Fréttablaðið - 19.06.2010, Side 8
8 19. júní 2010 LAUGARDAGUR
VITA er lífið
Alicante
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 | VITA.is
Kynntu þér ferðamöguleikana og
skráðu þig í netklúbbinn á VITA.is
Flugsæti
Verð frá 25.000 kr.
Brottför 21. júní.
1 Hver er borgarlistamaður
Reykjavíkur 2010?
2 Hver skoraði þrennu í leik
Argentínu og Suður-Kóreu á
HM í fótbolta?
3 Hversu margir fengu riddara-
krossinn á þjóðhátíðardaginn?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 66
STJÓRNMÁL Samfylkingin fagnar
ákvörðun leiðtoga Evrópusam-
bandsríkjanna um að hefja aðild-
arviðræður við Ísland, að því er
fram kemur í yfirlýsingu frá fram-
kvæmdastjórn Samfylkingarinnar.
„Íslenska þjóðin getur einungis
tekið upplýsta ákvörðun um hvort
aðild þjóni hagsmunum Íslendinga
þegar samningur liggur fyrir,“
segir í yfirlýsingunni. „Mikil-
vægt er að áfram verði vel staðið
að samningaferlinu og að þjóðin
standi saman og styðji við bakið
á samningafólki okkar, til að sem
bestur samningur náist. Þannig er
hagsmunum Íslands best þjónað.“
- gb
Samfylkingin fagnar:
Mikilvægt að fá
góðan samning
LÖGREGLUMÁL Kona sem tilkynnti
nauðgun á Akureyri í fyrrinótt
ákvað í gær að leggja ekki fram
kæru. Rannsókn málsins er því
lokið að sögn lögreglunnar á
Akureyri.
Það var rúmlega fjögur í
fyrrinótt sem tilkynnt var um
nauðgun á tjaldstæðinu við
Þingvallastræti. Karlmaður
var handtekinn og rúmlega tví-
tug kona fór til aðhlynningar á
sjúkrahúsinu á Akureyri.
Manninum, sem er á svipuð-
um aldri og konan, var sleppt út
haldi í gær. -jss
Tilkynnt um nauðgun:
Konan lagði
ekki fram kæru
STJÓRNMÁL Sitt sýnist hverjum um
það hvort leiðtogaráð Evrópusam-
bandsins hafi í yfirlýsingu sinni
á fimmtudag, þar sem samþykkt
var að hefja aðildarviðræður við
Ísland, gert kröfu til Íslendinga
um að leysa Icesave-málið áður
en af aðild geti orðið.
Í yfirlýsingunni segir orðrétt að
viðræðurnar beinist meðal annars
að því að Ísland „taki á núverandi
skuldbindingum, eins og þeim sem
Eftirlitsstofnun EFTA hefur bent á
samkvæmt EES-samningnum.“
Þarna getur varla verið átt við
annað – í það minnsta meðal ann-
arra atriða sem tengjast eftirlits-
stofnuninni ESA – en forúrskurð
hennar frá 26. maí síðastliðnum,
þar sem komist er að þeirri nið-
urstöðu að Íslandi beri að greiða
lágmarkstryggingu innstæðna á
Icesave-reikningunum.
Fréttavefurinn EUobserver.com,
sem sérhæfir sig í fréttum af Evr-
ópusambandinu, segist hafa heim-
ildir fyrir því að Hollendingar hafi
átt stóran þátt í að semja texta yfir-
lýsingarinnar, að því leyti er hún
snertir Ísland. Bæði Bretar og Hol-
lendingar hafi auk þess gert kröfu
um að í yfirlýsingunni sé minnst á
deilu þeirra við Ísland.
„Við ætlum ekki að koma í veg
fyrir viðræðurnar, en það eru
gerðar strangar kröfur til Íslands,“
sagði Jan-Peter Balkanende, for-
sætisráðherra Hollands, við aðra
leiðtoga Evrópusambandsins, að
því er EUobserver hefur eftir
ónefndum evrópskum stjórnarer-
indreka.
Íslendingar hafa ekki viljað líta
svo á að þessi tvö mál, aðildarvið-
ræður við ESB og Icesave-deilan,
séu tengd á neinn hátt.
„Þessu hefur ekki verið bland-
að saman á nokkurn hátt af okkar
hálfu,“ segir Steingrímur J. Sig-
fússon fjármálaráðherra í samtali
við Fréttablaðið.
Hann segir samskipti um Ice-
save-deiluna hafa haldið áfram
þrátt fyrir biðstöðu um hríð, og
þær viðræður verði að hafa sinn
gang alveg óháð Evrópusamband-
inu.
Fyrrgreindur stjórnarerindreki,
sem EUobserver vitnar til, segir
hins vegar ljóst að gangur við-
ræðnanna muni ráðast af því að hve
miklu leyti Íslendingar standa við
„alþjóðlegar skuldbindingar sínar“
eins og hann orðar það. „Þeir verða
að leysa þetta áður en af aðild verð-
ur.“
Í Fréttablaðinu í gær er haft eftir
Össuri Skarphéðinssyni utanríkis-
ráðherra að aldrei hafi leikið neinn
vafi á því, af okkar hálfu, að Íslend-
ingar ætli að standa við skuldbind-
ingar sínar. gudsteinn@frettabladid.is
Aðildarviðræður
tengdar Icesave
Hollendingar og Bretar eru sagðir hafa haft áhrif á orðalag samþykktar leið-
togaráðs Evrópusambandsins um aðildarviðræður við Ísland. Hollendingar hafi
átt stóran þátt í að semja yfirlýsinguna, þar sem vísað er til forúrskurðar ESA.
LEIÐTOGAR EVRÓPUSAMBANDSINS Á FUNDI SÍNUM 17. JÚNÍ Á myndinni sjást meðal
annars Jose Luis Rodriguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar, David Cameron,
forsætisráðherra Bretlands, og Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar.
NORDICPHOTOS/AFP
NÁTTÚRA Sandsílastofninn á Íslandi
hefur minnkað á síðustu árum,
meðan annars vegna hlýnunar sjáv-
ar. Nýliðun sandsíla brást á árun-
um 2005 og 2006 og hefur það haft
gífurleg áhrif á margar sjófuglsteg-
undir við strendur landsins. Krían
er ein þeirra fuglategunda sem
byggir afkomu sína á sandsílum
og Jón Einar Jónsson, hjá Háskóla-
setri Snæfellsness, segir að stofn-
inum hafi farið hrakandi frá árinu
2004. Hann sér ekki breytingu til
hins betra nú í ár.
„Þær eru að verpa einu til tveim-
ur eggjum í hreiður og hafa seink-
að varptímanum um 5 eða 6 daga,“
segir Einar. „Hlýnun hafsins og
breytingar á seltustigi fyrir sunn-
an landið gera það meðal annars að
verkum,“.
Erpur Snær Hansen, hjá Nátt-
úrustofu Suðurlands í Vestmanna-
eyjum, segir að varpstofn lundans,
sem byggir fæði sitt nær eingöngu
á sandsílunum, hafi einnig minnkað
töluvert á síðustu árum.
„Þetta er í fyrsta skipti sem við
sjáum enga nýliðun í stofninum,“
segir Erpur. „En við erum vongóð
því varpið var 10 dögum fyrr í ár.“
Hafró er að leggja í rannsóknir á
sandsílum í sumar og eru niðurstöð-
ur væntanlegar með haustinu.
- sv
Bág afkoma sandsíla hefur gífurleg áhrif á stofna sjófugla við strendur landsins:
Krían í miklum erfiðleikum
KRÍA Ein af þeim mörgu sjófuglum sem
byggja fæði sitt á sandsílum.
SAMGÖNGUMÁL Vonast er til þess
að ferjusiglingar í Landeyjahöfn
hefjist 21. júlí næstkomandi.
Unnið er á vöktum allan sólar-
hringinn fram í miðjan júlí.
Dýpkun hafnarinnar verður
lokið 15. júlí. Um 100 þúsund
rúmmetrum meira af grjóti
hefur verið sótt á Seljalands-
heiði en upphaflega var gert ráð
fyrir.
Gert er ráð fyrir að hægt
verði að hefja siglingar 21. júlí
ef ekkert óvænt kemur upp á.
Eldgosið í Eyjafjallajökli hefur
nú þegar sett strik í reikninginn
auk þess sem veður var óhag-
stætt í vetur. - þeb
Landeyjahöfn á lokastigi:
Siglingar
hefjast 21. júlí
LANDEYJAHÖFN Veður og eldgosið í
Eyjafjallajökli töfðu framkvæmdina.
Grunnskólar sameinaðir
Rekstur grunnskólanna tveggja í
Grindavík verður sameinaður á næst-
unni. Þá verður ráðinn einn skóla-
stjóri yfir báða skólana til að tryggja
heildstætt skólastarf og hagræðingu
í rekstri. Þetta kemur fram í málefna-
samningi nýs meirihluta í Grindavík.
GRINDAVÍK
HEILBRIGÐISMÁL Meðalbiðtími
eftir hjartaaðgerðum hefur ekki
verið styttri í fimm ár samkvæmt
heimasíðu landlæknis.
Biðtími eftir aðgerðum á þessu
ári er einn til tveir mánuðir óháð
aðgerð. Í fyrra var biðtími vegna
hjartalokuaðgerða fjórir til fimm
mánuðir en tveir til þrír mánuðir
vegna kransæðaaðgerða. Árið 2008
var biðtíminn lengri. Markmiðið er
að biðtími eftir hjartaskurðaðgerð-
um sé sem stystur. Sjúklingar sem
ekki séu í forgangi bíði aldrei leng-
ur en þrjá mánuði. - þeb
Bið eftir hjartaaðgerð styttist:
Meðalbiðtími
eru fimm ár
Nóg að gera hjá lögreglu
Töluverður erill hefur verið hjá
lögreglunni á Akureyri síðustu nætur
vegna Bíladaga sem eru haldnir þar.
Lögregla hafði afskipti af þó nokkrum
ökumönnum aðfaranótt föstudags,
auk þess sem tilkynningar bárust um
reykspólandi og háværa bíla.
LÖGREGLUFRÉTTIR
VEISTU SVARIÐ?