Fréttablaðið - 10.09.2010, Side 23
10. september 2010 FÖSTUDAGUR1
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
4ra rétta
Góð tækifæ
risgjöf!
Kryddlegin bleikja
með rússneskri pönnuköku, dillrjóma og piparrótarsósu
Humarsúpa
rjómalöguð, með Madeira og grilluðum humarhölum
Fiskur dagsins
það ferskasta hverju sinni; útfærður
af matreiðslumönnum Perlunnar
*** eða / Or ***
Lambatvenna
með steinseljurótarmauki, aspas, rófu,
soðkartöflu og basil-myntu gljáa
Kókoshnetu Tapioca
með steiktu mangói og lychee sorbet
Verð aðeins 7.290 kr.
tilboðsseðill
Matardagar 2010 verða haldnir í Smáralindinni 23.
til 26. september. Meðal fjölmargra skemmtilegra liða
á sýningunni er Súpukeppni Knorr. Þar hafa keppend-
ur 60 mínútur í eldhúsi til að laga fjóra lítra af súpu,
einn sýningardisk og súpu til að gefa 25 gestum
Smáralindar að smakka. www.freisting.is
400 g smokkfiskur
2 stk. vorlaukur
2 stk. jalapenó
2 msk. hvít sesamfræ
2 stk. hvítlauksrif
Olía til steikingar og djúpsteikingar
Salt
Tempúradeig
100 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
100 ml sódavatn
Hreinsið smokkfiskinn og skerið hann
niður í litla bita. Saxið vorlaukinn og
jalapenóið fínt niður. Saxið hvítlauk-
inn mjög smátt og steikið hann á
pönnu upp úr olíu. Setjið á bréf og
leyfið honum að verða stökkum.
Veltið smokkfisknum upp úr hveiti
og setjið hann svo í tempúradeigið.
Hitið olíu í potti upp í 180°c (gott að
nota hitamæli). Takið smokkfiskinn
upp úr deiginu og djúpsteikið í um
það bil 4 mínútur. Setjið á bréf. Stráið
vorlauknum, jalapenó, sesamfræj-
unum og hvítlauknum yfir. Kryddið
með salti.
Jalapenódressing:
1 stk. jalapenó
150 g mæjónes
1 stk. sítróna
Setjið heilt jalapenóið í matvinnsluvél
ásamt majónesinu. Smakkið til með
sítrónusafa.
SMOKKFISKUR TEMPÚRA MEÐ VORLAUK OG HVÍTLAUK
Forréttur fyrir 4M
atreiðslumeistarinn
Hrefna Rósa Sætran
fær aldrei leið á því
að elda þrátt fyrir að
gera varla annað. Hún rekur eigin
veitingastað, er með eigin mat-
reiðsluþátt á Skjá einum, kepp-
ir fyrir Íslands hönd í íslenska
kokkalandsliðinu og var að enda
við að gefa út nýja matreiðslubók.
Mörgum þætti nóg um en Hrefna
Rósa eldar ekki síður heima, er
dugleg að bjóða í mat auk þess að
vera með kveikt á BBC Lifestyle
daginn út og inn.
Hrefna Rósa fagnar um þessar
mundir útkomu sinnar fyrstu mat-
reiðslubókar sem heitir Fiskmark-
aðurinn eins og veitingastaðurinn
hennar. „Þarna eru samankomnir
uppáhaldsréttirnir mínir af Fisk-
markaðnum sem ég hef reynt að
einfalda. Einkunnarorð mín eru
ferskt, framandi og ógleymanlegt
og legg ég því upp úr því að halda
í bragðið þó ég hafi reynt að gera
réttina aðgengilegri fyrir fólk.“
vera@frettabladid.is
Hrefna Rósa Sætran eldar ekki aðeins í vinnunni heldur leikur einnig af fingrum fram á heimavelli.
Hrefna Rósa segir marga smeyka við að djúpsteikja heima hjá sér en að það sé þó ekki mikið mál. Hér er hún með djúpsteiktan
smokkfisk sem er einn af hennar uppáhaldsréttum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fær ekki
nóg af
því að
elda