Fréttablaðið - 10.06.2010, Side 54
38 10. júní 2010 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
2000 2002 2006 2010
> Í SPILARANUM
For a Minor Reflection - Höldum í átt að óreiðu
Wolf Parade - Expo 86
The Black Keys - Brothers
Jack Johnson - To the Sea
FOR A MINOR REFLECTION WOLF PARADE
Ein af flottari plötum ársins til þessa er Before Today með Los Ang-
eles-sveitinni Ariel Pink’s Haunted Graffiti. Ariel Pink er listamanns-
nafn Ariels Marcus Rosenberg. Hann er fæddur 1978 og hefur verið
að búa til tónlist í ein fimmtán ár. Árið 2003 sendi hann CD-r disk
með nokkrum lögum til meðlima Animal Collective og í framhaldinu
gerðu þeir samning við hann um útgáfu á vegum plötufyrirtækisins
þeirra Paw Tracks. Fyrsta platan, The Doldrums, kom út árið eftir og
fleiri fylgdu í kjölfarið. Tónlistin var framúrstefnulegur lo-fi hræri-
grautur.
Allt frá árinu 1995 tók Ariel mikið
magn af lögum upp á átta rása
Yamaha-kassettutæki í svefnherberg-
inu sínu. Dag eftir dag „datt hann um
það þegar hann fór fram úr á morgn-
ana“. Hann gerði á milli 200 og 300
spólur á fyrstu árunum sem inni-
halda yfir 500 lög. Hluti þess efnis
hefur komið út á plötum. Upphaflega
kom Ariel fram einn á tónleikum með
aðstoð kassettutækis, en síðar fékk
hann nokkra tónlistarmenn til liðs við
sig. Árið 2008 stofnaði hann hljóm-
sveitina sem nú gengur undir nafninu
Haunted Graffiti.
Í nóvember í fyrra gerði Ariel samn-
ing við breska plötufyrirtækið 4AD og
í mars kom fyrsta afurð þess samstarfs, smáskífan Round and Round.
Á mánudaginn kom svo stóra platan Before Today. Hún telst vera
níunda plata Ariels Pink og sú fyrsta sem er tekin upp í hljóðveri.
Before Today er fjölbreytt og skemmtileg poppplata með glás af vís-
unum í poppsöguna. Hún staðfestir að Ariel er fyrirtaks lagasmiður.
Before Today er aðgengilegri heldur en fyrri plöturnar og hljómurinn
er betri. Hún hefur fengið frábæra dóma og ætti að koma þessum
afkastamikla listamanni upp á yfirborðið.
Upp á yfirborðið
ARIEL PINK ein af plötum ársins.
Myndin á smáskífunni Round and
Round hér að ofan vakti líka mikla
athygli.
> Plata vikunnar
The National - High Violet
★★★★★
„High Violet er stórkostleg
plata sem mun auka hróður
The National enn frekar.“ - afb
Thom Yorke, söngvari Radiohead, segir
aðeins nokkra mánuði í að stóru útgáfu-
fyrirtækin í tónlistariðnaðinum hrynji
eins og spilaborg.
Í viðtali í nýrri kennslubók fyrir
menntaskóla heldur hann því fram
að iðnaðurinn sé að niðurlotum kom-
inn. „Þetta er bara tímaspursmál,“
sagði Yorke. „Það eru mánuðir frek-
ar en ár þangað til kerfið í kringum
tónlistariðnaðinn hrynur eins
og það leggur sig.“
Hann hvetur unga tónlistarmenn
sem vilja ná langt til að semja ekki
við stór útgáfufyrirtæki og bætir við
að ekki verði mikil eftirsjá að þeim.
„Ekki hoppa um borð í sökkvandi skip,
því trúið mér, það er að sökkva.” Að sögn
Yorke er félagi hans úr Radiohead,
Ed O´Brien, að reyna að bæta hag
nýliða í tónlistarbransanum
þannig að þeir fái loksins
borgað eitthvað af viti
fyrir verk sín. Það gengur aftur á móti
mjög erfiðlega.
Aðrir sem segja frá reynslu sinni í
kennslubókinni eru Ms Dynamite
og sjónvarpsmaðurinn Jon Snow.
Bókinni er ætlað að hjálpa 15 til
16 ára krökkum að verða meðvit-
aðir um stjórnmál.
Radiohead vakti mikla athygli
þegar hljómsveitin gaf aðdáend-
um sínum kost á að sækja síðustu
plötu sína, In Rainbow, ókeypis á
Netinu í gegnum heimasíðu sína.
Þá hafði sveitin nýlokið sex platna
og tólf ára samningi við útgáfu-
fyrirtækið EMI og ákvað að gefa
nýju plötuna út sjálf. EMI er núna í
erfiðri stöðu og skuldirnar að sliga
fyrirtækið.
Tónlistariðnaðurinn að hrynja
THOM YORKE Söngvari Radiohead
segir að tónlistarbransinn eigi
eftir að hrynja eins og
spilaborg.
* PLÖTUSALA Í BANDARÍKJUNUM Í MILLJÓNUM EINTAKA
8,2
4,2 1,7
Bandaríska söngkonan
Christina Aguilera reyn-
ir að hressa rækilega upp
á ímyndina á sinni fjórðu
hljóðversplötu, Bionic, sem
er nýkomin út.
Síðasta plata Christinu Aguil-
era, Back To Basic, fékk ágætis
dóma hjá gagnrýnendum og er til
að mynda hæst allra platna henn-
ar í einkunn á síðunni Metacritic.
com. Þar söng hún sálar-, djass-
og blúslög í anda þeirra tón-
listarmanna sem höfðu áhrif á
hana í æsku. Platan seldist þó
ekki nægilega vel, sérstaklega
í heimalandinu og í Kanada þar
sem einungis 1,7 milljónir ein-
taka fóru yfir búðarborðið. Það
er lítið á mælikvarða Aguilera
því fyrsta plata hennar seldist í
tæplega 8,2 milljónum eintaka.
Fallið er því hátt á rétt innan
við tíu árum. Þó verður að taka
með í reikninginn almennt dvín-
andi plötusölu undanfarinna ára
sökum ólöglegs niðurhals.
Á Bionic vendur Aguilera kvæði
sínu í kross og syngur taktföst,
nútímaleg lög þar sem hún nýtur
aðstoðar vinsælla tónlistarmanna
og lagahöfunda á borð við M.I.A,
Le Tigre, Peaches og Switch. Linda
Perry úr 4 Non Blondes, sem var
upptökustjóri Back To Basic, og
samdi lögin með Aguilera, fær
aðeins að spreyta sig í einu lagi.
Myndbandið við fyrsta smá-
skífulagið Not Myself Tonight
sýnir að söngkonan vill ekki vera
neinn eftirbátur Lady Gaga sem
hefur gnæft yfir poppdívu-mark-
aðnum undanfarin ár. Allt er gert
út á ögrandi kynþokkann með smá
skvettu af kvalalosta, svona rétt
til að sýna að Aguilera getur þetta
alveg líka. Breytingin sem hefur
aftur á móti orðið frá plötu númer
tvö, Stripped, er sú að klámáhersl-
an með hálfnakinni söngkonunni
dillandi sér uppi á sviði er ekki
jafnmikil, enda fékk hún skömm í
hattinn fyrir hegðun sína hjá siða-
postulum vestanhafs.
Sjálf segist hún ekki vera að
apa eftir Gaga. „Ég ætla að vera
í þessu í langan tíma og eftir að
hafa verið í áratug í bransanum
hef ég ekkert að sanna lengur,“
segir hún. „Við alla þá sem vilja
vera neikvæðir vil ég segja að ég
er greinilega nógu merkileg til að
þeim sé ekki sama um mig.“
Með nýju plötunni vill Aguil-
era túlka kvenleika sinn í öllum
sínum myndum; sem móðir,
eiginkona, söngkona og leikkona,
en fyrsta mynd hennar, söngva-
myndin Burlesque, kemur út síðar
á árinu. „Með Bionic vil ég sýna
fram á þá ofurmannlegu eiginleika
sem nútímakonur þurfa að búa
yfir,“ segir hún og bætir við: „Ég
hef þroskast, breyst og lært mjög
mikið. Ég hef aldrei haft jafnmikið
sjálfstraust og búið yfir eins miklu
öryggi og eins miklum kynþokka
og í dag.“ freyr@frettabladid.is
Hin mörgu andlit Aguilera
■ Aaliyah sendi frá sér lagið Try Again
í júní árið 2000. Lagið heyrðist í
kvikmyndinni Romeo Must Die,
en Aaliyah lék aðalhlutverkið í
henni ásamt Jet Li.
■ Hún lést ári síðar í flugslysi við
Bahama-eyjar.
■ Lagið fór á toppinn í Bandaríkj-
unum, en fór einnig ofarlega á
lista í Evrópu.
■ Try Again var samið af Satitc
Major og engum öðrum en
Tim Mosley. Hann er í dag
þekktari sem smellaframleið-
andinn Timbaland.
■ Lagið er í 93. sæti á lista tímaritsins
NME yfir bestu smáskífulög allra tíma. Roll-
ing Stone setur það í 86. sæti yfir bestu
lög tíunda áratugarins.
■ Árið 2003 tók þýska þungarokks-
hljómsveitin Knorkator lagið upp á sína
arma og gaf það út á plötuþ
■ Aaliyah var búin að leika í kvikmynd-
inni Queen of the Damned áður en hún
lést. Þegar myndin var frumsýnd fór hún
beint á toppinn í Bandaríkjunum.
■ Til stóð að hún léki í fjölmörgum
myndum. Ein af þeim var Honey, en
Jessica Alba fékk hlutverk Aaliyuh í
myndinni.
TÍMAVÉLIN AALIYAH FER Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM
Lést ári eftir að hún sló í gegn
SUÐURLANDSBRAUT 12 . BRAGAGATA 38a . LAUGAVEGUR 81
S T O F N A Ð 1 9
8 6
•
PI
Z
Z
U
R
N
A
R
O
K
K
A
R
ER
U
BA
KAÐAR VIÐ LOGA
A
F
ÍS
L
E
N
S
K
U
B
IR
KI
•
ELDBAKAÐAR BRAUÐSTANGIR
MEÐ OSTI OG SÓSU 895.-