Fréttablaðið - 16.09.2010, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 16.09.2010, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 16. september 2010 Færeyjar, Ís- land og evran Það gildir um gjaldeyrismál líkt og um lífið sjálft, að yfir- leitt eru fleiri en ein leið fær að settu marki. Stundum á vel við að halda úti eigin gjaldmiðli og leyfa gengi hans að fljóta. Stund- um er betra að festa gengið við gjaldmiðla annarra þjóða. Og stundum á vel við að blýfesta gengið, þannig að helzt verði ekki aftur snúið, og er það jafn- an gert með því að leggja þjóð- myntina til hliðar og taka upp annan gjaldmiðil. Kostir og gallar Það er engin tilviljun, að þjóð- ir heimsins hafa kosið að búa ýmist við fast eða fljótandi gengi og ýmist við eigin þjóðmynt eða sameiginlega mynt. Landslag gjaldeyrismálanna endurspegl- ar ólíkar aðstæður og ólíkt mat á kostum og göllum hvers fyrir- komulags á hverjum stað. Gengisflot getur komið sér vel, því að fljótandi gengi er sveigjanlegt. Það hneigist til að hækka, þegar vel gengur í efnahagslífinu, og lækka, þegar á móti blæs. Gengishækkun dregur úr uppsveiflu með því að örva innflutning á kostn- að innlendrar framleiðslu og hamla útflutningi. Gengislækk- un mildar niðursveiflu með því að hamla innflutningi og örva þannig framleiðslu innan lands og útflutning. Þessi regla er þó ekki einhlít, því að flotgengi sveiflast til meðal annars vegna spákaupmennsku. Höfuðkostur flotgengis er sveigjanleiki, höf- uðgallinn er óstöðugleiki. Gengisfesta stuðlar jafnan að stöðugleika í efnahagslífinu og dregur úr óvissu og öldugangi. Festa getur komið sér vel, eink- um ef verðbólga hefur náð að skjóta rótum í skjóli fljótandi gengis og valdið gengissigi. Fast gengi auðveldar verð- samanburð milli landa. Okr- arar geta þá ekki skýlt sér bak við gengisbreytingar. En fast gengi er ósveigjanlegt. Þegar vel árar í efnahagslífinu, hækk- ar verðlag (verðbólga eykst), úr því að gengið er fast. Og þegar á móti blæs, skreppur atvinna saman (atvinnuleysi eykst), þar eð genginu er haldið föstu. Fast gengi gagnast ekki við að draga úr hagsveiflum. Höfuðkostur fastgengis er stöðugleiki, höfuð- gallinn er ósveigjanleiki. Þjóðir, sem þurfa mest á sveigjanleika að halda, til dæmis af því að þær hafa setið fastar í hjólförum óhagkvæms búskaparlags, og setja gengis- sveiflurnar ekki fyrir sig, kjósa yfirleitt fljótandi gengi. Þjóðir, sem þurfa mest á stöðugleika að halda, til dæmis af því að þær eru brenndar af langvinnri verðbólgu, og setja ósveigjan- leikann ekki fyrir sig, kjósa yfirleitt fast gengi. Íslending- ar hafa gert hvort tveggja á víxl. Við hurfum frá föstu gengi á sínum tíma til að liðka fyrir frívæðingu efnahagslífsins auk þess sem verðbólga hafði graf- ið undan krónunni. Við festum gengið aftur til að hamla verð- bólgu og settum gengið síðan enn á flot, þegar verðbólgan virtist hafa hjaðnað. Hvert stefna aðrar þjóðir? Greina má tvo meginstrauma í gjaldeyrismálum heimsins und- angengin ár. Í þróunarlöndum hefur fljótandi myntum fjölg- að um sinn, en í hátekjulöndum hefur fast gengi færzt í vöxt. Skýringarinnar á þessari þróun er ekki langt að leita. Þróunar- löndin reyna mörg að rífa sig upp úr hjólförum fyrri tíðar og sækjast því eftir sveigjanleika með fljótandi gengi. Hátekju- löndin hafa fyrir löngu komið skipulagi atvinnuvega sinna á réttan kjöl og sækjast því eftir stöðugleika með föstu gengi. Eigi að síður stefna mörg þró- unarlönd að föstu gengi. Afríku- sambandið stefnir að einni mynt um alla álfuna 2028, en ólíklegt virðist, að tímataflan standist. Viljann vantar þó ekki í orði, því að Afríkumenn skilja kosti evrunnar. Einstök svæði Afríku hafa sameiginlegar myntir á prjónunum sem millileik, og hið sama á við um Austurlönd nær. Asía og Suður-Ameríka eru enn að hugsa sig um. Gjaldmiðlum heimsins hefur fækkað undan- gengin ár, eftir því sem fleiri og fleiri þjóðir telja sig hafa sigrazt bæði á óhagkvæmni og verðbólgu og hafa því ákveð- ið að deila gjaldmiðlum sínum með öðrum. Danmörk og Færeyjar Í þessu ljósi er skiljanlegt, að ýmsir hér heima hafi efasemd- ir um ágæti þess að taka upp evruna skömmu eftir inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Íslendingar eiga eftir að vinna fullnaðarsigur á landlægri óhag- kvæmni og verðbólgu, rétt er það. Aðrir líta svo á, að greiðasta leiðin til að vinna bug á óhag- kvæmninni og verðbólgunni sé einmitt að ganga í ESB með evr- unni og öllu saman, svo að ljóst sé, að gamla agaleysið, gamla vitleysan verður að víkja. Gengi krónunnar hefur fallið um 99,95 prósent gagnvart dönsku krón- unni frá 1938. Þetta segir allt, sem segja þarf um stjórn pen- ingamála á Íslandi í sjötíu ár. Er ekki komið nóg? Danir hafa í reyndinni notað evruna frá upp- hafi, þar eð gengi dönsku krón- unnar hefur verið haldið föstu við evru frá 1999, þegar evr- unni var hleypt af stokkunum sem bókhaldseiningu. Færeying- ar hafa einnig notað evruna frá upphafi, þar eð færeyska krón- an er jafngild dönsku krónunni. Ekki kvarta Danir og Færeying- ar undan evrunni, ekki heldur færeyskir útvegsmenn. Þorvaldur Gylfason prófessor Í DAG Fast gengi auðveldar verðsamanburð milli landa. Okrarar geta þá ekki skýlt sér bak við gengisbreytingar. En fast gengi er ósveigjanlegt. Þegar vel árar í efnahagslífinu, hækkar verðlag (verðbólga eykst), úr því að gengið er fast. Og þegar á móti blæs, skreppur atvinna saman (atvinnuleysi eykst), þar eð genginu er haldið föstu. Skemmtileg, örugg og allskonar Reykjavík Málþing föstudaginn 17. september 2010 í Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 14:00 Magga Stína stjórnar málþinginu og tengir saman erindin með örsögum úr lífi sínu í miðborginni og öðru sem við á og hljómar skemmtilega. Er hún það? Tenerife 28. október í 16 nætur Heimsferðir bjóða nú síðustu sætin til Tenerife þann 28. október á ótrúlegu sértilboði. Á haustin skartar þessi yndislega eyja sínu fegursta. Veðurfarið er einstaklega milt og notalegt sem og allt umhverfi , hvort sem dvalið er við amerísku ströndina, á Costa Adeje eða í Los Cristianos. Nú fer hver að verða síðastur að panta sér ferð í október til Tenerife, því það eru einungis örfá sæti laus. - Ekki missa af þessari ferð! Frá kr. 164.180 - Parque Santiago*** Netverð á mann m.v. 2 fullorðna í stúdíóíbúð í 16. nætur. Innifalið er flug, gisting og skattar. Sértilboð 28. október. Aukagjald fyrir einbýli kr. 87.100. Ekki missa af síðustu sætunum í sólina nú í haust - bókaðu strax! Ath. takmarkaður fjöldi sæta og gistingar í boði – verð getur hækkað án fyrirvara! Frá kr. 139.540 - Dream Villa Tagoro*** með allt innifalið! Netverð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í íbúð m/1 svefnherbergi. Innifalið er flug, gisting, skattar og „allt innifalið” þjónusta. Verð kr. 187.980 - Dream Villa Tagoro*** á mann m.v. tvo í íbúð m/1 svefnherbergi. Innifalið er flug, gisting, skattar og „allt innifalið” þjónusta. Sértilboð í 16 nætur þann 28. október.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.