Fréttablaðið - 16.09.2010, Blaðsíða 36
16. SEPTEMBER 2010 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● starfsmennt
Starfsafl er í eigu Flóabanda-
lagsins, Eflingar, Hlífar og
VSFK, og Samtaka atvinnu-
lífsins og styrkir félagsmenn
og fyrirtæki í starfsmennt-
un. Sveinn Aðalsteinsson er
framkvæmdastjóri Starfsafls
fræðslusjóðs.
„Í raun hefur orðið alger sprenging
hjá okkur í umsóknum um fræðslu-
styrki eftir hrun. Við veittum um
50% fleiri styrki árið 2009 en 2008
og upphæðirnar voru samtals 80%
hærri 2009. Við styrkjum félags-
menn Eflingar, Hlífar og Verka-
lýðsfélagsins í Keflavík og það er
ljóst að þeir félagsmenn hafa ekki
farið varhluta af lélegu atvinnuá-
standi eftir hrun. Við erum mjög
ánægð að fólk skuli leita til okkar
í þessu árferði og nýta sinn kjara-
samningsbundna rétt,“ segir Sveinn
Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri
Starfsafls fræðslusjóðs. Starfsafl
er í eigu Flóabandalagsins, Efling-
ar, Hlífar og VSFK, og Samtaka
atvinnulífsins. „Stéttarfélögin sjá
um upplýsingar og aðstoð við fé-
lagsmenn sem óska eftir fræðslu-
styrk þannig að félagsmenn snúa
sér fyrst og fremst til síns félags,“
bætir Sveinn við.
„Starfsafl fjármagnar þrenns
konar verkefni. Í fyrsta lagi greið-
um við einstaklingsstyrki, setjum
reglur um upphæðir, fylgigögn og
þess háttar. Í öðru lagi styrkjum
við fyrirtæki sem vilja mennta sitt
starfsfólk í Flóabandalaginu. Þetta
hefur verið eitt af okkar megin-
verkefnum því almennt gera fyr-
irtækin sér ekki grein fyrir þeim
möguleikum sem þau hafa í þess-
um efnum. Í þriðja lagi styrkj-
um við ýmis verkefni sem styrkja
starfsmenntaumhverfið, námsefni
og fleira.“
Geta félagsmenn fengið
styrk í hvaða nám sem er? „Við
skiptum styrkjum í tvo flokka,
starsfmenntanám og tómstunda-
nám. Við veitum hærri styrki eða
allt að 75% kostnaðar í starfs-
menntanám þó aldrei meira en
60 þúsund krónur á ári fyrir fé-
lagsmenn í fullu starfi. Það getur
verið tölvunám, enskunám, nám
í símenntunarmiðstöðvum sem
er starfstengt, ökunám og fleira.
Tómstundastyrkirnir eru svo 50%,
þó aldrei meira en 18 þúsund krón-
ur á ári. Það getur í raun verið
hvað sem er en við reynum að hafa
eftirlit með fræðsluaðilum og vilj-
um í öllum tilvikum fá lögformlega
reikninga. Ég bendi á skrifstof-
ur stéttarfélaganna fyrir frekari
upplýsingar og einnig á vefsíðuna
starfsafl.is.“
Hvernig virka styrkir til fyrir-
tækja – getur hver sem er sótt um
hvað sem er? „Svo framarlega sem
fyrirtækið hefur félagsmenn Efl-
ingar, Hlífar eða VSFK í vinnu þá
getur fyrirtækið sótt um styrk hjá
okkur til að kosta starfsmenntun
félagsmanna. Yfirleitt veitum við
75% styrk af kostnaði við starfs-
menntanám og það getur verið
mjög fjölbreytt. Við höfum styrkt
starfsmenntun og námskeið fyr-
irtækja í matvælavinnslu, ræsti-
tækni, vistakstri, hópefli, íslensku-
nám og fleiru. Við skipuleggjum
ekki námskeið en getum bent á
fræðsluaðila ef fyrirtækin vilja,“
segir Sveinn og bendir fyrirtækj-
um á að hafa samband við Starfs-
afl til að fá frekari upplýsingar eða
fara á vefsíðuna starfsafl.is.
Styrkjum starfsmenntun
Við erum mjög ánægð að fólk skuli leita til okkar í þessu árferði og nýta sinn kjarasamningsbundna rétt,“ segir Sveinn Aðalsteins-
son, framkvæmdastjóri Starfsafls fræðslusjóðs. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Starfsafl og fleiri fræðslusjóðir hafa nú í rúmt ár
boðið fyrirtækjum upp á verkefnið „Fræðslustjóri
að láni“. Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri
Starfsafls, útskýrir verkefnið nánar.
„Fræðslustjóri að láni hefur vakið mikla lukku
meðal þeirra fyrirtækja sem hafa tekið þátt. Alls
hafa tæplega 40 fyrirtæki fengið þessa fyrir-
greiðslu, mörg hver stór en flest með 20-
100 starfsmenn. Verkefnið gengur út
á það að fræðslusjóðirnir lána út sjálf-
stæðan mannauðsráðgjafa, fyrirtækjum
að kostnaðarlausu, sem fer yfir þjálfunar-
mál fyrirtækisins og býr til símenntunar-
áætlun í fullu samráði við stjórnendur og
starfsmenn. Mannauðsráðgjafinn leitar upp-
lýsinga hjá bæði stjórnendum og starfsmönn-
um, hvað er vel gert og hvað má betur fara í
þjálfunarmálum fyrirtækisins. Þetta hefur gefið
mjög góða raun, fyrirtækin fá sérsniðna fræðslu,
skila betri vörum og þjónustu og þar með meiri
arði, starfsmenn verða ánægðari í starfi og marg-
ir hverjir fá aukna ábyrgð í starfi.
Við höfum ótal dæmi um þetta
frá þeim fyrirtækjum sem
hafa farið í gegnum þetta
prógramm með okkur.“
Hvað eiga stjórnendur
að gera til að taka þátt?
„Einfaldast er að hringja
í okkur eða senda okkur
póst, starfsafl@starfs-
afl.is. Allar upplýsing-
ar er líka að fá á vefsíð-
unni, starfsafl.is.“
Vel heppnuð fræðsluráðgjöf
Elsa Heimisdóttir, starfsmanna-
stjóri IKEA, tók þátt í verkefn-
inu Fræðslustjóri að láni haust-
ið 2009. „Okkur barst tölvupóstur
frá Starfsafli þar sem verkefnið
„Fræðslustjóri að láni“ var kynnt.
Við ákváðum að slá til og þiggja
gott boð. Þegar samningar höfðu
náðst um praktísk mál fengum við
fræðslustjórann í hús sem var ráð-
gjafi frá Attentus, Ingunn Björk
Vilhjálmsdóttir. Starfsafl greiddi
kostnaðinn.
Að loknu verkefninu, sem unnið
var fyrir starfsmenn sem greiða
í Eflingu stéttarfélag, hófst síðan
samstarf við Starfsmenntasjóð
verslunar- og skrifstofufólks til að
vinna að þjálfunarmálum þeirra
sem greiða í VR. Ingunn sá einnig
um þá vinnu, enda vel inni í málum
fyrirtækisins frá fyrra verkefni.
Ingunn setti sig vel inn í þarfir
fyrirtækisins og sýn stjórnenda á
hvaða stefnu fyrirtækið vildi taka
í þjálfunarmálum. Hún var með
raunhæf markmið og aðgerðir sem
miðuðu að því að bæta þjálfunar-
mál og auka þannig hæfni og getu
starfsmanna, öllum í hag. Ingunn og
það starf sem hún vann innan fyrir-
tækisins var mikil vítamínsprauta
fyrir starfsmenn starfsmannasviðs
og mannauðstengda umræðu innan
þess. Frábært verkefni sem skilaði
praktískum og raunhæfum niður-
stöðum um þjálfunarmál og sýn á
ýmsa ferla innanhúss. Bæði verk-
efnin voru mikil lyftistöng fyrir
fyrirtækið í heild,“ segir Elsa.
Lyftistöng fyrir IKEA
Elsa Heimisdóttir, starfsmannastjóri IKEA, segir fræðslustjóraverkefnið hafa verið
mikla lyftistöng fyrir fyrirtækið.
SETTU Í GANG
FINNDU NÁMSKEIÐ
VIÐ STYRKJUM ÞIG
1
2
3
VI
RK
JAÐ
U HÆFILEIKANA