Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.05.2010, Qupperneq 39

Fréttablaðið - 26.05.2010, Qupperneq 39
MIÐVIKUDAGUR 26. maí 2010 Evrópskir kvikmyndaspekúlantar eru ekki allir jafn sáttir við óvænta sigurmynd Cannes- hátíðarinnar í ár, hina taílensku Uncle Boonmee Who Can Recall His Past Lives í leikstjórn Apichatpong Weerasethakul. Franska dagblaðið Le Monde sagði að dómnefndin hefði ákveðið að verðlauna utangarðsmann í kvikmyndaheiminum og að myndirnar sem kepptu um Gullpálmann hefðu verið frekar lélegar. Blaðið Le Figaro tók enn dýpra í árinni og sagði að sigurmyndin hefði verið bæði leiðinleg og óskiljanleg. Hið spænska El Pais var á sama máli og sagði söguþráðinn algjörlega út í hött. Bresk blöð voru heldur jákvæðari í garð myndarinnar en voru svekkt yfir því að gengið hafi verið framhjá nýjustu mynd Mike Leigh, Another Year. The Times sagði taílensku myndina þá undarlegustu sem hafi keppt um Gullpálmann. Eigi að síður hafi hún verið frábær upplifun þar sem fallegu landslagi og minningarbrotum hafi verið blandað saman á smekklegan hátt. Svissneska blaðið Le Temps sagði að Cannes- hátíðin væri ein örfárra í heiminum þar sem kvikmyndagerðarmenn sem eru skildir út undan vegna markaðsaflanna gætu látið ljós sitt skína. Sigurmynd fær misjafna dóma SIGURVEGARI Apichatpong Weerasethakul með Gullpálmann sem hann fékk um síðustu helgi. NORDICPHOTOS/GETTY Leikkonan Julia Roberts segir að það skemmtilegasta sem hún viti um sé að horfa á börnin sín vakna og sjá þau átta sig á deginum sem er í vændum. „Mér finnst það stórmerkilegt,“ sagði Julia í við- tali við Oprah. Leikkonan á tví- burana Hazel og Phinneaus sem eru fimm ára og Henry Daniel sem er tveggja og hálfs árs, með eiginmanni sínum Danny Moder. „Henry vaknaði um dag- inn og sagði: „Þetta er fallegur dagur mamma.“ Þetta gerði það að verkum að það var auðvelt að vakna klukkan 5.30,“ sagði hún. Horfir á börnin vakna JULIA ROBERTS Juliu finnst yndislegt að horfa á börnin sín vakna. Söngkonan Kelis og rapparinn Nas eru skilin að skiptum eftir langvinnar deilur. Tónlistarfólkið gekk í hjónaband árið 2005 eftir tveggja ára samband en tilkynnti að þau ætluðu að skilja í apríl í fyrra. Þá gekk Kelis með barn þeirra. Nú ári síðar eru þau loks lögformlega skilin. Í dómskjölum kemur fram að Nas þarf að greiða Kelis hátt í eina og hálfa milljón króna á mánuði í meðlag. Hann segist hins vegar ekki hafa efni á því. Nas og Kelis hafa ekki fengist til að tala um ástæður skilnaðar- ins. Fjölmiðlar vestanhafs hafa þó getið sér til að framhjáhald hans sé meginorsökin. Kelis og Nas loksins skilin KELIS Loksins frjáls. Vi ns tri hr ey fin gi n - g ræ nt fr am bo ð vil l b ei ta sé r f yr ir ró ttæ ku m þ jó ðf él ag su m bó tu m a lm en ni ng i t il ha gs bó ta , h ef ja v er nd n át tú ru o g um hv er fis ti l v eg s á Ís la nd i o g tre ys ta b yg gð u m a llt la nd . H re yf in gi n er sa m st ar fs ve ttv an gu r o g ba rá ttu -tæki þeirra, sem vilja útrýma kynjamisrétti og tryggja jafnrétti, kvenfrelsi og aukinn jöfnuð í samfélaginu. Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill byggja upp lýðræðislegt og réttlátt þjóðskipulag grundvallað á virkri þátttöku alm ennings. Hreyfingin hafnar alræ ði m arkaðshyggjunnar og vill varðveita sjálfstæ ði þjóðarinnar og forræ ði yfir eigin auðlindum . Vinstrihreyfingin – græ nt fram boð vill .... // sjá m eira á w w w .vg.is/stefna/ Suðurgata 10 I opið kl. 13-18 alla daga I sími 517 0758 I reykjavik@vg.is I www.vgr.is Eflum grunnskólana! Grunnskólinn á að vera öruggt skjól fyrir börn og ungmenni, líka á tímum efnahagsþrenginga. Hann á að vera gjaldfrjáls og án aðgreiningar að öllu leyti. Börn og ungmenni eiga skýlausan rétt á innihaldsríkum frítíma í samfellu við fjölbreytt og skapandi skólastarf. Þess vegna viljum við standa vörð um íþrótta og æskulýðsstarfsemi; skólahljómsveitir, tónlistarskóla, íþróttafélög, félagsmiðstöðvar og frístundaheimili. Sóley Tómasdóttir 1. sæti Þorleifur Gunnlaugsson 2. sæti www.jonogoskar.is Laugavegur 61 / Smáralind / Kringlan Stjarna 14 kt. gull kr.10.900,- Stjarna úr silfri, næla kr. 4.900,- Rós 14 kt. gull kr. 12.900,- Stúdentastjarnan og -rósin 2010 fallegar stúdentsgjafir sem fást hjá okkur IPAA RR \ TBW A •SÍA •100954

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.