Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.09.2010, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 10.09.2010, Qupperneq 4
4 10. september 2010 FÖSTUDAGUR Heilsuakademían tekur ekki þátt í Íslandsmótinu í súlufitness eins og kom fram í frétt um mótið. LEIÐRÉTTING DÓMSMÁL „Ég held að ég hafi drep- ið mann,“ var það fyrsta sem Ell- ert Sævarsson sagði við systur sína þegar hann kom heim aðfara- nótt 8. maí í vor eftir að hafa veitt rúmlega fimmtugum manni áverka sem leiddu hann til dauða. Þetta kom fram við aðalmeðferð málsins sem fram fór í gær í Hér- aðsdómi Reykjaness. Ellert veitt- ist að manninum á göngustíg við Bjarnarvelli í Reykjanesbæ með þeim afleiðingum að hann lést af áverkum á höfði. Ellert, sem er 31 árs, lýsti aðdraganda verknaðarins með þeim hætti, að hann hefði mætt manninum á göngustíg um nóttina. Þegar hann hefði spurt hann hvað hann væri að gera hefði maðurinn sagst vera „að bíða eftir krökkum“. Ellert kvaðst hafa spurt hann hvort hann væri að misnota krakka. Mað- urinn hefði þá gengið í burtu en hann hafi elt hann og spurt hvort þetta væri rétt. Samkvæmt lýsingu Ellerts gekk maðurinn þá að húsi við Bjarnar- velli. Sjálfur kvaðst Ellert hafa ætlað að komast einhvers staðar inn til að hringja á lögregluna. Maður- inn kom þá til baka en Ellert gekk í veg fyrir hann og sagði að hann færi ekki fyrr en lögreglan væri komin. „Ég var hálfæstur … ég ætlaði að öskra en gat það ekki,“ sagði Ell- ert í dómsal. Spurður um viðbrögð mannsins sagði Ellert sig ekki reka minni til þess að hann hefði sagt neitt. Hann hefði bara grett sig og gengið með hendur á lofti í átt til sín. Ellert sagðist síðan ekkert muna þar til að maðurinn lá á jörð- inni og hann hafi verið að sparka í höfuð hans og bringu. Síðan hafi hann tekið upp hellustein, sem reyndist vera tólf kíló og hent í manninn. Við yfirheyrslur hjá lög- reglu taldi hann steininn hafa lent í höfði hans. Eftir þetta hljóp Ellert heimleið- is og hitti þá systur sína fyrir, sem hann sagði eiga lítil börn. Fram kom í dómsal, að hann hefði verið mis- notaður af fullorðnum karlmanni þegar hann var á leikskólaaldri. Hann kvað það hafa komið upp í hugann af og til á þeim árum sem síðan eru liðin. Þegar lögregla sagði honum morguninn eftir að maður- inn væri látinn sagði Ellert: „Hann er þá ekkert að fara að gera neitt við frænda minn.“ Þá kom fram að Ellert hafði drukkið áfengi síðustu tvo sól- arhringana fyrir verknaðinn og mældist mikið magn þess í blóði hans. Jafnframt leifar af amfetam- íni. Ellert er menntaður flugvirki. Hann hefur verið atvinnulaus að undanförnu og skuldar há náms- lán. jss@frettabladid.is Játar dráp og ber við gruni um barnaníð Rúmlega þrítugur maður, sem varð rúmlega fimmtugum manni að bana í Reykjanesbæ í maí, kvaðst í dómsal í gær hafa haldið að fórnarlambið misnot- aði krakka. Sakborningur sagðist sjálfur hafa verið misnotaður á leikskólaaldri. LEIDDUR Í DÓMSAL Aðalmeðferðin fór fram með miklum tilfinningaþunga, þar sem bæði aðstandendur geranda og fórnarlambs mættu í dómsal. Sjálfur brast sakborn- ingur öðru hverju í grát í frásögn sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR ALÞINGI Nokkur stjórnarfrumvörp hafa verið afgreidd til nefnda og þriðju umræðu á Alþingi í fyrradag og í gær. Reyna á að afgreiða þau sem lög frá þinginu áður en því verður slitið í lok næstu viku. Í gær var frumvarp um breytingar á stjórnarráðinu afgreitt sem lög. Það kveður á um sameiningu dómsmála-, mannréttinda og samgönguráðuneytanna í eitt innanríkis- ráðuneyti og heilbrigðis-, félags- og trygg- ingamálaráðuneytisins í eitt velferðarráðu- neyti. Þær breytingar eiga að taka gildi um áramót. Þá munu iðnaðar-, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti sameinast í atvinnu- málaráðuneyti og umhverfisráðuneytið einnig verða ráðuneyti auðlindamála. Síðari breytingarnar munu taka gildi 1. apríl. 2011. Þá var frumvarp umhverfisráðherra til skipulagslaga, sem kveða á um landnýtingu til framtíðar, afgreitt til nefndar. Frum- varpið er í 57 liðum og mjög viðamikið. Frumvarp iðnaðarráðherra um afnám iðn- aðargjalda, í samræmi við dóm Mannrétt- indadómstóls Evrópu um ólögmæti þess, og endurráðstöfun þeirra gjalda sem þegar hafa verið innheimt, var einnig afgreitt til þriðju umræðu, sem og þrjú frumvörp dómsmálaráðherra um aukin réttindi inn- flytjenda og hælisleitenda. Í gær fór svo frumvarp um stjórnlagaþing einnig til þriðju og síðustu umræðu. - sh Ýmis frumvörp voru send til lokaumræðu í nefndum Alþingis í gær og fyrradag: Nokkur frumvörp afgreidd á lokametrunum AF ÞINGI Alþingismenn hyggjast afgreiða hin og þessi frumvörp sem lög fyrir lok næstu viku. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA BARACK OBAMA Segir brennuna brjóta gegn siðferðisgildum Bandaríkjanna. FRÉTTABLAÐI/AP BANDARÍKIN, AP Barack Obama Bandaríkjaforseti hvetur leiðtoga lítils trúarsöfnuðar á Flórída til að hætta við bókabrennu, sem hann hefur boðað til á morgun þar sem brenna á trúarrit mús- lima, Kóraninn. „Þetta auðveldar Al Kaída að afla sér nýrra meðlima,“ sagði Obama í sjónvarpsviðtali í gær. Hann sagði brennuna stofna lífi bandarískra hermanna í hættu, auk þess sem hún sé í andstöðu við siðferðisvitund Bandaríkja- manna. „Þetta land hefur verið byggt upp á hugmyndinni um frelsi og trúarlegt umburðarlyndi.“ - gb Obama í sjónvarpsviðtali: Hvetur prest til að hætta við RÚMENÍA, AP Þingmenn í Rúmen- íu hafa kannski óttast að nornir myndu breyta þeim í froska, þegar þeir felldu frumvarp um að nornir og spákonur ættu að greiða skatta. Frumvarpið er samið af tveim- ur þingmönnum Frjálslynda demókrataflokksins, þeim Alin Popoviciu og Cristi Dugulescu. Frjálslyndir demókratar eru í stjórn og reyna að finna sem flesta möguleika til að bæta stöðu ríkissjóðs. Marina Campina, velþekkt norn í Rúmeníu, segir erfitt að skattleggja þessa stétt. - gb Áfangasigur í Rúmeníu: Nornir sleppa við skattana Afar og ömmur í kreppunni Samkvæmt nýrri rannsókn hefur efnahagskreppan, í Bandaríkjunum í það minnsta, haft þau áhrif að afar og ömmur gera meira af því að ala upp börn barna sinna en áður tíðkaðist. BANDARÍKIN AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is GENGIÐ 09.09.2010 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 205,1216 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 118,14 118,70 181,99 182,87 150,17 151,01 20,165 20,283 19,088 19,200 16,231 16,327 1,4113 1,4195 178,57 179,63 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR glæsilegar stöðvar í Kringlunni og Ögurhvarfi. Opnum á morgun Mánaðarkort á 25 ára afmælisverði aðeins krónur 1.750.kr - á laugardag og sunnudag gildir í Kringlunni og Ögurhvarfi. bestun.is ALÞINGI Kjósendur munu þurfa að rita númer á kjörseðla þegar kosið verður til stjórnlagaþings, en ekki merkja við nöfn fram- bjóðenda eins og tíðkast hefur í persónukjöri til þessa. Þetta er meðal breytinga sem gerðar verða á lögum um stjórnlagaþing verði frumvarp þar um að lögum eins og allt bendir til. Róbert Marshall, formaður allsherjarnefndar, mælti fyrir frumvarpinu í gær. Hann útskýrði að ef frambjóðendur til þingsins verða fleiri en 115 yrði letrið á kjörseðlinum allt of smátt án þessarar breytingar, eða kjör- seðillinn á stærð við verðlauna- ávísanir í hjólreiðakeppnum, eins og Róbert komst að orði. Því væri lendingin að gefa frambjóðendum númer, og hver kjósandi ritaði síðan 25 númer á seðilinn. Birgir Ármannsson, Sjálfstæð- isflokki, mótmælti breytingunni og sagði hana flækja málin fyrir kjósendur. - sh Kosningar til stjórnlagaþings: Númer en ekki nöfn á kjörseðli VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 28° 26° 19° 17° 22° 18° 16° 16° 24° 20° 28° 24° 33° 17° 22° 20° 17°Á MORGUN Fremur hægur vindur. Vaxandi með S-strönd. SUNNUDAGUR Strekkingsvindur gengur NA yfi r landið. 11 12 11 13 13 13 13 12 1211 13 13 13 12 12 11 12 12 11 14 10 10 6 6 4 3 2 4 3 5 3 5 HELGIN verður nokkuð kafl a- skipt. Á laugardag verður úrkoma norðaustan til en þá sést til sólar sunnan heiða með skúrum þó. Á sunnudag verður suðaustan strekk- ingur með tals- verðri úrkomu suð- vestan til en bjart fyrri hluta dags norðaustanlands. Ingibjörg Karlsdóttir veður- fréttamaður
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.