Fréttablaðið - 03.07.2010, Page 60
32 3. júlí 2010 LAUGARDAGUR
BAKÞANKAR
Atla Fannars
Bjarkasonar
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
Hæ, ég ætla
bara að fá
sendilinn!
Ég spila
bridge á
þriðju-
dögum.
„Hvers vegna
eru hraðatak-
markanir?“
Pabbi, hvernig er að vera
sjálfstæður, frjáls og fullorðinn
maður?
Það er svolítið eins og
að vera unglingur...
...Nema án
frelsisins.
Hvers vegna spörum
við ekki peningana sem
fara í jóla-, afmælis- og
sumargjafir...
...Og gefum þeim bara pappa-
kassa endrum og eins í staðinn? Það er
pæling... Má þetta vera nýja herberg-
ið mitt?
a. A
ldre
i!
b. Þ
ega
r þe
ir
eru
fyr
ir.
c. Á
þri
ðju
-
dög
um
.
Hve
næ
r er
viðe
igan
di a
ð
key
ra á
gan
gan
di
veg
fare
ndu
r?
a. A
ldre
i!
b. Þ
ega
r þe
ir
eru
fyr
ir.
c. Á
þri
ðju
-
dög
um
.
Hve
næ
r er
viðe
igan
di a
ð
key
ra á
gan
gan
di
veg
fare
ndu
r?
Það myndi vera a! „Til
að vita hversu hratt
maður á að keyra
undir áhrifum
áfengis“
Þetta er
of auð-
velt!
....................................................................................
VILTU
VINNA
MIÐA?
10. HVERVINNUR!
Vinningar afhendir í ELKO Lindum. 149 kr/skeytið.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
FULLT AF
AUKAVI
NNINGUM
TÖLVULEI
KIR • DVD
MYNDIR
GOS OG
MARGT F
LEIRA!
SENDU SM
S
SKEYTIÐ ESL
KD
Á NÚMER
IÐ 1900
OG ÞÚ GÆ
TIR UNNIÐ
MIÐA!
Sykur er ógeðslegur og síðustu vikur hef ég reynt að borða minna af honum. Ég
borða voðalega lítið nammi, þannig að ég
þarf ekki að hafa áhyggjur af því að skera
niður neyslu á Lindubuffi og fílakaramellum.
Ég er hins vegar búinn að vera háður gos-
drykkjum lengi. Eina sem ég lét mig dreyma
um sem barn var að eiga ísskáp fullan af litl-
um gosdósum en það endurspeglar grátlegt
metnaðarleysi mitt gagnvart því sem hefur
raunverulega merkingu í lífinu. Ég þurfti því
aðeins að ráðast í kvalarfullan og hugsan-
lega lífshættulegan niðurskurð á kóki.
ÉG þoli ekki öfgar. Þess vegna ákvað ég að
það væri ekki tímabært að hætta alveg að
drekka gos. Eftir að hafa legið yfir málinu
klukkustundum saman, reiknað út áhættu-
þætti, kostnað og hugsanlegan ávinning
ákvað ég að hætta að drekka kók með mat.
Á virkum dögum. Í staðinn drekk ég vatn og
horfi dreymandi á jökulkaldar kókdósir sad-
istanna sem vinna með mér, en þeim þykir
fátt skemmtilegra en að stilla dósunum upp
þannig að ég sjái að þær séu kaldar. Og girni-
legar. Ómótstæðilegar.
LÍKAMI minn hefur gert þetta litla verk-
efni að mannýgri þrautargöngu. Áður en
átakið hófst mundi ég ekki eftir að hafa
keypt mér súkkulaði árum saman. Í
dag byrja ég að hugsa um lostafullt
kynlíf með hópi súkkulaðihjúpaðra
karamella með lakkrís í stað augna
aðeins tveimur mínútum eftir að ég klára
hádegismatinn. Ég reyni að halda einbeit-
ingu á meðan karamellurnar baða mig í
blíðu sinni og ég ranka ekki við mér fyrr en
sælgætissjálfsalinn á neðri hæðinni þakkar
mér fyrir viðskiptin. Þar með lýkur kvölinni
tímabundið.
EFTIR kvöldmat tekur sama við. Ég hef
verið latur við eldamennsku upp á síðkastið
og kem því yfirleitt með tilbúinn mat heim.
Eftir að ég klára hann og þamba síðasta
vatnssopann byrja karamellurnar að ásækja
mig. Þær velta mér upp úr kurluðum lakkrís
á meðan þær mata mig á alls kyns framandi
sælgæti. Þetta er nýtt fyrir mér. Ég er að
upplifa tilfinningar sem ég þekki ekki og það
er gera útaf við mig.
EINU sinni var ég frjáls. Ég drakk kók með
hverri máltíð og hló af sælgætisfíkn fólks.
Nammibarir voru í mínum huga samkomu-
staðir barna og óléttra kvenna. Svona eins
og innisundlaugar. Ég gat farið út í sjoppu og
horft yfirlætislega á sælgætisúrvalið sem,
þrátt fyrir litadýrð og fögur fyrirheit, freist-
aði mín ekki. En í dag er öldin önnur. Ég er
hættur að drekka gos og hef misst stjórn á
líkama mínum.
NIÐURSTAÐAN er sú að kók hefur stjórnað
lífi mínu síðustu ár. Nú þegar líkaminn hefur
tekið við stjórninni er allt komið í rugl. Guð
hjálpi mér.
Karamellurnar