Fréttablaðið - 16.09.2010, Side 37

Fréttablaðið - 16.09.2010, Side 37
FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2010 Símenntun felur í sér að m enntun er ekkibundinviðákveðiðtímabil,he ldu rg et iv ar að al la tí ð, al lir sé u síf ell t a ð læ ra. Starfsmennt býður upp á: • Starfstengdar námsleiðir sem sérsniðnar eru fyrir stofnanir og starfsgreinar • Þverfagleg námskeið sem efla almenna starfshæfni og nýtast öllum • Ráðgjafa að láni til stofnana • Náms- og starfsráðgjöf • Fjarkennt tölvunám • Farandfyrirlestra Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Starfsmenntar þar sem skráning fer fram og einnig hjá starfsfólki. Símenntun er samofin störfum Fræðslusetrið Starfsmennt er samstarfsvettvangur ríkisins og stéttarfélaga innan BSRB um símenntun og starfsþróun. Setrið býður upp á fjölbreytt úrval starfstengdra námsleiða og þverfagleg námskeið sem nýtast öllum. Námskeiðin eru haldin um allt land í samstarfi við vinnustaði og fræðsluaðila. Þjónusta Starfsmenntar er opin öllum en aðlöguð að þörfum stofnana eða starfshópa og án endur- gjalds fyrir félagsmenn sem hluti af samnings- bundnum réttindum þeirra til starfsþróunar. www.smennt.is Fræðslusetrið Starfsmennt · Grettisgötu 89 · Sími 525 8395 A T A R N A N ÝTTForvitnilegt og framsækið nám Starfsmennt býður upp á nýtt nám þar sem áhersla er lögð á að þróa, stýra, skapa og skipuleggja. Nám fyrir starfsfólk í stjórnunareiningum (52 kst) Viltu sérhæfa þig í samstarfi við stjórnendur? Viltu auka hæfni þína til að takast á við flóknari verkefni? Nokkrir námsþættir: • Skilvirkir fundir og viðburðastjórnun • Uppsetning og röðun tækja • Um leiðtogahæfni • Líkamsbeiting og álagsstjórnun • Þjónustu- og upplýsingastjórnun • Viðhorf og virkni í breytingum • Hugarkort og áætlanir • Drifkraftur í teymisvinnu Námið hefst 11. okt. í öllum landshlutum. Talsmaður breytinga (72 kst) Viltu kynnast breytingastjórnun? Viltu hafa áhrif á vinnustað? Nokkrir námsþættir: • Starfsmaðurinn og breytingar • Viðtals- og samningatækni • Að vinna með jafningjum og veita forystu • Framsetning og miðlun upplýsinga • Að hvetja til náms og efla áhuga • Meistari og nýliði • Þekkingarstjórnun • Þátttökustjórnun Námið hefst 9. nóv. í Reykjavík. Fræðslusetrið Starfsmennt er samstarfsvettvangur starfs- manna og stjórnenda. Fræðslusetrið Starfsmennt er samstarfsvettvangur ríkisins og flestra stéttarfélaga BSRB um starfsþróun og símenntun. Mark- mið setursins er að koma til móts við breytingar á starfsumhverfi og störfum starfsfólks með fræðslu og ráðgjöf. Setrið var stofnað árið 2001 og starfar á grunni bókana í kjarasamningum á milli fjármála- ráðuneytisins og stéttarfélaga rík- isstarfsmanna, en nýlega bættust einnig við mörg félög bæjarstarfs- manna. Þjónusta Starfsmenntar er öllum opin og án endurgjalds fyrir félagsmenn aðildarfélaganna þar sem litið er á starfstengda sí- menntun sem sjálfsagðan hluta starfa. SÍMENNTUN ER SAMOFIN STÖRFUM Starfsmennt býður stofnunum og starfshópum upp á sérsniðnar starfstengdar námsleiðir þar sem bæði er gætt að fagmennsku og sveigjanleika. Námsleiðir Starfs- menntar mynda heildarnámskerfi stofnana eða starfsgreina og geta varað í 20-240 stundir. Starfsmennt hefur þannig t.a.m. sett upp fræðslu fyrir starfsfólk sýslumannsemb- ætta, dómstóla, tollstjóra, fanga- varða, launafulltrúa og faggreina á félags- og heilbrigðisviði. Nám- inu er ýmist skipt upp í stök nám- skeið eða stærri námslotur sem starfsmenn velja úr í samræmi við eigin fræðsluþarfir og framtíðar- sýn stofnana. Stýrihópar starfa innan hverrar námsleiðar og ráða hraða, framboði og fyrirkomulagi náms. Þar er einnig hægt að breyta áherslum og inntaki ef breytingar verða á starfsumhverfi og er þannig tryggt að nám úreldist ekki. SKÝR SÍMENNTUNARÁÆTLUN Starfstengdar námsleiðir Starfs- menntar eru eins mismunandi og þær eru margar enda ráða óskir starfsmanna og stjórnenda för. Námið er í senn einstaklingsmið- að og sameiginlegt öllum starfs- mönnum tiltekinna stofnana sem þeirra símenntunarkerfi. Það rímar við starfsmarkmið stofnana og er rauði þráðurinn í fræðslustarfi þeirra. Starfsfólk hefur því skýra yfirsýn en ferðast um kerfið á sinn einstaka hátt. Og þar sem Starfs- mennt styðst við rafræna umsýslu náms er kennt um allt land í sam- starfi við vinnustaði, fræðslusjóði, skóla og símenntunarmiðstöðvar. FAGLEGT SAMSTARFSNET Starfsmennt byggir starfsemi sína á víðtæku tengslaneti hagsmunaað- ila og fær eingöngu til liðs við sig fagfólk til að sjá um framkvæmd náms. Leiðbeinendur eru ýmist kennarar eða reyndir sérfræðingar með þekkingu á fullorðinsfræðslu eða vinnumarkaði. Þá gefur setr- ið reglulega út námsvísa og vef- fréttabréf til að kynna möguleika á markvissri starfstengdri fræðslu. Mikil áhersla er lögð á öflugt kynn- ingarstarf til að hvetja til náms og vekja fólk til vitundar um mikil- vægi símenntunar. RÁÐGJÖF OG STARFSÞRÓUN Starfsmennt veitir stofnunum einnig margs konar þjónustu til að greiða leið lærdóms á vinnustað með ráðgjöf, fræðslu og greininga- vinnu. Starfsmennt kostar vinnu ráðgjafans að því gefnu að afurð- ir vinnunnar nýtist markhópi set- ursins. Þá er hægt að panta fjölda farandfyrirlestra í hús eða óska eftir náms- og starfsráðgjöf. Setr- ið greiðir einnig leið starfsfólks á námskeið m.a. með ferða- og dval- arstyrkjum og tekur þátt í margs konar þróunarverkefnum á sviði sí- menntunar. Nú um stundir er sér- stök áhersla lögð á úrræði og ráð- gjöf fyrir atvinnuleitendur og aðra þá sem eru að takast á við breyting- ar á vinnustað til að auðvelda þeim að landa nýju starfi. ÁVINNINGUR OG ÁRANGUR Þjónusta setursins hefur verið vel nýtt undanfarin ár og 5200 manns sótt nám á vegum þess um land allt. Allar námsleiðir Starfsmenntar eru samstarfsverkefni þar sem starfs- menn geta vænst þess að efla lið- sanda, starfsemi, þekkingu og færni í takt við síbreytilegt umhverfi. Starfsmennt hefur alltaf talið það farsælast að allir hagsmunaaðil- ar vinni saman að menntun starfs- fólks og tryggi þannig jafnan að- gang að námi og nýjum tækifærum. Slíkt samstarf við sýslumannsemb- ættin skilaði setrinu starfsmennta- verðlaunum 2008 í flokki skóla og fræðsluaðila. Starfsmennt byggir því á traustum grunni og er tilbú- in til að mæta nýjum áskorunum til að efla gæði, samstarf og þátttöku í starfstengdri símenntun. Starfstengd símenntun Hulda Anna Arnljótsdóttir, framkvæmdastjóri fræðslusetursins, og Árni Stefán Jóns- son stjórnarformaður taka stöðuna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.