Fréttablaðið - 03.07.2010, Page 41
LAUGARDAGUR 3. júlí 2010 7
Skrifstofustjóri auðlindaskrifstofu sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðuneytisins
Vegna tímabundins leyfi s skrifstofustjóra auðlindaskrifstofu
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins næstu tvö ár er
starfi ð laust til umsóknar.
Auðlindaskrifstofan annast stjórnsýslu er lýtur að nýtingu
auðlinda hafsins. Undirbýr lagafrumvörp og semur
reglugerðir á því sviði svo og álitsgerðir og greinargerðir.
Annast samskipti við Hafrannsóknastofnun vegna tillagna
um nýtingu nytjastofna sjávar. Ennfremur samskipti við
Fiskistofu og Landhelgisgæslu Íslands vegna framkvæmdar
reglna, er lúta að eftirliti með nýtingu auðlinda. Þá annast
skrifstofan framkvæmdaatriði fi skveiðisamninga og erlent
samstarf sem því fylgir.
Umsækjandi þarf að hafa háskólagráðu sem nýtist í starfi nu
og mjög æskilegt er að viðkomandi hafi góða þekkingu á
sjávarútvegi og fi skveiðistjórnun, reynslu af stjórnsýslu og
stjórnun og hæfni til að stýra samningum við önnur ríki.
Umsóknarfrestur er til og með 18. júlí 2010. Umsóknir
er hafi að geyma upplýsingar um menntun, fyrri störf,
meðmælendur og annað er máli skiptir, sendist bréfl ega til
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, Skúlagötu 4,
150 Reykjavík eða í tövupósti á postur@slr.stjr.is
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið, 1. júlí 2010.
Það er
Hey, okkur vantar
forstöðumann markaðsmála!
800 7000 – siminn.is
Síminn ætlar að ráða afreksmanneskju til að leiða markaðsdeild
fyrirtækisins og skipuleggja markaðsmálin í samstarfi við
framkvæmdastjóra Markaðssviðs.
Við hvetjum þig til að sækja um starfið ef þú vilt taka þátt í að móta
framtíðina hjá einu öflugasta samskiptafyrirtæki landsins og ef þú hefur:
• Háskólapróf í markaðsfræðum eða sambærilegu
• Minnst tveggja ára reynslu sem stjórnandi og skipuleggjandi
markaðsstarfs
• Náð mælanlegum árangri í markaðsstarfi
• Góða forystu- og stjórnunarhæfileika
• Unun af hópvinnu
• Yfirsýn og skipulagsgáfu
• Getu til að vinna vel undir miklu álagi
• Hæfileika til að sjá skóginn fyrir trjánum
• Lesið allt, frá Kotler til .... hvað heitir hinn aftur?
• Þekkingu á SOV og SOM og visku til að greina þar á milli
• Bein í nefinu
Umsóknum þarf að skila á netfangið umsoknir@siminn.is fyrir kl. 16.00
föstudaginn 9. júlí.
Allar nánari upplýsingar veitir Baldur Gísli Jónsson hjá Mannauðssviði
í síma 893 6489. Í umsókn skal koma fram lýsing á náms- og starfs-
ferli sem og nöfn og símanúmer umsagnaraðila. Gætt verður fyllsta
trúnaðar varðandi allar umsóknir, fyrirspurnir og persónulegar upp-
lýsingar.
Hjá Isavia ohf. starfa um 550 manns. Helstu verkefni
fyrirtækisins eru að sjá um uppbyggingu og rekstur
flugvalla og veita flugleiðsöguþjónustu fyrir innanlands-
og millilandaflug auk yfirflugþjónustu yfir Norður-
Atlantshafið. Isavia ohf. leggur áherslu á jafnan rétt karla
og kvenna til starfa.
Spennandi nám í
alþjóðlegu umhverfi
ISAVIA ohf. óskar eftir
nemum í flugumferðarstjórn
Hæfnis- og menntunarkröfur:
• Gerð er krafa um að umsækjandi hafi lokið viðurkenndu
grunnnámi í flugumferðarstjórn og hafi gilt skirteini nema í
flugumferðarstjórn.
• Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi gott vald á íslenskri og
enskri tungu.
• Viðkomandi þarf að vera góður í mannlegum samskiptum,
vera sjálfstæður í vinnubrögðum og hafa óflekkað mannorð.
• Umsækjandi þarf að geta hafið nám í lok ágúst.
Starfsstöðvar flugumferðarstjóra hjá Isavia eru á Keflavíkurflugvelli,
Reykjavíkurflugvelli og Akureyrarflugvelli.
Umsóknum skal skilað rafrænt inn á heimasíðu Keflavíkurflugvallar
www.kefairport.is/atvinna
Umsóknarfrestur er til 30. júlí og umsóknum skulu fylgja afrit af
skírteinum og öðru því er máli skiptir við mat á umsækjendum.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um námið.
Upplýsingar um námið veitir Bjarni Tryggvason þjálfunarstjóri
flugleiðsögusviðs í síma 425-6000.
sími: 511 1144