Fréttablaðið - 16.09.2010, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 16. september 2010
Viðskiptalausn frá HugAx
hugsar um
Heilsuna
Guðríðarstíg 2–4
113 Reykjavík
Sími 545 1000
www.hugurax.is
„Með Ópusallt hef ég góða
yfirsýn yfir reksturinn,
möguleikarnir á að vinna
með upplýsingar eru óþrjótandi
og ég get horft á marga þætti
í rekstrinum frá ólíkum
sjónarhornum. Ópusallt hefur
auðveldað okkur að taka upp
nýjar vinnureglur og ferla
og þegar allt er tekið saman
hefur Ópusallt sparað okkur
mikla fjármuni.“
Þórarinn Þórhallsson,
framkvæmdastjóri Heilsu ehf.
Ópusallt – gerir allt!
Ópusallt er allt í senn: Stjórntæki, upplýsingakerfi
og bókhaldskerfi. Allt viðmót er einstaklega
þægilegt, lítið mál að setja upp sölunótur,
reikninga, tilboð o.fl.
Íslenskur hugbúnaður
fyrir íslenskar aðstæður
Ópusallt er hannað fyrir íslenskt viðskiptaumhverfi.
Fyrir vikið þarf ekki að verja dýrmætum tíma í aðlögun
kerfisins að íslenskum aðstæðum. Notendur Ópusallt
þurfa heldur ekki að greiða leyfisgjöld sem taka mið
af himinháu erlendu gengi.
Heilsa ehf. er elsta fyrirtæki á Íslandi sem sérhæfir sig í innflutningi og dreifingu á lífrænum matvörum, jurtum,
fæðubótarefnum og vistvænum snyrtivörum og hreingerningarvörum. Fyrirtækið flytur inn vörur frá yfir fimmtíu birgjum
víða í Evrópu, Norðurlöndunum, Bandaríkjunum og Kanada. Vörur frá Heilsu eru seldar í öllum apótekum, heilsubúðum,
matvöruverslunum og í eigin verslun. Viðskiptavinirnir skipta hundruðum og umsvif fyrirtækisins eru því veruleg og
starfsemin viðamikil. Ópusallt heldur utan um alla sölu, birgðahald og fjármál Heilsu.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
10
12
38
KJARTAN GUÐJÓNSSON
ÓLAFÍA HRÖNN JÓNSDÓTTIR
Baltasar Kormákur og Sögn ehf kynna
Kvikmynd eftir Grím Hákonarson
FRUMSÝND
17. SEPTEMBER
Neytendasamtökin fagna því að
Alþingi hafi loksins samþykkt
lög um málsóknarfélög, sem gera
hópmálsóknir mögulegar. Þetta
kemur fram í frétt á vef samtak-
anna. Þar segir að samtökin hafi
hvatt til slíkrar lagasetningar um
árabil. Hópmálsókn sé úrræði sem
notað er þegar hópur fólks geri
skaðabótakröfu á hendur tiltekn-
um aðila. Það sé mjög mikilvægt
því oft sé ekki um það háar upp-
hæðir að ræða fyrir hvern og einn
að það svari kostnaði að höfða mál
fyrir dómstólum.
Háar upphæðir geti þó verið í
húfi fyrir hópinn í heild. „Það kom
berlega í ljós eftir að upp komst
um verðsamráð olíufélaganna
hversu mikilvægt það er fyrir
neytendur að geta höfðað sameig-
inleg mál fyrir dómstólum,“ segja
samtökin. - sh
Neytendasamtökin ánægð:
Lögum um hóp-
málsókn fagnað
Neytendasamtökunum hafa bor-
ist ábendingar frá foreldrum um
að sælgæti sé til sölu þar sem fólk
á síst von á því. „Þannig er hægt
að kippa með sér nammipoka í
flestum bókabúðum, byggingar-
vöruverslunum og jafnvel í póst-
húsinu,“ segir í frétt í Neytenda-
blaðinu.
Í blaðinu er bent á að talsmaður
neytenda hafi sett leiðbeiningar-
reglur um aukna neytendavernd
barna, og þar sé kveðið á um að
leitast skuli við að sælgæti séu
ekki við alla afgreiðslukassa. Van-
höld séu á að það sé virt. - sh
Erfitt að forðast freistingarnar:
Sælgæti á ólík-
legustu stöðum
SÆLGÆTI Gotteríið leynist víða.
„Besta ráðið til að fá beinar línur á
nýmálaða veggi er að nota máln-
ingarlímband. Maður setur límband
á þann hluta sem skurðurinn á að
koma á og málar síðan yfir límband-
ið. Málningin lekur undir límbandið
og inn í allar misfellur og loftgöt á
veggjum. Málningin er látin þorna.
Eftir það er hægt að mála það sem er
hinum megin límbandsins í öðrum
lit í beinni línu,“ segir Logi Karlsson,
markaðsstjóri ferðaskrifstof-
unnar Arctic Adventures.
Það var bróðir Loga sem
kenndi honum þessa góðu
aðferð og notaði Logi
hana þegar hann málaði
íbúð sína í febrúar.
„Hún er flekklaus,“
segir Logi.
GÓÐ HÚSRÁÐ
MÁLAR BEINAR LÍNUR
■ Logi Karlsson markaðsstjóri kann
réttu aðferðina við að mála vegg.