Fréttablaðið - 19.06.2010, Blaðsíða 49
LAUGARDAGUR 19. júní 2010 7
ÁBYRGÐ OG VERKEFNI
Markaðsstjóri Pfizer ber ábyrgð á daglegri stjórnun og rekstri markaðs-
deildar Pfizer innan Icepharma, en gert er ráð fyrir að við deildina starfi
u.þ.b. 5 starfsmenn. Markaðsstjóri sinnir markaðsgreiningu og stefnu-
mótunarvinnu, annast framkvæmd markaðs- og söluáætlana í samvinnu
við skrifstofu Pfizer í Kaupmannahöfn og tekur þátt í markaðssetningu
og kynningu á lyfjum fyrir lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk, ásamt
fundum og ráðstefnum heima og erlendis. Ennfremur sinnir markaðsstjóri
margs konar samskiptum fyrir hönd Pfizer, svo sem við íslensk
heilbrigðisyfirvöld og hagsmunasamtök í lyfjaiðnaði.
Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra Lyfjasviðs Icepharma.
MENNTUN OG HÆFNI
Markaðsstjóri Pfizer þarf að hafa sýnt af sér leiðtogahæfileika og mikla
færni í starfsmannastjórnun og mannlegum samskiptum. Gerð er krafa
um frumkvæði, fagmennsku, jákvæðni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Markaðsstjóri þarf að hafa háskólamenntun, helst á sviði viðskipta- og
heilbrigðisvísinda, reynslu af störfum á lyfjamarkaði og gott vald á ensku
og einu Norðurlandamáli í ræðu og riti.
STARFSUMHVERFI
Starf markaðsstjóra Pfizer er fjölbreytt, faglegt og spennandi starf í krefjandi
umhverfi á einhverjum mestu breytingartímum íslenska heilbrigðiskerfisins. Í boði
er fagleg og persónuleg þjálfun, bæði heima og erlendis, auk góðra möguleika til
að vaxa í starfi.
Icepharma leggur áherslu á gott og hvetjandi starfsumhverfi. Flestir birgjar okkar
eru leiðandi á sínu sviði í heiminum, sem skipar Icepharma í fremstu röð fyrirtækja
í heilbrigðisgeiranum á Íslandi. Þekking þeirra og reynsla er okkar styrkur.
Pfizer er stærsta lyfjafyrirtæki í heimi, stofnað árið 1849, og er leiðandi í rannsóknum og þróun lyfja. Starfsmenn fyrirtækisins um allan heim eru yfir 110.000.
Markmið fyrirtækisins er að veita sjúklingum bestu meðferð sem kostur er á, í samvinnu við heilbrigðiskerfið, og tryggja þeim lengra og betra líf. Pfizer hefur
markaðsleyfi fyrir u.þ.b. 80 mismunandi lyf á Íslandi og er hlutdeild fyrirtækisins í íslenskum lyfjamarkaði 9%.
Icepharma er eitt af stærstu fyrirtækjum landsins í sölu- og markaðssetningu á lyfjum, heilbrigðisvörum og lækningatækjum. Hjá fyrirtækinu starfa 75 manns
með víðtæka menntun og þekkingu á heilbrigðisgeiranum. Icepharma er fyrirmyndarvinnustaður og við leggjum áherslu á jafnrétti og fjölskylduvænt umhverfi.
Frá 1. desember nk. mun Icepharma annast alla sölu- og markaðsstarfsemi Pfizer á Íslandi.
Þess vegna leitum við að markaðsstjóra fyrir Pfizer.
Markaðsstjóra fyrir
Icepharma leitar að
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 28. JÚNÍ 2010.
Umsóknir skal senda á netfangið bessi@icepharma.is.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bessi H. Jóhannesson,
framkvæmdastjóri Lyfjasviðs, á framangreindu netfangi.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Nánari upplýsingar veita:
Kristín Guðmundsdóttir,
kristin@hagvangur.is
Brynhildur Halldórsdóttir,
brynhildur@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 28. júní nk.
Umsóknir óskast fylltar út
á www.hagvangur.is
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólapróf á sviði tölvunar- eða kerfisfræði, sambærilegt nám eða umtalsverð starfsreynsla.
Reynsla af prófunum og aðferðum gæðastjórnunar er kostur.
Reynsla af notkun gallatilkynningakerfa og prófunartóla er kostur.
Reynsla af Agile/SCRUM hugmyndafræðinni er kostur.
Þekking á .NET, C#, SQL er kostur en þó ekki skilyrði.
Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, metnaður og hæfni í mannlegum samskiptum.
Gott vald á töluðu og rituðu máli á íslensku og ensku.
Sérfræðingur í hugbúnaðarprófunum
Starfið felst í hugbúnaðarprófunum, þ.e. gerð og framkvæmd prófanatilvika, einingaprófana og
kerfisprófana, samantekt prófananiðurstaðna, villutilkynningum og skjölun
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólapróf á sviði tölvunar- eða kerfisfræði, sambærilegt nám eða umtalsverð starfsreynsla.
Þekking og reynsla af .NET, C# og SQL.
Reynsla af Agile/SCRUM hugmyndafræðinni er kostur.
Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, metnaður og hæfni í mannlegum samskiptum.
Gott vald á töluðu og rituðu máli á íslensku og ensku.
Sérfræðingur í hugbúnaðarþróun
Starfið felst í hugbúnaðarþróun, þ.e. greiningu, hönnun og forritun nýrra kerfa eða kerfishluta,
sem og viðhaldi eldri kerfa
VALITOR er eftirlitsskylt fjármálafyrirtæki á sviði greiðslumiðlunar og kortastarfsemi. VALITOR
kappkostar að veita söluaðilum, bönkum, sparisjóðum og korthöfum á ferð um heiminn
örugga, skjóta og þægilega þjónustu. Nýtt skipulag skerpir á ábyrgð og verkaskiptingu innan
fyrirtækisins, einfaldar boðleiðir og leggur grunn að snerpu í ákvarðanatöku og þjónustu.
Starfsemi VALITOR er skipt í þrjú afkomusvið:
Alþjóðalausnir, Fyrirtækjalausnir og Kortalausnir.
Stoðsvið eru fjögur: Áhættustýring, Fjármálasvið,
Upplýsingatæknisvið og Þróunar- og kynningarsvið.