Fréttablaðið - 10.09.2010, Síða 46

Fréttablaðið - 10.09.2010, Síða 46
 10. september 2010 FÖSTUDAGUR26 timamot@frettabladid.is Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Guðbjartur Þorvarðarson Naustabúð 6, Hellissandi, lést á Francisku sjúkrahúsinu í Stykkishólmi 7. september. Útförin verður auglýst síðar. Þorvarður J. Guðbjartsson Auður Hilmarsdóttir Sölvi Guðbjartsson Katrín Sigurjónsdóttir Guðrún G. Guðbjartsdóttir Rafnar Birgisson Elva B. Guðbjartsdóttir Þór Reykfjörð Lilja B. Guðbjartsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, Þórunn Gestsdóttir verður jarðsungin mánudaginn 13. september kl. 15.00 frá Bústaðakirkju. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim sem vilja minnast Þórunnar er bent á Minningarsjóð FAAS (Félags áhugafólks og aðstand- enda Alzheimerssjúklinga) sem hægt er að nálgast á alzheimer.is eða í síma 533-1088. Elíza Guðmundsdóttir Ari Guðmundsson Jóhanna Jóhannsdóttir Gestur Ben Guðmundsson Ingi Þór Guðmundsson Rannveig Haraldsdóttir Hjördís Guðmundsdóttir Ómar Karl Jóhannesson Eyjólfur Andri Arason Viktor Ben Gestsson Einar Ben Gestsson Þórunn Hekla Ingadóttir Aron Snær Ingason Ísak Nói Ingason Elísa Gígja Ómarsdóttir Inga Lilja Ómarsdóttir Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Trausti Finnbogason prentari, Álfatúni 4, Kópavogi, lést á heimili sínu laugardaginn 4. september. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 14. september kl 15.00. Elín Traustadóttir Rúnar Björgvinsson Snorri Traustason Helga Óskarsdóttir Yrsa Rós Brynjudóttir Roger Young barnabörn og barnabarnabörn. Þorsteinn Jónasson frá Oddsstöðum í Hrútafirði, er lést þann 25. ágúst sl. verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 11. september kl. 14. Fyrir hönd aðstandenda, börn hins látna. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, Haukur Haraldsson mjólkurfræðingur frá Húsavík, Mýrarvegi 115, Akureyri, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar 4. september. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 14. septem- ber kl. 10.30. Jarðsett verður í Húsavíkurkirkjugarði. María Sigríður Þórðardóttir Guðný María Hauksdóttir Teitur Bergþórsson Jóhannes Haukur Hauksson Ásdís Melsted Þórður Gunnar Sigurjónsson Birgitta Lúðvíksdóttir Steinn Oddgeir Sigurjónsson Áslaug Stefánsdóttir Sigmundur Sigurjónsson Ingi Rúnar Sigurjónsson Hildur Salína Ævarsdóttir Guðmundur Sigurjónsson Bryndís Viggósdóttir Sigurður Haraldsson Kristín Haraldsdóttir afa og langafabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Erla Valdimarsdóttir, Álfheimum 70, Reykjavík, lést á heimili sínu mánudaginn 6. september. Útför hennar fer fram frá Áskirkju 14. september kl. 11.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á krabba- meinsfélagið. Valdimar Svarasson Dorothe Gunnarsdóttir Hjördís Svarasdóttir Skúli Sigurðsson Sigurður Svarasson Erla Eyjólfsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Ingvi Einar Guðmundsson húsasmíðameistari, Berjavöllum 6, Hafnarfirði, sem lést á heimili sínu 4. september sl. verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 13. september kl. 13.00. Halldóra Guðmunda Jafetsdóttir Sigríður Guðný Ingvadóttir David L. Walters Einar Ingvason Guðríður Sigurðardóttir Jafet Egill Ingvason Hrönn Pétursdóttir Baldur Ingvason Inga Dóra Ingvadóttir Gunnar Þór Halldórsson barnabörn og barnabarnabörn. MOSAIK Möguleikhúsið fagnar tuttugu ára afmæli í ár en það var stofnað árið 1990 af Pétri Eggerz, Bjarna Ingvarssyni og Grétari Skúlasyni. Í dag halda Pétur og kona hans, Alda Arnardóttir, um stjórnartaumana. „Möguleikhúsið byrjaði smátt. Við bjuggum til litla leik- þætti fyrir skemmtanir sem fljótlega þróuðust upp í sýn- ingar. Við sýndum í leikskólum og grunnskólum en stefna Möguleikhússins frá upphafi var að vera barnaleikhús,“ útskýrir Pétur. Starfsemin vatt upp á sig og árið 1994 opnaði hópurinn eigið leikhús við Hlemm. Áður höfðu æfingar farið fram hvar sem pláss fékkst en nú komust bæði æfingar og sýning- ar undir eitt þak. „Við gerðum tilraun til að reka barnaleik- hús í Reykjavík. Það gerðum við í 14 ár þangað til við urðum fyrir harkalegum niðurskurði í opinberum stuðningi,“ segir Pétur en í úthlutun leiklistarráðs Menntamálaráðuneytis í ársbyrjun 2008 fékk Möguleikhúsið ekki styrk. „Við þurftum að draga all verulega saman seglin og höfum dregið þau saman síðan. Í dag erum við nánast í sömu spor- um og í upphafi. Ekki með fast húsnæði, sýnum aðallega í skólum og æfum þar sem við komumst inn hverju sinni. Manni finnst vanta talsvert upp á að þeir sem um pyngj- una halda hafi áhuga á að styðja við það sem gert er fyrir börn.“ Þrátt fyrir þröngan kost er þó fjörug dagskrá fram undan á afmælisárinu. Í tilefni tímamótanna verða „endurfrum- sýnd“ nokkur eldri verk af sýningarskrá Möguleikhússins og á morgun klukkan 14 verður barnaleikritið Prumpuhóll- inn eftir Þorvald Þorsteinsson sýnt í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Alls verða átta sýningar á dagskránni í vetur og meðal þeirra er verkið Völuspá sem Möguleikhúsið sýndi í Svíþjóð fyrir viku við góðar undirtektir. Yfir árið sýnir Möguleikhúsið milli 100 og 150 sýningar um allt land. Um miðjan mánuðinn fer sýningin Prumpuhóllinn um Vestfirði og um Norðurland í október. „Við reynum að fara um allt landið að minnsta kosti einu sinni á ári og höfum heimsótt að ég held alla þéttbýlisstaði á landinu gegnum tíðina,“ segir Pétur og ítrekar að aðsóknin á sýningar Möguleikhússins hafi alltaf verið mjög góð. „Við- brögð þeirra sem kaupa sýningar hjá okkur hafa ekki gefið ástæðu til að leggja árar í bát. Það er enginn niðurskurður í áhuga á sýningum Möguleikhússins.“ heida@frettabladid.is MÖGULEIKHÚSIÐ: TUTTUGU ÁRA Enginn niður- skurður í áhuga FJÖRUG DAGSKRÁ Hjónin Pétur Eggerz og Alda Arnardóttir í Mögu- leikhúsinu en Pétur fer með hlutverk í Prumpuhólnum sem sýndur verður í Gerðubergi á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA BRESKI LEIKARINN COLIN FIRTH er fimmtugur í dag „Ég vil fá samþykki frá umhverfinu alveg eins og næsti maður en ég er þó ekkert gráðugur í það.“ ÞETTA GERÐIST: ÁRIÐ 1911 Stytta Jóns Sigurðssonar afhjúpuð Minnisvarði um Jón Sigurðsson eftir mynd- höggvarann Einar Jónsson, var afhjúpaður við Stjórnarráðshúsið í Reykjavík þennan dag fyrir 99 árum. Kristján Jónsson ráðherra afhjúpaði styttuna við hátíðlega athöfn. Árið 1931 var styttan flutt á Austurvöll fyrir framan Alþingis- húsið, en upphaflega hafði staðið til að þar fengi hún stað. Jón Sigurðsson var helsti leiðtogi Íslendinga í sjálfstæðisbaráttunni á 19. öld. Fæðingardagur hans 17. júní var valinn stofndagur Háskóla Íslands þetta sama ár og sem þjóðhátíðardagur Íslendinga þegar Lýðveldið Ísland var stofnað hinn 17. júní árið 1944. Á þjóðhátíðardaginn hefur sú hefð skapast að forseti Íslands leggi blómsveig við styttuna með aðstoð Skátahreyf- ingar Íslands.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.