Fréttablaðið - 17.07.2010, Side 27

Fréttablaðið - 17.07.2010, Side 27
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 „Um helgina ætla ég að keyra hægt og rólega upp í Borgarfjörð á tveimur dögum með fjölskyld- unni, stoppa einhvers staðar á leiðinni og sofa í tjaldi og skoða allt sem fyrir augu ber,“ segir Fríða Rós Valdimarsdóttir, fram- kvæmdastýra Sterk. Spurð hvort einhverjir staðir komi til greina frekar en aðrir fyrir tjaldið svarar Fríða: „Ég var að hugsa um Botnsdal, ef við byrjum þar þá þurfum við bara að keyra stutt til að byrja með. Svo endum við örugglega í Húsafelli og komum heim á mánudaginn.“ Fríða segist alltaf fara í eina útilegu á ári. „Ég hlakka til allt árið, því mér finnst svo gott að sofa í tjaldi. Samt fer ég bara einu sinni,“ segir hún og hlær. Fríða segist ekkert vera bund- in af því að tjalda nálægt raf- magni því hún þarf ekki að hita tjaldið upp með rafmagnshitara. „Við erum bara með Ronju, dótt- ur okkar, hún er rosalega góður hitari. Við vorum uppi í Drangs- nesi í fyrra, alveg í viku og það var rosalega kalt, bara 9 gráður á daginn og kannski svona 2 á nótt- unni. Ronja fór alltaf að sofa um 9 og þegar við komum upp í um 11 eða 12 þá var tjaldið alltaf heitt og hún alveg kófsveitt í svefnpok- anum. Fríða segist hlakka mikið til að fara þessa leið. „Hvalfjörðurinn er svo fallegur og Borgarfjörðurinn líka og maður fer alltaf svo hratt í gegn. Mig langar að skoða allt vel og vandlega núna og gá hvað þarna er að finna, fara í göngu- ferðir og njóta náttúrunnar.“ emilia@frettabladid.is Hlakkar allt árið til þess að geta sofið í tjaldi Fríða Rós Valdimarsdóttir, framkvæmdastýra Sterk, vinnur þessa dagana að gerð fræðsluefnis til að draga úr eftirspurn eftir vændi. Hún gefur sér þó tíma til að skreppa úr bænum með fjölskyldunni yfir helgina. Fríða og Ronja, dóttir hennar, hita sig upp fyrir útileguna í garðinum heima. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA BRYGGJUHÁTÍÐ á Drangsnesi er haldin í fimmt- ánda sinn í dag. Dagurinn hefst með dorgveiði barn- anna í Kokkálsvík og endar með dansleik í samkomu- húsinu Baldri í kvöld. Sængurfatnaðurinn er ofinn úr gæða bómullardamask. Yfir 30 tegundir af sængurfatnaði til brúðargjafa. Íslensk hönnun á góðu verði. Auglýsingasími Allt sem þú þarft…

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.