Fréttablaðið - 16.09.2010, Blaðsíða 38
16. SEPTEMBER 2010 FIMMTUDAGUR
Símey, símenntunarmiðstöð
Eyjafjarðar er ört vaxandi
stofnun þar sem mikið er um
að vera.
„Símey er símenntunarmiðstöð
fyrir fullorðna og við erum að
gera mjög margt. Þungamiðjan í
starfseminni okkar er þó almennt
námskeiðahald. Við bjóðum upp
á námskeið í öllu mögulegu raun-
verulega. Það eru námskeið í tóm-
stundum, tungumálanámskeið,
persónuhæfninámskeið og starfs-
tengd námskeið. Við erum líka að
bjóða námskeið sem eru kennd
samkvæmt námskrá frá Fræðslu-
miðstöð atvinnulífsins og þau má
meta til eininga á framhaldsskóla-
stigi. Það hefur kannski verið hvað
mestur vöxtur í þeim námskeiðum
og eftirspurnin aukist mest milli
ára,“ segir Erla Björg Guðmunds-
dóttir, framkvæmdasjóri Símeyj-
ar.
„Svo hefur verið mjög ört vax-
andi hjá okkur þáttur náms- og
starfsráðgjafar og við erum með
þrjá náms- og starfsráðgjafa starf-
andi hjá miðstöðinni. Þeir taka fólk
í viðtöl og hafa verið að taka viðtöl
líka fyrir Vinnumálastofnun. Svo
vísa þeir fólki áfram bæði í nám
og störf. Hér er líka hægt að taka
áhugasviðskannanir og við bjóðum
upp á raunfærnimat.“
Erla segir að Símey vinni líka
mikið með fyrirtækjum. „Við bjóð-
um upp á þarfagreiningaraðferð
sem heitir markviss. Þá förum við
inn í fyrirtæki og tökum út, með
starfsfólki á vinnustaðnum, hver
er raunveruleg þörf fyrirtækis-
ins fyrir sí- og endurmenntun. Við
erum líka að koma að rekstri fjöl-
margra fyrirtækjaskóla. Þetta eru
svona þau fyrirtæki sem eru hvað
virkust þegar kemur að því að
bjóða starfsfólki upp á símenntun
og þá skipuleggjum við hana með
þeim og höldum utan um hana.“
Erla segir að það sé nóg að gera
og mikið fjör á miðstöðinni. „Við
urðum 10 ára í vor og erum með
starfstöð á Akureyri og líka úti á
Dalvík í námsverinu þar. Við erum
með níu starfsmenn á launaskrá og
svo eru um hundrað verktakar sem
koma að kennslu á námskeiðunum
á hverju ári. Þátttakendur á nám-
skeiðunum hafa verið svona um
þúsund á ári, mest héðan frá Akur-
eyri en við höfum verið með nám-
skeið á Grenivík og Ólafsfirði og
Dalvík og með tilkomu gagnanna
þá munum við þjónusta Siglufjörð.
Við erum að byggja við þannig að
það er mikið að gerast hjá okkur
og húsnæðið okkar mun stækka
um helming svo við sjáum fram á
að geta veitt mun betri þjónustu í
framhaldi af því.
Hér er mjög skemmtilegt and-
rúmsloft, bæði vegna fólksins
sem kemur hingað og fólksins
sem vinnur hérna en við munum
geta lagt miklu meiri áherslu á
það þegar við fáum meira pláss,
stóra kaffistofu og fleiri kennslu-
stofur.“
Haustönnin er byrjuð hjá Símey
en í vetur verður boðið upp á
fjölda mislangra námskeiða. „Nú
þegar eru hérna 150 manns sem
eru komnir af stað og það er allt
í vottuðu námsleiðunum sem má
meta til eininga á framhaldsskóla-
stigi. Af lengri námskeiðunum eru
enskunámskeið alltaf vinsæl og á
styttri námskeiðunum virðist ætla
að verða mest aðsókn á photoshop-
námskeið og námskeið í hunda-
þjálfun sem við erum að bjóða upp
á í fyrsta skipti,“ segir Erla.
Mikil aðsókn á námskeiðin
Erla Björg Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar,
segir mikið vera að gerast hjá Símey og mikla aðsókn á hin ýmsu námskeið.
MYND/HEIDA.IS
● HELSTU NÁMSGREINAR FRAMHALDSSKÓLASTIGS-
INS Nám og þjálfun í bóklegum greinum er 300 kennslustunda náms-
leið fyrir þá sem hafa áhuga á að taka grunnfögin á framhaldsskóla-
stigi. Kennt er tvisvar sinnum í viku á þriðjudögum og fimmtudögum frá
klukkan 16 til 19. Námsleiðin er ætluð þeim sem eru 20 ára og eldri.
Nám og þjálfun í bóklegum greinum er tilvalin námsleið fyrir þá sem
hafa hug á að fara í iðnnám eða eru að fara í gegnum raunfærnimat.
Helstu námsgreinar eru íslenska 102, danska 102, enska 102 og stærð-
fræði 102 og 122.
Einnig er boðið upp á Nám og þjálfun í bóklegum greinum fyrir út-
lendinga sem hafa ákveðinn grunn í íslensku.
Helstu námsgreinar eru
íslenska 102, 202
og 212, danska,
enska 102 og
stærðfræði
102.
Námið
er metið
til eininga á
framhalds-
skólastigi.
Nánari
upplýsingar
á simey.is
● FERÐAST HEIMA Í
STOFU Flakkað um heiminn
á netinu er stutt námskeið hjá
Símey þar sem er farið í þau for-
rit sem eru í boði í dag til að
flakka um heiminn úr stóln-
um heima hjá sér. Meðal þess
sem er kennt á eru forrit eins og
Google earth sem er með loft-
myndir af öllum heiminum og
Google maps þar sem hægt er
að skoða kort af helstu borgum
og stöðum í heiminum og upp-
lifa í þrívídd.
Námskeiðið er 6 kennslu-
stundir og leiðbeinandi er
Vilberg Helgason.