Fréttablaðið - 10.09.2010, Qupperneq 6
6 10. september 2010 FÖSTUDAGUR
SJÁVARÚTVEGUR Skipstjórar sex skoskra skipa hafa viður-
kennt fyrir hæstarétti í Glasgow að hafa veitt og land-
að ólöglega tugum þúsunda tonna af makríl og síld að
verðmæti 2,7 milljarðar króna. Einn skipstjóranna er
varaformaður Samtaka skoskra uppsjávarveiðimanna
(SPFA). Eins og kunnugt er hafa samtökin haft sig mjög
í frammi í gagnrýni á makrílveiðar Íslendinga að undan-
förnu. Frá þessu greina skoskir fjölmiðlar og þeirra á
meðal The Scotsman.
„Það er orðið þreytandi að lesa hverja fréttina á fætur
annarri um ásakanir Skota á hendur okkur fyrir óábyrg-
ar veiðar á makríl,” segir Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ. „Þessir sömu menn hafa orðið upp-
vísir að því að veiða ólöglega og landa tugum þúsunda
tonna af makríl og síld.“ Í frétt á heimasíðu LÍÚ er það
rifjað upp að Skotar ákváðu að sniðganga ráðstefnu Nor-
rænu ráðherranefndarinnar í Færeyjum, þar sem veiðar
á síld og makríl eru til umfjöllunar.
Ólöglegu landanirnar sem um ræðir áttu sér stað á
Hjaltlandseyjum á árunum 2002-2005. Alls reyndist um
200 brotatilvik að ræða. Rannsókn málsins var að sögn
yfirvalda og fjölmiðla mjög tímafrek enda brotin „þaul-
hugsað samvinnuverkefni útgerðarmanna og vinnslu-
aðila í landi“. - shá
Skotar viðurkenna ólöglegar veiðar á tugþúsundum tonna af makríl og síld:
Uppvísir að stórtæku svindli
MAKRÍLL Gagnrýni Evrópusambandslanda á veiðar Íslend-
inga eru háværar. Hæst láta Skotar sem nú eru uppvísir að
stórfelldri rányrkju. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
á morgun
kl. 10 til 16.
Fjöldi tilboða í
tilefni dagsins.
Verið velkomin í
verslun okkar að
Nóatúni 4.
A
T
A
R
N
A
A
T
A
R
N
A
Sölusýning
SJÁVARÚTVEGUR Skipverjar á Faxa
RE fullyrða í skipabloggi sínu að
færeyska skipið Fagraberg hafi
fengið helmingi hærra verð fyrir
landaðan makríl hjá Ísfélaginu í
Vestmannaeyjum en íslensk skip
fá fyrir sinn afla. Þessu hafn-
ar verksmiðjustjóri Ísfélagsins.
Hann segir að færeysk skip séu
þó almennt mun betri en þau
íslensku og skili betra hráefni.
Það sé stór þáttur í verðmyndun
aflans.
Faxamenn rákust á litla frétt
á færeysku sjávarútvegssíðunni
skipini.com þar sem segir frá
því að færeyska skipið Fagra-
berg hafi landað eitt þúsund
tonnum í Vestmannaeyjum fyrir
fjórar krónur danskar á kílóið.
Það eru um 80 krónur íslenskar.
Þeir spyrja hvort þetta geti verið
þegar það liggi fyrir að íslensk
skip, og þá skipti litlu hvar land-
að er, fái 36 til 42 krónur fyrir
landað kíló af makríl. „Er þetta
ekki sami makríllinn og við erum
að landa eða fer þessi kannski á
aðra markaði?“ spyrja þeir.
Páll Scheving Ingvarsson, verk-
smiðjustjóri Ísfélagsins, segir það
verð sem birt er á færeysku síð-
unni „fjarri lagi“. Hann vill hins
vegar ekki greina frá því hvaða
verð var borgað fyrir makrílinn
sem Fagrabergið landaði. „Við
gefum ekki upp það verð sem við
greiðum, hvort sem það er inn-
lendur eða erlendur afli.“
Páll segir að þegar verðmyndun
sjávarfangs er til umræðu verði
að hafa hugfast hver stærð fisks-
ins er og þá líka aðstæður um borð
í skipunum til að kæla aflann og
færa hann til hafnar í sem bestu
ástandi. „Þetta er spurning hvað
hægt er að gera úr hráefninu.“
Spurður hvort íslensk skip séu
að landa verra hráefni en fær-
eysku skipin svarar Páll því til
að íslensk skip í uppsjávarveiðum
standist einfaldlega ekki saman-
burð við þau færeysku. „Bæði
færeyski og norski flotinn er
margfalt öflugri en sá íslenski.
Þeir eru miklu betur í stakk
búnir til að færa ferskt hráefni
að landi, því miður er þetta bara
staðreynd. Og hvers vegna eru
þeir að efla sinn flota? Það er til
þess að geta landað besta hugs-
anlegu hráefni fyrir besta hugs-
anlega verð.“
Vilhjálmur Vilhjálmsson,
deildarstjóri uppsjávarsviðs HB
Granda, staðfestir að greitt verð
fyrir makríl á Grandaskipum sé
36 til 42 krónur eins og Faxamenn
tala um. Hins vegar er honum ekki
kunnugt um verð til færeyskra
skipa þar sem Grandi hefur ekki
keypt afla af öðrum en eigin skip-
um. Hann viðurkennir að séu töl-
urnar réttar sé um afar gott verð
að ræða. svavar@frettabladid.is
Segja færeysk skip fá helm-
ingi hærra verð fyrir makríl
Skipverjar á Faxa RE benda á upplýsingar um að færeyskt skip hafi fengið 80 krónur fyrir kílóið af makríl í
Vestmannaeyjum. Það segir verksmiðjustjóri fjarri lagi en viðurkennir að færeysk skip skili betra hráefni.
FAGRABERG LANDAR Í VESTMANNAEYJUM Færeyski flotinn er sagður mun betri en sá íslenski og skili betra hráefni. Ferskleiki
hráefnisins skiptir hvað mestu í verðmyndun aflans. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
Bæði færeyski og
norski flotinn eru
margfalt öflugri en sá íslenski.
PÁLL SCHEVING INGVARSSON
VERKSMIÐJUSTJÓRI ÍSFÉLAGSINS
MENNING Nú stendur til að endur-
vekja grásleppuútgerð í Gríms-
staðavör við Ægissíðu í Reykjavík.
Kjartan Magnússon, borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins, lagði
fram tillögu í menningarmála-
nefnd árið 2006 um endurvakn-
ingu útgerðarinnar og friðun grá-
sleppuskúranna, þegar stóð til að
jafna þá við jörðu.
Skúrarnir við Ægissíðu eru
elstu minjar um smábátaútgerð
í Reykjavík og segir Kjartan að
afar mikilvægt sé að varðveita þá.
Innviðir skúranna hafa nú verið
gerðir upp og lýsingu komið fyrir
en ytra útliti er haldið óbreyttu og
segir Kjartan það vera til þess að
varðveita svæðið í eins uppruna-
legri mynd og mögulegt er.
Auk grásleppuútgerðarinnar
verður komið upp aðstöðu fyrir
útikennslu grunnskóla í skúrunum
og þjónustu fyrir ferðamenn. Skúli
Guðbjörnsson hefur keypt Skála-
bátinn, tíæring frá Færeyjum, og
hyggst sigla á honum út flóann að
Álftanesi með ferðamenn í haust
og vetur og leyfa þeim að upplifa
grásleppuveiðar eins og þær tíðk-
uðust á árum áður.
Þrjátíu fornar varir eru í Reykja-
vík þar sem róður og útgerð tíðk-
uðust á árum áður. Útræði er hætt
úr þeim öllum og víðast hvar hefur
verið fyllt upp í þær. - sv
Elstu minjar um smábátaútgerð í Reykjavík skulu teknar í notkun á ný:
Horft aftur til fortíðar í veiði
GRÁSLEPPUVEIÐAR VIÐ ÆGISSÍÐU Á NÝ
Kjartan Magnússon, Marta Guðjónsdótt-
ir og Skúli Guðbjörnsson að sigla út á
Skálabátnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
RÓIÐ Róið var frá Grímstaðavör við
Ægissíðu yfir á Álftanes.
OF GRUNNT Herjólfur siglir til Þorláks-
hafnar næstu daga. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SAMGÖNGUR Herjólfur mun
sigla milli Þorlákshafnar og
Vestmannaeyja næstu daga og
verða farnar tvær ferðir á dag.
Að mati Siglingastofnunar er
ekki hægt að sigla til Landeyja-
hafnar vegna gosefnanna sem
borist hafa með þrálátri austan-
átt og safnast upp í mynni nýju
hafnarinnar. Þá segir í tilkynn-
ingu frá Eimskipum, sem reka
Herjólf, að dæluskipið sem gæti
fjarlægt efnið úr höfninni liggi
bilað við bryggju í Reykjavík og
sigli ekki austur í Landeyjahöfn
fyrr en síðar í dag.
Siglt verður frá Eyjum klukkan
07.30 og 15.15, og frá Þorlákshöfn
klukkan 11.15 og 18.45. - þj
Landeyjahöfn lokuð um sinn:
Siglt til Þorláks-
hafnar í bili
REYKJAVÍK Jón Gnarr borgarstjóri
segir að Reykjavík eigi góða mögu-
leika á að verða Græna borgin í
Evrópu. Hann sat fyrir svörum
sérstakrar dómnefndar í Brussel í
fyrradag. Tvær evrópskar borgir
verða valdar í október til að bera
titilinn European Green Capital
eða Græna borgin árin 2012 og
2013. Þau Jón Gnarr, Karl Sig-
urðsson, formaður umhverfis- og
samgönguráðs, og Heiða Kristín
Helgadóttir, aðstoðarmaður borg-
arstjóra, sátu fyrir svörum ásamt
sérfræðingum Reykjavíkurborgar.
Finnst þér samkeppni á elds-
neytis markaði nógu virk?
Já 3,8
Nei 96,2
SPURNING DAGSINS
Er íslenska karlalandsliðið í
knattspyrnu á réttri leið?
Segðu þína skoðun á visir.is
Borgarstjóri bjartsýnn:
Reykjavík verði
Græna borgin
KJÖRKASSINN