Fréttablaðið - 14.08.2010, Síða 87
LAUGARDAGUR 14. ágúst 2010 55
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 14. ágúst 2010
➜ Tónleikar
14.30 Ópera Gala flytur Vínararíur og
dúetta á Ísafirði í dag, í Rögnvaldarsal,
Edinborgarhúsinu. Tónleikarnir hefjast
kl. 14.30. Miðaverð er 1.000 krónur.
22.00 Hljómsveitin Severed Crotch
verður með tónleika á Sódóma Reykja-
vík í kvöld kl. 22.00. Frítt inn.
23.00 Hljómsveitirnar Reginfirra og
Moses Hightower ásamt Asamasada
verða með tónleika í kvöld á Faktorý.
Húsið opnar kl. 22.00 en tónleikarnir
hefjast kl. 23.00. Aðgangseyrir er 1.000
krónur.
➜ Tyllidagar
11.30 Sjó-
ræningjadag-
urinn mikli
verður haldinn
í Viðey í dag. Fjár-
sjóðsleit hefst kl.
11.30. Ferjutollur fyrir fullorðna er 1.000
krónur, 500 krónur fyrir börn. Frítt fyrir
6 ára og yngri.
➜ Opnanir
14.00 Sigríður Ásgeirsdóttir opnar
sýningu sína „Heima“ í Listmunahorni
Árbæjarsafns í dag kl. 14.00. Sýningin
stendur til 31. ágúst.
15.00 Sigurður Örlygsson opnar
myndlistarsýningu sína í Listhúsi
Ófeigs, að Skólavörðustíg 5, kl. 15.00.
Sýningunni lýkur 7. september.
16.00 Þrándur Þórarinsson opnar
málverkasýningu sína, „Duttlungar“
að Laugavegi 26 (áður Skífan) í dag
kl.16.00. Sýningin stendur til 26. ágúst.
17.00 Í dag opnar sýning 17 lista-
manna, af ýmsum þjóðernum, í Kling
& Bang galleríi, að Hverfisgötu 42.
Sýningin opnar kl. 17.00. Aðgangseyrir
er enginn og allir velkomnir.
Sunnudagur 15. ágúst 2010
➜ Tónleikar
13.00 Í Norræna húsinu verða fjöl-
skyldutónleikar í dag. Kl. 13.00 mun
Memfismafían spila lög af plötunum
Gilligill og Diskóeyja. Kl. 14.00 verða
tónleikar á vegum Jazzhátíðar Reykja-
víkur. Aðgangur ókeypis.
16.00 Hallveig Rúnarsdóttir og Hrönn
Þráinsdóttir flytja lög úr Sjálfstæðu fólki
og Frauenliebe und- leben op. 42 á
stofutónleikum Gljúfrasteins í dag kl.
16.00. Aðgangseyrir 1.000 krónur.
➜ Tyllidagar
13.00 Skákmót
verður haldið í
Árbæjarsafni
í dag kl. 13.00
og má þar finna
lifandi tafl meðal
annars.
Breski leikarinn Stephen Fry ætlar
að koma fram á uppistandssýningu í
Royal Albert Hall í London 20. sept-
ember. Hann ætlar að biðja fylgj-
endur sína á síðunni Twitter að
benda sér á hentug umfjöllunarefni.
Stutt er síðan Fry hélt fjórar svipað-
ar sýningar í Sydney og Melbourne
í Ástralíu. „Ég hef verið kynnir og
gestur á þessum merka stað mörg-
um sinnum en ég haf aldrei verið
með mína eigin sýningu þar. Ég er
mjög spenntur,“ sagði Fry. Hann
bætti við að ef sýningin gengur vel
gæti hann farið í uppistandsferðalag
um Bretland í einn mánuð.
Twitter fyrir
uppistand
STEPHEN FRY Breski leikarinn verður með uppi-
stand í London 20. september.
Bandaríska söngkonan Katy Perry segist
eiga gott samband við foreldra sína nú þegar
hún er komin á fullorðinsaldur. Hún viður-
kenndi í nýlegu viðtali við tímaritið Glamour
UK að foreldrar hennar hafi þó ekki verið
samþykkir sambandi hennar og Russells
Brand í fyrstu. „Þau vissu mjög lítið um
hann, en leyfðu honum þó að njóta vafans.“
Brand átti ekki í erfiðleikum með að heilla
foreldra unnustu sinnar upp úr skónum og
segir Perry að móðir hennar sé afskaplega
hrifin af Brand. „Hann er mjög heillandi og
á í ástarsambandi við móður mína í gegnum
Netið. Hún daðrar við hann og mér finnst
það einstaklega óviðeigandi og hef beðið
hann vinsamlegast að hætta,“ sagði söng-
konan sem mun giftast grínistanum síðar á
árinu.
Mamman daðrar við Brand
ÓVIÐEIGANDI Móðir söngkonunnar Katy Perry daðrar
við unnusta hennar í gegnum vefpóst.
NORDICPHOTOS/GETTY
➜ Opnanir
15.00 Formleg opnun málverkasýning-
arinnar „Gleði í lit“ verður í Skálholts-
skóla, Skálholtsstað kl. 15.00. Sýningin
stendur fram í október.
➜ Dansleikir
20.00 Dansleikur Félags eldri borgara
í Reykjavík og nágrenni verður að
Stangarhyl 4, í kvöld kl. 20.00-23.30.
Danshljómsveitin Klassík leikur danslög.
➜ Leiðsögn
15.00 Jón B. K. Ransu verður með
leiðsögn um sýninguna „Gerður og
Gurdjeff“ í Gerðarsafni, Hamraborg 4 í
Kópavogi. Leiðsögnin hefst kl. 15.00.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is