Fréttablaðið - 14.10.2010, Page 4
4 14. október 2010 FIMMTUDAGUR
Svanur Sigurbjörnsson, læknir.
Bergvin Odds-
son, skemmti-
kraftur og
rithöfundur.
Svavar Kjarrval
Lúthersson.
Sigþrúður
Þorfinnsdóttir,
lögfræðingur.
Frosti Sigur-
jónsson,
stjórnarformaður
Dohop.
Bolli Héðinsson,
hagfræðingur.
Eiríkur Mörk
Valsson, fram-
kvæmdastjóri.
Ólafur Sigurðs-
son, fyrrum
fréttamaður.
Þorbergur Þórsson, hagfræðingur
og heimspekingur.
Þorkell Helgason, stærðfræðingur.
Jón Steindór Valdimarsson, lög-
fræðingur.
Þeir sem vilja láta framboðs síns
getið í Fréttablaðinu geta sent til-
kynningu ásamt mynd á ritstjórn
blaðsins.
Framboðsfrestur fyrir kosning-
ar til stjórnlagaþings rennur út á
mánudag. Enn sem komið er hafa
mun fleiri karlar en konur til-
kynnt um framboð.
Þá lýsir Þorvaldur Gylfason
prófessor því yfir í grein á síðu
25 að hann bjóði sig fram til
stjórnlagaþings.
Framboð til stjórnlagaþings
Stjórnlagaþing:
Fleiri karlar en
konur í framboð
SAMFÉLAGSMÁL Borgarráð hefur
samþykkt að stytta afgreiðslu-
tíma veitingastaða í miðborginni.
Hugmyndin er að frá og með ára-
mótum verði mest opið til klukk-
an fimm og hálfu ári síðar verði
afgreiðslutími aftur styttur um
hálftíma. Tillagan var samþykkt.
Fulltrúar Besta flokksins í
borgarráði lögðu fram bókun
um að skortur væri á áfengis-
stefnu í Reykjavíkurborg og rök-
rétt framhald af reykingabanni á
skemmtistöðum væri innleiðing
áfengisbanns í kjölfarið. - sv
Afgreiðslutími skemmtistaða:
Mun styttast
um áramótin
STJÓRNMÁL Allir voru sammála um
að taka þurfi á skuldavanda heim-
ilanna en mikið bar á milli um
aðferðirnar á samráðsfundi um
skuldavanda heimilanna í Þjóð-
menningarhúsinu í gærkvöldi.
Fundinn sátu stjórnendur fjár-
málafyrirtækja, hagsmunagæslu-
aðilar almennings og þingmenn
allra flokka.
„Þetta var mjög gagnlegur fund-
ur, það hvessti vissulega mjög milli
manna og var tekist hart á,“ sagði
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra eftir fundinn. Eitt af
stóru málunum á fundinum voru
hugmyndir um flata niðurfærslu
skulda fyrir almenning.
„Það er alveg ljóst að það ber
töluvert á milli, en niðurstaða fund-
arins er sú að það er sameiginleg-
ur vilji til að taka á skuldavanda
heimilanna,“ segir Jóhanna.
Fundinn sátu fulltrúar viðskipta-
bankanna, Íbúðalánasjóðs og líf-
eyrissjóðanna, auk ýmissa hags-
munagæsluaðila almennings. Hann
sátu einnig þingmenn úr fjórum
þingnefndum Alþingis auk fimm
ráðherra.
Jóhanna segir að fundinn hafi
setið allir þeir sem þurfi að koma
að því að leysa skuldavanda
almennings. Það sé skylda þessa
hóps að finna lausn á skuldavanda
heimilanna, og það verði gert.
„Við munum hittast aftur. Hvort
sem við þurfum einn, tvo eða þrjá
fundi til viðbótar munum við halda
áfram að funda þar til komin er
niðurstaða í þessu máli,“ segir
Jóhanna.
Hópur sérfræðinga mun nú fara
yfir þær tillögur sem fram komu
á fundinum, og fljótlega verð-
ur boðað til annars fundar til að
halda áfram með málið. Jóhanna
segir ekki rétt að gefa fólki of
miklar væntingar um flata niður-
fellingu skulda, enda afar misjafn-
ar skoðanir um mögulegar lausnir
á vandanum.
„Þarna voru allir tilbúnir til að
vinna saman og finna lausnir,“
segir Steinþór Pálsson, bankastjóri
Landsbankans. Hann segir skoðan-
ir skiptar um leiðirnar, en vinnunni
verði haldið áfram.
Hann segir fulltrúa bankanna
sammála um að taka verði á vand-
anum þar sem hann sé mestur. Það
myndi verða þjóðarbúinu dýrt að
fara í flata niðurfærslu skulda, og
ekki gagnast þeim sem illa standi.
„Þetta var spjallfundur, menn
voru að ræða stöðuna og möguleg-
ar lausnir,“ segir Ásta H. Braga-
dóttir, settur framkvæmdastjóri
Íbúðalánasjóðs. Hún segir að
umræðurnar hafi verið líflegar,
og sjónarmiðin misjöfn. Allir hafi
þó verið sammála um að reyna að
leysa vandann. brjann@frettabladid.is
Allir sammála um að
leysa skuldavandann
Töluvert bar á milli á fundi fulltrúa fjármálastofnana með hagsmunagæsluað-
ilum almennings og þingmönnum. Skylda þessa hóps að finna lausn á skulda-
vandanum segir forsætisráðherra. Hún segir ljóst að bráðaúrræði dugi ekki.
SAMRÁÐSFUNDUR Fulltrúar fjármálastofnana og talsmenn skuldugra heimila skiptust
á skoðunum á samráðsfundi í Þjóðmenningarhúsinu í gærkvöldi. Hér heilsast Marínó
G. Njálsson, stjórnarmaður í Hagsmunasamtökum heimilanna, og Steinþór Pálsson,
bankastjóri Landsbankans. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VIÐSKIPTI Öllum sjö starfsmönnum
Sambands íslenskra sparisjóða
(SÍSP) hefur verið sagt upp störf-
um. Ólafur Elísson, stjórnar-
formaður sambandsins, segir
uppsagnirnar hluta af endur-
skipulagningu SÍSP.
Ólafur segir að starfsmenn-
irnir muni vinna út uppsagnar-
frest sinn, sem sé mislangur.
Framhaldið skýrist væntanlega
á næstu vikum, samhliða endur-
skipulagningu sparisjóðanna.
SÍSP er málsvari sparisjóðanna
og stendur vörð um hagsmuni
þeirra. - bj
Endurskipuleggja samtök:
Öllu starfsfólki
SÍSP sagt upp
SLYS Þyrla Landhelgisgæslunnar
þurfti að hverfa frá við Hvanna-
dalshnúk á dögunum þar sem
litast var um eftir klifurlínu og
öðrum hlutum sem gætu tengst
þýskum fjallgöngumönnum sem
hurfu á þessum slóðum árið 2007.
Aðstæður voru erfiðar og ekk-
ert skyggni, að sögn lögreglunnar
í Höfn, og verður beðið með könn-
unarferðir fram á næsta sumar.
Fjallgöngumenn gengu fram á
klifurlínuna í vesturhlíð fjalls-
ins í síðasta mánuði en lögregla
vill ítreka að enn sé ekki hægt að
slá því föstu að þessi lína teng-
ist hvarfi fjallgöngumannanna
þýsku. - þj
Gæslan við Hvannadalshnúk:
Bíða með leit
fram á sumar
TF-LÍF Þurfti frá að hverfa.
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
GENGIÐ 13.10.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
195,1685
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
110,83 111,35
175,63 176,49
154,78 155,64
20,753 20,875
18,989 19,101
16,696 16,794
1,354 1,362
174,21 175,25
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
SÆKTU UM
STAÐGREIÐSLUKORT
Á OLIS.IS
P
IP
A
R
\T
B
W
A
-
S
ÍA
-
1
02
47
9
Vinur við veginn
Vil
dar
pu
nkt
ar
Ice
lan
dai
r
-3k
r.
af e
lds
ney
ti
Afs
lát
tur
af
vör
um
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
25°
14°
12°
14°
14°
17°
12°
12°
24°
14°
25°
17°
30°
8°
15°
22°
8°Á MORGUN
Hægur vindur en vaxandi
SA-átt SV-til síðdegis.
LAUGARDAGUR
Strekkingur V-til,
annars hægari.
10
10
10
10
6
12
8
8
8
9
7
13
10
8
7
6
5
4
6
4
5
4
10
9
8 7
8
10
10
10
13
12
BLAUTT EN
SÆMILEGT Litlar
breytingar á veðri
næstu daga en það
lítur út fyrir rign-
ingu með köfl um á
suðvesturhorninu.
Bendi þeim á sem
ætla að rölta milli
staða á Airwaves-
hátíðinni að hafa
regnhlífi na eða
regnstakk með-
ferðis.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
IÐNAÐUR Um 1.300 ársverk verða
til við framkvæmdir vegna fram-
leiðsluaukningar í álveri Rio Tinto
Alcan í Straumsvík og byggingu
Búðarhálsvirkjunar sem Lands-
virkjun mun ráðast í til að afla
orku vegna stækkunarinnar.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá iðnaðarráðuneytinu.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráð-
herra undirritaði samninginn fyrir
hönd ríkisstjórnarinnar og Rann-
veig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi,
undirritaði samninginn fyrir hönd
fyrirtækisins.
Fjárfesting Alcan nemur tæp-
lega sextíu milljörðum króna, og
áætlað er að 620 ársverk verði til á
framkvæmdatímanum. Áætlað er
að framleiðslan aukist um tæplega
fjörutíu þúsund tonn á ári.
Landsvirkjun mun hefja fram-
kvæmdir við Búðarhálsvirkjun til
að mæta orkuþörf vegna stækkun-
arinnar. Fyrirtækið mun fjárfesta
um 26 milljarða í virkjuninni, og
munu á bilinu 600 til 700 ársverk
verða til á byggingartíma virkjun-
arinnar.
Fram kemur í tilkynningu iðnað-
arráðuneytisins að um sé að ræða
stærstu einstöku fjárfestinguna í
atvinnuuppbyggingu frá falli fjár-
málakerfisins. - bj
Ríkið semur um orkusölu vegna framleiðsluaukningar í álverinu í Straumsvík:
Um 1.300 ársverk við framkvæmd
STRAUMSVÍK Fjárfesting vegna fram-
leiðsluaukningar í álverinu í Straums-
vík er stærsta einstaka fjárfestingin í
atvinnuuppbyggingu frá falli fjármála-
kerfisins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON