Fréttablaðið - 17.07.2010, Page 28
„Það hefur ekki verið haldin
svona formleg hjólreiðakeppni á
Vestfjörðum áður,“ segir Hlynur
Guðmundsson, einn af skipuleggj-
endum Vesturgötunnar – fjallahjól-
reiðakeppni Höfrungs sem haldin
verður í fyrsta sinn í dag. „Það
hefur samt lengi blundað í okkur
að halda hjólakeppni.“
Hlynur segist ekki vita hvar
hugmyndin að hjólreiðakeppninni
kviknaði. „Þetta kviknaði líklega
í samtölum á milli manna í fyrra-
sumar að það gæti verið gaman að
halda hjólakeppni. En undanfarin
ár hefur verið haldin hlaupakeppni
þarna sem heitir Vesturgatan,“
segir Hlynur. Hjólreiðakeppnin
er hluti af hlaupahátíð á Vestfjörð-
um sem stendur yfir um helgina.
Óshlíðarhlaupið var þreytt í gær
og á morgun verður Vesturgatan
hlaupin.
Leiðin sem hjóluð verður er 55
kílómetrar. Byrjað er við sund-
laugina á Þingeyri. „Hjólað er frá
Þingeyri, inn að Kirkjubólsdal og
upp á Álftamýrarheiði,“ útskýrir
Hlynur og heldur áfram: „Farið
er upp í rúmlega fimm hundruð
metra hæð þannig að það er tals-
vert klifur á þessari leið. Fyrstu
fjórtán kílómetrarnir fara í það
að koma sér upp í þessa hæð. Svo
liggur leiðin beint niður að sjáv-
armáli aftur. Hjólað verður með-
fram ströndinni, bæði upp og
niður.“ Leiðin liggur fyrir Slétta-
nes og þaðan eftir ýtuvegi Elísar
Kjaran inn Dýrafjörð að flugvell-
inum þaðan sem farið er aftur að
sundlauginni á Þingeyri.
„Leiðin er eftir slóða og mal-
arvegi,“ segir Hlynur sem tekur
fram að slóðarnir séu misjafn-
ir. „Síðan er farið niður í fjöru og
hjólað í fjörugrjóti en á heildina
litið er þetta nokkuð góð leið og
gott að hjóla hana.“
Hlynur segir leiðina vinsæla
meðal hjólreiðamanna. „Ég hef
hjólað þessa leið nokkrum sinn-
um og hljóp hana í fyrsta skipti í
fyrra. Það er mjög vinsælt að fara
í dagshjólaferðir þangað.“
Hægt er að skrá sig í keppnina
á keppnisstað á milli níu og tíu en
ræst verður klukkan tíu.
martaf@frettabladid.is
Lengi blundað í okkur
Fyrsta formlega fjallahjólakeppnin á Vestfjörðum verður haldin í dag þegar Vesturgatan – fjallahjólreiða-
keppni Höfrungs verður farin. Leiðin liggur eftir slóðum og malarvegum upp í fimm hundruð metra hæð.
„Leiðin liggur eftir slóða og malarvegi,“ segir Hlynur. MYND/ÚR EINKASAFNI
Hlynur segist hafa hjólað Vesturgötuna
nokkrum sinnum.
MYND/ÚR EINKASAFNI
SKÍRNARFATIÐ í Reynivallakirkju er nátengt sögu byggðar
í Kjós. Séra Gunnar Kristjánsson sóknarprestur flytur erindi um
uppruna og sögu fatsins í dag klukkan fjögur.
Kjóll
7.990,-
mjög flo snið,
ein stærð
Kjóll
5.990,-
þessi er komin a ur
nú í rauðu og svörtu
stærðir s-xl
Kjóll
7.990,-
stærðir
s/m og m/l
Opið frá 11–18 í Smáralind.
Hlýrakjóll
5.590,-
ein stærð
Full búð af nýjum vörum
Ótrúleg verð!
Esju-Einingar ehf. framleiða forsteypt viðhaldsfrí einingarhús
í öllum stærðum og gerðum
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki