Fréttablaðið - 26.05.2010, Side 36
20 26. maí 2010 MIÐVIKUDAGUR
menning@frettabladid.is
Kl. 20 í Flensborgarskóla
Kristján Jóhannsson óperusöngvari
og Kór Flensborgarskóla og Flens-
borgarkórinn verða með tónleika í
kvöld í Hamarssal Flensborgarskól-
ans og aftur annað kvöld. Efnisskrá
tónleikanna er afar fjölbreytt og við
allra hæfi.
Á morgun verða þær stöllur
Freyja Gunnlaugsdóttir klar-
ínettuleikari og Hanna Dóra
Sturludóttir messósópran með
tónleika í Seltjarnarneskirkju kl.
20 og troða svo upp a föstudags-
kvöld á Stokkalæk. Á tónleikun-
um munu þær flytja Ljóðaflokk
eftir Lori Laitman við texta
gyðingabarna frá stríðstímum,
lög eftir Atla Heimi Sveinsson
við texta Jónasar Hallgrímssonar
og nýjar útsetningar Atla Heimis
á lögum Ása í Bæ og Oddgeirs
Kristjánssonar.
Á efnisskránni er að finna
áður óþekkt lög eftir Ása í Bæ, meðal annars
gamlan tangó frá 1931, Ó komdu kær, en lagið
skrifaði Ási þegar hann var 17
ára. Á efnisskránni er einnig að
finna landsþekktar dægurperlur
eftir þá félaga líkt og Ég veit
þú kemur, Maju litlu, Síldar-
stúlkurnar og fleira. Freyja og
Hanna Dóra hafa einnig nýlokið
við að hljóðrita efnisskrá með
lögum Ása og Oddgeirs og er
sá geisladiskur væntanlegur á
haustdögum. Sérstakur gestur
á tónleikunum verður Steinunn
Birna Ragnarsdóttir.
Þær gáfu út á vordögum
geisladisk, Kviða kalla þær hann
en á honum flytja þær sönglög
eftir Johannes Brahms, W.A. Mozart, Atla Heimi
Sveinsson og fleiri. - pbb
Óþekkt lög eftir Ása flutt á morgun
TÓNLIST Hanna Dóra Sturludóttir
messósópran og Freyja Gunn-
laugsdóttir klarínettuleikari.
Ljósmyndasýningaflóðið sem
setur svip sinn á Listahátíð í
Reykjavík hefur hleypt nokkru
lífi í umræður um ljósmyndina.
Nú bætir Listfræðafélag Íslands
um en það heldur málþing í sam-
vinnu við Listahátíð í Reykja-
vík um fræðilegar atlögur að
ljósmyndalist, stöðu rannsókna
og helstu viðfangsefni þeirra
íslensku fræðimanna sem um
ljósmyndir fjalla.
Á þinginu munu fimm frum-
mælendur, sem allir eru í fram-
varðasveit þeirra sem fást við
ljósmyndarannsóknir, halda
stutt erindi. Frummælendurn-
ir verða Inga Lára Baldvins-
dóttir, fagstjóri Ljósmyndasafns
Íslands, María Karen Sigurðar-
dóttir, safnstjóri Ljósmyndasafns
Reykjavíkur, Hanna Guðlaug
Guðmundsdóttir listfræðingur,
Pétur Thomsen ljósmyndari og
Sigrún Sigurðardóttir menning-
arfræðingur.
Málþingið verður haldið í fyrir-
lestrasal Þjóðminjasafnsins í dag
milli 17 og 19. Þingið er öllum
opið. - pbb
Þingað um
ljósmyndina
> Ekki missa af
Rómeó og Júlíu í Borgarleik-
húsinu en sýningar eru þar í
fullum gangi nú nær níu árum
eftir að sýning Vesturports var
frumsýnd.
Í kvöld verða tónleikar í Íslensku
óperunni þar sem þau Jónas Sen
hljómborðsleikari og Ásgerður
Júníusdóttir söngkona flytja lög
eftir Björk Guðmundsdóttur, Magn-
ús Blöndal Jóhannsson og Gunnar
Reyni Sveinsson í nýjum útsetning-
um Jónasar. Hefjast þeir kl. 20.
Ásgerður og Jónas Sen flytja
sönglög, sem mörgum eru kunn
og kær, eftir þessi þrjú tónskáld
í nýjum útsetningum og útfærsl-
um. Tónskáldin eiga það sameig-
inlegt að hafa samið tónlist sem er
á mörkum klassískrar tónlistar og
annarra tónlistarstefna og heyra
má áhrif frá djass, kvikmynda-
tónlist, dægurtónlist og popptón-
list í efnisskránni. Á tónleikun-
um mun Jónas leika á orgel, píanó,
selestu, sembal og rafmagnshljóm-
borð. Hann lék á þessi hljóðfæri og
fleiri á yfir 70 tónleikum í heims-
reisu Bjarkar á árunum 2007-2008
og hefur hann nú útsett yfir fjöru-
tíu lög hennar sem verða gefin út á
tveimur bókum, sem henta meðal
annars fyrir útileguna. Öll lögin
eftir Björk sem þau flytja á tónleik-
unum, heyrast þar í fyrsta sinn í
þessum nýju útsetningum Jónasar:
Venus as a Boy, Isobel, Army of Me
og Bachelorette. Af kunnum lögum
Magnúsar á efnisskránni má nefna
Sveitin milli sanda, In the Summer
When the Sun Is High, Na no mani
og Krummavísur, en eftir Gunnar
eru á efnisskránni Bráðum kemur
betri tíð, Elín Helena, Maður hefur
nú svo nokkur séu nefnd.
Ásgerður Júníusdóttir messó-
sópran hefur komið fram sem
söngkona og leikkona á tónleikum,
í leiksýningum og á listahátíðum í
Reykjavík, London, París, Berlín,
Stokkhólmi og víðar um Evrópu.
Hún hefur gefið út tvo hljómdiska,
Minn heim og þinn sem inniheld-
ur lög og ljóð eftir íslenskar konur
og Í rökkri, sönglög eftir Magnús
Blöndal Jóhannsson. Báðir diskarn-
ir voru tilnefndir til íslensku tón-
listarverðlaunanna. Hún hefur ein-
beitt sér að 20. og 21. aldar tónlist
og frumflutt verk eftir fjölda núlif-
andi íslenskra tónskálda. Má þar
nefna Jórunni Viðar, Atla Heimi
Sveinsson, Hauk Tómasson, Kar-
ólínu Eiríksdóttur og Ragnhildi
Gísladóttur.
Jónas Sen er píanóleikari og
gagnrýnandi. Hann er umsjónar-
maður sjónvarpsþáttaraðarinn-
ar Átta raddir, sem verður á dag-
skrá Sjónvarpsins í haust, en þar
ræðir hann við og spilar með átta
íslenskum söngvurum. Þar á meðal
eru Ásgerður Júníusdóttir og Björk
Guðmundsdóttir.
Tónleikarnir í kvöld verða merki-
legur fundur fimm listamanna þar
sem tveir þeirra túlka ekki bara
tónlistina heldur líka ljóðin undir
nýjum formerkjum, við nýjan und-
irleik. Miðar fást á vefjum miðasal-
anna og við innganginn verði ein-
hverjir eftir. pbb@frettabladid.is
Magnús, Björk og Gunnar
Reynir Sveinsson
TÓNLIST Jónas og Ásgerður við hljóðfærarót í Óperunni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LAGERSALA VINNUFATNAÐUR
26. - 29. maí
w
w
w
.6
6
no
rt
h.
is
Smekkbuxur
4.000 kr.
Vinnubuxur
2.000 kr.
Vinnujakki loðfóðraður
4.000 kr.
Vinnubuxur
2.500 kr.
Tindur jakki
6.500 kr.
Bómullar samfestingur
2.000 kr.
Flíspeysa m/ styrkingum
2.000 kr.
Smíðavesti
2.500 kr.
7
0
-
9
0
%
a
fs
lá
tt
u
r
af
v
ö
ld
u
m
v
ö
ru
m
1
5
%
a
fs
lá
tt
u
r
af
ö
ll
u
m
ö
ð
ru
m
v
in
nu
fa
tn
að
i
Faxafeni 12: Mið. - fös. 8 – 18 I Lau. 11 – 16
Glerárgata Akureyri: Mið. - fös. 10 – 18 I Lau. 11 – 16
Miðhraun 11: Mið. - fös. 8 – 18 I Lau. 11 – 15
Með
góðum
vösum
Með
góðum
vösum
Ný 4. vikna krakkajóganámskeið hefst 26. maí hjá
Jóga Stúdíó Stórhöfða 17.
2–5 ára » mánudagar klukkan 16:30–17:00
6–10 ára » miðvikudagar klukkan 16:30–17:00
Skráning í síma 772 1025 og 695 8464
Verð aðeins 5.000 kr.
Krakkajóga
Nánari upplýsingar á
jogastudio.orgStórhöfði 17 (gengið inn um Veggsport)