Fréttablaðið - 17.07.2010, Page 27
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Um helgina ætla ég að keyra
hægt og rólega upp í Borgarfjörð
á tveimur dögum með fjölskyld-
unni, stoppa einhvers staðar á
leiðinni og sofa í tjaldi og skoða
allt sem fyrir augu ber,“ segir
Fríða Rós Valdimarsdóttir, fram-
kvæmdastýra Sterk.
Spurð hvort einhverjir staðir
komi til greina frekar en aðrir
fyrir tjaldið svarar Fríða: „Ég
var að hugsa um Botnsdal, ef við
byrjum þar þá þurfum við bara að
keyra stutt til að byrja með. Svo
endum við örugglega í Húsafelli
og komum heim á mánudaginn.“
Fríða segist alltaf fara í eina
útilegu á ári. „Ég hlakka til allt
árið, því mér finnst svo gott að
sofa í tjaldi. Samt fer ég bara einu
sinni,“ segir hún og hlær.
Fríða segist ekkert vera bund-
in af því að tjalda nálægt raf-
magni því hún þarf ekki að hita
tjaldið upp með rafmagnshitara.
„Við erum bara með Ronju, dótt-
ur okkar, hún er rosalega góður
hitari. Við vorum uppi í Drangs-
nesi í fyrra, alveg í viku og það
var rosalega kalt, bara 9 gráður á
daginn og kannski svona 2 á nótt-
unni. Ronja fór alltaf að sofa um
9 og þegar við komum upp í um 11
eða 12 þá var tjaldið alltaf heitt
og hún alveg kófsveitt í svefnpok-
anum.
Fríða segist hlakka mikið til að
fara þessa leið. „Hvalfjörðurinn er
svo fallegur og Borgarfjörðurinn
líka og maður fer alltaf svo hratt
í gegn. Mig langar að skoða allt
vel og vandlega núna og gá hvað
þarna er að finna, fara í göngu-
ferðir og njóta náttúrunnar.“
emilia@frettabladid.is
Hlakkar allt árið til þess
að geta sofið í tjaldi
Fríða Rós Valdimarsdóttir, framkvæmdastýra Sterk, vinnur þessa dagana að gerð fræðsluefnis til að draga
úr eftirspurn eftir vændi. Hún gefur sér þó tíma til að skreppa úr bænum með fjölskyldunni yfir helgina.
Fríða og Ronja, dóttir hennar, hita sig upp fyrir útileguna í garðinum heima. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BRYGGJUHÁTÍÐ á Drangsnesi er haldin í fimmt-
ánda sinn í dag. Dagurinn hefst með dorgveiði barn-
anna í Kokkálsvík og endar með dansleik í samkomu-
húsinu Baldri í kvöld.
Sængurfatnaðurinn er ofinn úr gæða bómullardamask.
Yfir 30 tegundir af sængurfatnaði til brúðargjafa.
Íslensk hönnun á góðu verði.
Auglýsingasími
Allt sem þú þarft…