Fréttablaðið - 14.10.2010, Page 22
14. október 2010 FIMMTUDAGUR22
Umsjón: nánar á visir.is
Hjá Actavis starfa rúmlega tíu þúsund
manns víða um heim. Þar af voru hér
630 um síðustu áramót. Fyrirtækið
hefur á árinu unnið að því að stækka
lyfjaverksmiðju sína í Hafnarfirði en
við það mun framleiðslugetan hér
aukast um helming. Samhliða því
var gert ráð fyrir að ráða fimmtíu
nýja starfsmenn á árinu. Þeir eru nú
rúmlega 700 talsins og er búist við
að þeim muni fjölga um í kringum
fjörutíu á næstu mánuðum. Það
jafngildir tæplega fimmtán prósenta
fjölgun starfa. Aðallega hefur starfs-
fólki fjölgað í pökkunar- og töfludeild,
auk þess sem ráðið hefur verið í störf á
gæðasviði og á fleiri sviðum í tengslum
við stækkunina.
HÖFUÐSTÖÐVAR ACTAVIS Rúmlega
tíu þúsund manns vinna hjá Actavis.
Þar af eru rúmlega sjö hundruð hér á
landi. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Fjölga starfsmönnum hér um 15 prósent
20
Fjárhagsleg
endurskipulagning
fyrirtækja
Haustráðstefna KPMG
28. október / Grand Hótel
KPMG blæs til haustráðstefnu þar sem fjallað
verður um fjárhagslega endurskipulagningu
fyrirtækja og er leitað í þekkingar- og
reynslubrunn nokkurra áhugaverðra fyrirlesara.
Ráðstefnan byrjar með hádegisverði
klukkan tólf og dagskráin hefst formlega
klukkan eitt. Ráðstefnugjald er 7.500 kr.
Skráning fer fram á www.kpmg.is
Dagskrá
Fjármálakreppan og aðlögun
íslensks efnahagslífs
Már Guðmundsson,
Seðlabankastjóri
Fjárhagsleg endurskipulagning
– hvernig mætast sjónarmið
fyrirtækja og kröfuhafa
Michael Dance, sérfræðingur í
fjárhagslegri endurskipulagningu
Lífið eftir endurskipulagningu
Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips
Reynslusaga af flóknu
endurskipulagningarferli
H. Ágúst Jóhannesson, KPMG
Eru enn til staðar hindranir í endur-
skipulagningu og viðreisn fyrirtækja?
Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri
Viðskiptaráðs Íslands
Pallborðsumræður
Stjórnandi: Halla Tómasdóttir,
stjórnarformaður Auðar Capital
Ráðstefnustjóri
Auður Ósk Þórisdóttir, KPMG
Claudio Albrecht, forstjóri Acta-
vis, sest í stól stjórnarformanns
eftir fjárhagslega endurskipu-
lagningu fyrirtækisins. Breyting-
ar verða jafnframt á stjórn Acta-
vis. Ný stjórn fundar í fyrsta sinn
í byrjun næsta árs. Hann verður
áfram forstjóri fyrirtækisins.
Fjárhagslegri endurskipulagn-
ingu á skuldum Björgólfs Thors
Björgólfssonar, fráfarandi stjórnar-
formanns Actavis, lauk í júlí í
sumar. Samhliða því var unnið í
málum Actavis.
Samkvæmt uppgjöri Björgólfs
sem greint var frá í sumar verð-
ur hann áfram hluthafi í Acta-
vis, Play, CCP og Verne Holding.
Arður af eignarhlutum í félögun-
um, sem og verðmæti þeirra verði
þeir seldir, munu hins vegar fara
upp í skuldir hans við innlenda
og erlenda lánardrottna. Í sumar
var jafnframt greint frá því að
Björgólfur myndi sitja áfram í
stjórn Actavis.
Claudio Albrecht, sem settist
í forstjórastólinn seint í júní,
segir í samtali við Fréttablaðið
að mikilvægt hafi verið að endur-
skipuleggja skuldastöðu Actavis.
Þótt núverandi rekstrarár stefni
í að verða það besta frá upphafi
hafi skuldir verið slíkar að það
hefði verið þungur róður að greiða
af lánum. Því hafi þurft að laga
skuldastöðuna.
Ekki liggur fyrir hvað felst í
fjárhagslegri endurskipulagningu
Actavis að öðru leyti en því að
félagið var endurfjármagnað í
sumar. Líklegt er að nánar verði
greint frá breytingunni fljótlega.
Fram kom í tilkynningu frá Acta-
vis í júlí að fyrirtækið stefndi að
frekari vexti, einkum í Suður-Evr-
ópu, í Japan, Mið-Austurlöndum og
í Norður-Afríku. Það myndi leggja
áherslu á líftæknilyf, sem væru
dýr í þróun og krefðust því sterkr-
ar fjárhagsstöðu. Félagið vinnur
nú að áreiðanleikakönnun vegna
mögulegra kaupa á 51 prósents hlut
í svissneska líftæknifyrirtækinu
Biopartners og er gert ráð fyrir að
henni ljúki um næstu mánaðamót.
jonab@frettabladid.is
Stefnir í met-
ár hjá Actavis
Claudio Albrecht, forstjóri Actavis, verður stjórnar-
formaður fyrirtækisins. Fjárhagslegri endurskipu-
lagningu þess er lokið. Breytingar verða á stjórninni.
MILLJARÐAR KRÓNA eru heildarútlán Íbúðalánasjóðs á fyrstu níu mánuð-
um ársins. Það er tuttugu prósenta samdráttur miðað við sama tíma í fyrra.
Gengi hlutabréfa í bandaríska tölvufyrirtækinu
Apple fór yfir þrjú hundruð Bandaríkjadali á hlut
í fyrstu viðskiptum gærdagsins. Þetta var í fyrsta
sinn sem slíkt gerist. Það jafngildir því að eitt
hlutabréf í Apple hafi við upphaf viðskiptadagsins
vestanhafs í gær kostað 33.444 íslenskar krónur.
Bandaríska dagblaðið Washington Post bendir
á að gengi hlutabréfa hafi hækkað um 43 prósent
á árinu. Þá er bent á að í desember árið 2003 hafi
gengi hlutabréfanna staðið í tæpum tíu dölum á
hlut. Miðað við gengið við upphaf viðskiptadagsins
í gær hefur það hækkað þrjátíufalt á tímabilinu.
Washington Post bendir á að helsta ástæðan fyrir
velgengni Apple undanfarin ár sé farsæl markaðs-
setning raftækja á borð við tónhlöðuna iPod,
spjaldtölvuna iPad og snjallsímann iPhone. - jab
Gengi hlutabréfa bandaríska tæknirisans Apple hefur aldrei verið hærra:
Eitt bréf kostar 33.441 krónur
FORSTJÓRINN Claudio Albrecht, forstjóri
samheitalyfjafyrirtækisins, segir stefna í
metafkomu á árinu. Fyrirtækið vinnur að
enn einni yfirtökunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM