Fréttablaðið - 17.07.2010, Page 41
margt smátt
TYRKJAKAFFI Tyrkneskur málsháttur segir
að kaffi skuli vera: „Svart sem helvíti, sterkt sem
dauðinn og sætt sem ástin.“ Tyrkir fara eftir þessu
spakmæli við kaffidrykkju sína. Baunirnar eru fín-
malaðar, settar út í vatn og það soðið þrisvar sinn-
um í tyrkneskum kaffikatli með löngu látúnshand-
fangi sem kallaður er ibrik. Sykri er því næst bætt
við og stundum líka kardimommum.
ÍTALSKUR ESPRESSÓ Á Ítalíu er kaffi oft drukkið
standandi. Ítalir geta drukkið svartan espressó allan
daginn en hins vegar er cappuccino ekki drukkið eftir
hádegi vegna þess að þetta er mjólkurdrykkur og
þess vegna álitið of þungt í maga eftir máltíðir.
CA PHE SUA DA vinsæll og þjóðlegur kaffi-
drykkur í víetnam er ca phe sua da. Það sem til
þarf er miðlungsmalað kaffi, niðursoðin mjólk, ví-
etnömsk pressukanna og klakar. Byrjað er að setja
tvær teskeiðar af niðursoðinni mjólk í glas. Næst
eru settar tvær teskeiðar af miðlungsmöluðu kaffi
í pressukönnuna og hellt sjóðandi heitu vatni yfir
þannig að fari yfir mjólkina. Hrært er í og hellt í
glas með klökum.
KAFFI JAPANA Japanskt kaffi er vanalega brennt
í litlum skömmtum sem leiðir til þess að kaffið
verður dekkra og sterkara. Japanir hella vanalega
upp á í kaffisogpípum sem búnar eru til úr tveim-
ur kúlum, hitara og bambus sleif.
Vatninu er hellt í neðra hólf-
ið þar sem það er soðið með
hitaranum og vegna þrýst-
ings fer vatnið að lokum
upp í efra hólfið þar sem
það blandast kaffinu.
0000