Fréttablaðið - 17.07.2010, Side 2

Fréttablaðið - 17.07.2010, Side 2
2 17. júlí 2010 LAUGARDAGUR STJÓRNMÁL Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna og vara- formaður fjárlaganefndar, segir ummæli ýmissa flokksmanna hans varðandi aðgerðarleysi flokksins þegar kemur að kaupum Magma Energy á hlut í HS orku, vera röng og ómakleg. Flokkurinn hafi reynt að koma í veg fyrir kaupin. Björn segir að einkavæðing- arferlið hafi hafist í ríkisstjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks og haldið áfram eftir ákvarðanir bæjarstjórna Reykjanesbæjar og Reykjavíkur um sölu í fyrirtækinu. Sömu flokkar hafi verið í meirihluta í höfuðborginni en Sjálfstæðisflokk- ur einn suður með sjó. Vinstri græn hafi reynt að koma í veg fyrir málið. Málið hafi ekki verið á höndum rík- isstjórnarinnar og það sé fráleitt að kenna Vinstri grænum um það, hvað þá forystu flokksins. „Það er gjörsamlega galið að mínu mati, bæði af mínum flokksmönnum og öðrum, að ætla að kenna VG um málið,“ segir hann, og bendir á að fyrrnefndir flokkar hafi ekki breytt afstöðu sinni varðandi einkavæð- ingu auðlinda. Björn Valur segir að reynt sé að koma í veg fyrir söluna, en stjórnvöld hafi ekki fjármuni til að ganga inn í samninginn. Því sé annarra leiða leitað og til dæmis sé til skoðunar hvort um málamynda- gjörning sé að ræða sem hægt sé að rifta. - kóp Varaformaður fjárlaganefnar gagnrýnir samflokksmenn sína: Ummæli flokksmanna ómakleg BJÖRN VALUR Varaformaður fjárlaga- nefndar telur að ummæli ýmissa flokks- félaga hans í Vinstri grænum í garð flokksforystunnar séu ómakleg. „Alexander, ertu búinn að finna orminn í þér?“ „Já, það er nóg af ormum í mér.“ Alexander Briem fer með hlutverk Orms Óðinssonar í væntanlegri kvikmynd sem gerð er eftir bókinni Gauragangi eftir Ólaf Hauk Símonarson. ORKUMÁL Orkuveitu Reykjavíkur verður skipt upp í tvö fyrirtæki fyrir áramót. Þá rennnur út marg- framlengdur frestur fyrirtækisins til þess að aðskilja samkeppnishluta og einkaleyfishluta fyrirtækisins í samræmi við Evrópureglur. Slík uppskipting hefur þegar átt sér stað hjá öðrum orkufyrirtækjum í landinu, þar sem orkuframleiðsla hefur verið sett inn í eitt fyrirtæki, svokallaðan samkeppnishluta, en orkudreifing í annan hluta, svokall- aðan einkaleyfishluta. Dæmi um slíka uppskiptingu eru HS orka og HS veitur, tvö fyrirtæki sem áður mynduðu Hitaveitu Suðurnesja. Borgarráð kaus nýlega sérstaka eigendanefnd til að móta eigenda- stefnu vegna uppskiptingar fyrir- tækisins. Sú nefnd á líka að fjalla um hlutverk sveitarfélaganna sem eigenda auðlinda sem tengjast starfsemi Orku- veitu Reykja- víkur og ákveða hvernig staðið verður að eign- arhaldi þeirra eftir uppskipt- ingu fyrirtæk- isins. Stjórn OR lauk stefnumót- unarvinnu sem tengist þessu á síðasta kjörtíma- bili en sveitarstjórnirnar sjálfar áttu eftir að taka hana til umfjöll- unar. Eigendanefndin mun annast þá umfjöllun. Dagur B. Eggertsson, formað- ur eigendanefndarinnar, segir að einnig komi til skoðunar hvernig hlutverkum verði skipt milli stjórn- ar og stjórnenda orkufyrirtækja borgarinnar. - pg Eigendanefnd Orkuveitu Reykjavíkur er að taka til starfa: OR skipt í tvennt um áramót DAGUR B. EGGETSSON VIÐ HELLISHEIÐARVIRKJUN Frestur Orkuveitunnar til að aðskilja samkeppn- ishluta og einkaleyfishluta fyrirtækisins rennur út um áramótin. MENNING Menntamálaráðherra hefur, að tillögu húsafriðunar- nefndar, friðað Gljúfrastein í Mosfellsdal. Gljúfrasteinn, sem var heim- ili Halldórs og Auðar Laxness, var reistur 1945 eftir teikningum Ágústs Pálssonar arkitekts. Telur húsafriðunarnefnd Gljúfrastein hafa gildi sem dæmi um verk Ágústs og þróun funksjónalism- ans um miðja síðustu öld. Þá sé húsið athyglisvert vegna samspils þess við náttúru og staðhætti. Nær friðunin til ytra byrðisins. Rúmlega fjögur hundruð bygg- ingar eru friðaðar á landinu öllu. Af þeim eru um 150 friðaðar með ákvörðun stjórnvalda en hinar vegna aldurs. - bþs Gott dæmi um höfundarverk: Gljúfrasteinn friðaður GLJÚFRASTEINN Húsið var reist árið 1945 eftir teikningum Ágústs Pálssonar. BANDARÍKIN Stöðvun olíulekans í Mexíkóflóa gengur vel að sögn forsvarsmanna olíufélagsins BP. Hann var stöðvaður í tilrauna- skyni á fimmtudag til þess að kanna ástand olíuborholunnar. Ef þrýstingur í holunni helst hár gæti það þýtt að engar aðrar skemmdir hafi orðið á henni. Ef hann fellur gæti það þýtt fleiri skemmdir. Barack Obama Banda- ríkjaforseti sagði í gær að þrátt fyrir góðar fréttir væri þessu ekki lokið. Ekki er víst hvað tekur við ef tilraunin gengur vel. Mögu- lega verður borholunni lokað en líklegra þykir að fyrirtækið muni hefja störf þar á nýjan leik. - þeb Forsvarsmenn BP bjartsýnir: Stöðvun olíu- leka gengur vel DÓMSTÓLAR Maður á fertugsaldri var í gær dæmdur í sex mán- aða fangelsi, þar af fjóra skil- orðsbundna, fyrir manndráp af gáleysi. Maðurinn ók ölvaður á röngum vegarhelmingi á Grindavíkurvegi og lenti í árekstri við bíl sem kom úr gagnstæðri átt. Ökumaður þess bíls lést en ölvaði ökumaður- inn slasaðist talsvert. Í dómnum kemur fram að maðurinn gekkst við sök undan- bragðalaust og mun hann ekki áfrýja. - sb Manndráp af gáleysi: Ölvaður öku- maður dæmdur STJÓRNSÝSLA Fjármálaeftirlit- ið svaraði ekki fyrirspurnum umboðsmanns Alþingis um til- mæli sem FME og Seðlabankinn gáfu út í kjölfar dóms Hæstarétt- ar um gengistryggð lán áður en frestur sem umboðsmaður setti rann út í gær. Sigurður G. Valgeirsson, upp- lýsingafulltrúi FME, segir að umboðsmaður hafi veitt umbeð- inn frest fram í næstu viku. FME hafi viljað vanda til svarsins og hafi þurft lengri tíma vegna sum- arleyfa og anna. Ekki fékkst svar frá Seðlabankanum í gær um hvort Seðlabankinn hefði svarað tilmælum umboðsmanns. - pg Tilmæli Seðlabanka og FME: FME fékk frest frá umboðs- manni Alþingis AFGANISTAN, AP Fimm starfsmönn- um heilbrigðisráðuneytisins í Afganistan var rænt í Kandahar í gær. Uppreisnarmenn drápu einnig opinberan starfsmann annars staðar í héraðinu. Fólkið sem var rænt er hluti læknateymis sem var á leiðinni til Kandahar í bíl. Um var að ræða tvo lækna, hjúkrunarfræð- ing, lyfjafræðing og bílstjóra þeirra, en mannræningjarnir neyddu hann til að stöðva bílinn á leiðinni. Talíbanar hafa rænt og myrt fjöldann allan af opinberum starfsmönnum síðustu vikur. - þeb Stöðvuðu bíl starfsmanna: Talíbanar rændu læknum Nýja laugin mjög vinsæl 8.400 gestir hafa komið í nýju sund- laugina á Blönduósi á þeim mánuði sem hún hefur nú verið opin. Það er miklu meiri fjöldi en búist hafði verið við, en laugin verður formlega vígð á Húnavöku í dag. BLÖNDUÓS HAÍTÍ Íslensk stjórnvöld hafa veitt 96,1 milljón króna í hjálpar- og uppbyggingarstarf á Haítí frá því að jarðskjálfti reið þar yfir fyrir rúmu hálfu ári. Þau hafa því nú þegar staðið við öll þau framlög sem lofað hafði verið, að sögn Auðuns Atlasonar, deildarstjóra í utanríkisráðuneytinu. Langstærstur hluti þess var kostnaður við ferð rústabjörgun- arsveitar á vegum Landsbjarg- ar. Sjö milljónir króna hafa farið til Matvælaaðstoðar Samein- uðu þjóðanna og 25 milljónir til frjálsra félagasamtaka á borð við Hjálparstarf kirkjunnar og Rauða krossinn. Fréttastofan CNN hefur greint frá því að innan við tvö prósent af þeim 5,3 milljörðum Bandaríkja- dala, sem ríkisstjórnir heims lof- uðu til uppbyggingar á vegum Sameinuðu þjóðanna eftir jarð- skjálftann, hafi skilað sér. Aðeins fjögur lönd hafi afhent fé til sér- stakrar stofnunar Sameinuðu þjóð- anna; Noregur, Brasilía, Eistland og Ástralía. Þessu fé var lofað í verkefnið á ráðstefnu í mars. Rík- isstjórn Íslands tilkynnti um öll sín framlög á vettvangi SÞ og er ekki meðal þeirra ríkja sem frétt CNN á við um að sögn Auðuns. Löndin sem ekki hafa staðið við sitt hafa tíma fram á mitt næsta ár til þess. Bandaríkin lofuðu til dæmis einum milljarði dollara og Venesúela 1,3 milljörðum, en hvor- ugt landið hefur nokkuð greitt. Venesúela hefur þó afskrifað hluta af skuldum Haítí. Spánn, Frakk- land og Kanada eru einnig meðal landa sem eiga eftir að greiða háar fjárhæðir. Bill Clinton, fyrrum Bandaríkja- forseti og sérstakur erindreki SÞ fyrir Haítí, ætlar að þrýsta á rík- isstjórnirnar að standa við loforð sitt sem fyrst og veita upplýsingar um hvenær sé von á fé. Hann seg- ist telja að efnahagsástand heims- ins beri að hluta til ábyrgð á seina- ganginum. Hjálparstarf hefur þó gengið vel samanborið við aðrar hamfar- ir, að sögn talsmanns SÞ á Haítí. Fleiri stofnanir starfa á svæðinu, til dæmis Læknar án landamæra og Rauði krossinn, ásamt einka- sjóðum sem hafa verið stofnað- ir vegna skjálftans. Læknar án landamæra hafa fengið um 112 milljónir dollara í styrki og eytt 65 þeirra nú þegar og Rauði krossinn hefur eytt 148 milljónum af þeim 468 sem hann hefur fengið. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um frekari framlög íslenska rík- isins til hjálparstarfsins en það kemur til greina, að sögn Auðuns. Það yrði þá gert í samvinnu við alþjóðastofnanir og frjáls félaga- samtök eins og SÞ og Rauða kross- inn. thorunn@frettabladid.is Ísland hefur staðið við framlög til Haítí Íslensk stjórnvöld hafa veitt 96 milljónum króna í hjálparstarf á Haítí. Aðeins fjögur erlend ríki sem lofuðu aðstoð á ráðstefnu í mars hafa staðið við sitt. 98 prósent þeirra framlaga hafa enn ekki skilað sér í hjálparstarfið. PORT-AU-PRINCE Enn ríkir mikil neyð á Haítí eftir jarðskjálftann. Þessi stúlka gekk um rústir húsa í höfuðborginni Port-au-prince í síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/AP milljón króna hefur verið veitt, af íslenskum stjórnvöldum, til hjálpar- og uppbyggingar- starfs á Haítí. 96,1 SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.