttugu miðum, en réði því hversu
marga hún keypti. Þannig gat hún
gefið mér og eiginmanni sínum
miða á HM í jólagjöf, og Ágúst
ákvað að skella sér með mér. Við
vorum ákveðnir í að sjá leik með
Spánverjum og völdum því að sjá
Spán leika gegn Túnisbúum.“
Félagarnir flugu því til Frank-
furt og gistu næstu fjóra dagana í
tjaldi á hinum ýmsu stöðum, meðal
annars í almenningsgarði og við
hlið lestarteina, enda segir Sverr-
ir þá ekki hafa haft mikla peninga
milli handanna. Þeir hafi skemmt
sér með knattspyrnu-aðdáendum
frá öllum heimshornum og dag-
arnir fjórir hafi liðið á örskots-
stundu.
Sjálfur leikurinn fór fram í Stutt-
gart og stóðu Spánverjar uppi sem
sigurvegarar með þremur mörk-
um gegn einu. Svo skemmtilega
vildi til að fyrir utan völlinn rakst
Sverrir á gamlan vinnu-félaga
sinn, Túnisbúa sem hafði búið á
Íslandi um skeið en hafði þá flutt
aftur á heimaslóðir. Þar urðu mikl-
ir fagnaðarfundir, að sögn Sverr-
is. „Það var mjög merkilegt að ég
skyldi hitta eina Túnisbúann sem
ég þekki í heiminum í Þýskalandi,
innan um fimmtíu þúsund manns,“
segir Sverrir.
Hann segir ferðina hafa verið
ógleymanlega og að öll skipulagn-
ing HM hafi verið til fyrirmynd-
ar í Þýskalandi. Þá hefur hann sett
stefnuna á að fara aftur á HM eftir
fjögur ár. kjartan@frettabladid.is
Fékk ferð á HM í jólagjöf
Sverrir Örn Arnarson skellti sér á leik á HM í knattspyrnu í Þýskalandi ásamt félaga sínum fyrir fjórum
árum. Fyrir utan leikinn rakst hann óvænt á gamlan vinnufélaga sinn frá Túnis í mannfjöldanum.
Sverrir Örn segir á stefnuskránni að sjá aftur leik á HM eftir fjögur ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
Allt sem þú þarft…