Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 28
28 14. október 2010 FIMMTUDAGUR
AF NETINU
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til að senda línu og leggja orð í belg um málefni
líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Tekið er á móti efni
á netfanginu greinar@frettabladid.is eða á vefsíðu Vísis, þar sem finna má nánari
leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum
miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni.
Í nýframlögðu fjárlagafrum-varpi fyrir 2011 eru framlög til
háskóla skorin verulega niður eins
og á við um flesta aðra málaflokka
í ríkisfjármálum. Um ástæður þess
þarf ekki að fjölyrða og er niður-
skurður hjá hinu opinbera óum-
flýjanlegur. Til að slíkar aðgerð-
ir skili árangri er forgangsröðun
lykilatriði og því vekur forgangs-
röðun niðurskurðar til kennslu á
háskólastigi furðu og er ekki til
þess fallin að efla íslenskt atvinnu-
líf til framtíðar. Á tímum þegar
nauðsynlegt er að efla nýsköpun
og byggja upp framleiðsludrif-
ið þjóðfélag og lífskjör sambæri-
leg við þau sem eru í nágranna-
löndum okkar kjósa stjórnvöld að
skera tækni- og raunvísindanám
mest niður af öllu háskólanámi
eins og sést á meðfylgjandi mynd,
sem sýnir breytingu á framlögum
ríkisins til háskóla fyrir hvern árs-
nemanda (nemandi í fullu námi í
eitt ár) milli áranna 2010 og 2011.
Öflugt tækninám á háskólastigi
er nauðsynleg undirstaða sterkrar
tækniþekkingar í atvinnulífinu og
sterk tengsl eru milli tækniþekk-
ingar og efnahagslegrar velgengni
þjóða. Undanfarna mánuði hefur
atvinnulífið kallað eftir því að
framhalds- og háskólar efli tækni-
menntun og skili nægilegum fjölda
vel menntaðs og öflugs tæknifólks
út í þjóðfélagið til að taka þátt í upp-
byggingu þekkingariðnaðar hér á
landi á næstu misserum. Í alþjóð-
legum samanburði hefur Ísland
verið aftarlega á merinni hvað varð-
ar hlutfall ungs fólks sem menntað
er í tækni og raunvísindum en þó
hefur tækninám verið að eflast hér
á landi á undanförnum árum. Með
þessari stefnubreytingu er því
miður horfið af þeirri braut.
Samanburður við háskóla á Norð-
urlöndum
Fjármögnun háskóla á Íslandi er
byggð upp með sama sniði og í
Danmörku og Svíþjóð, þ.e. að greitt
er fyrir ársnemendur með mis-
munandi verðflokkum eftir náms-
greinum, en þar að auki fá háskól-
arnir bein framlög til rannsókna.
Þegar borin eru saman fjárlaga-
frumvörp landanna fyrir árið 2011
sést að eftir þessa stefnubreytingu
íslenskra stjórnvalda er munur-
inn á framlögum til kennslu milli
landanna mestur í tækni- og raun-
vísindanámi, þar sem íslenskir
háskólar fá aðeins um 46% af þeim
framlögum sem háskólar í Dan-
mörku fá og 61% af þeim framlög-
um sem háskólar í Svíþjóð fá. Það
er því ljóst að íslensk stjórnvöld
eru á rangri leið í þessum málum.
Í fjárlagafrumvörpum þjóðanna
má einnig sjá að fjárframlög til ein-
stakra háskóla eru sláandi hærri á
Norðurlöndum en á Íslandi. Þar
má t.d. nefna að KTH- og Umeå-
háskólar í Svíþjóð og Álaborgarhá-
skóli í Danmörku (allt skólar með
sterkt tækninám) fá tvöfalt til þre-
falt hærri fjárframlög fyrir hvern
nemanda en íslenskir háskólar á
tæknisviðinu. Einnig má nefna að
danski tækniháskólinn, DTU, fær
um sjöfalt hærri fjárframlög sem
skýrist af mjög hárri rannsókna-
fjárveitingu, en þar standa íslenskir
háskólar mjög höllum fæti. Almennt
má segja að fjárveitingar þessara
skóla til rannsókna séu sambærileg-
ar við fjárveitingar til kennslu, en
fyrir íslenska skóla eru fjárveiting-
ar til rannsókna um eða innan við
50% af fjárveitingum til kennslu,
sem er of lágt til að halda úti öflugu
rannsóknarstarfi til langs tíma.
Lífskjör til framtíðar
Í íslenskum háskólum er unnið gott
starf á fjölmörgum sviðum. Tækni-
nám hér á landi hefur verið gott og
íslenskir nemendur hafa staðið sig
vel í námi og starfi í öðrum löndum.
Með minnkandi fjárveitingum
verður þó æ erfiðara að viðhalda
þessum árangri. Það er auk þess
staðreynd að þessi árangur hefur
að hluta til náðst á kostnað rann-
sókna. Rannsóknir á tæknisviðinu
eru nátengdar nýsköpun og þau lönd
sem standa efnahagslega sterkast
í heiminum byggja á háskólasam-
félagi og atvinnulífi með sterka
tækniþekkingu ásamt þróttmiklu
þróunar- og nýsköpunarstarfi.
Með núverandi fjármögnun munu
íslenskir háskólar á tæknisviðinu
verða eftirbátar háskóla í öðrum
löndum og mun það óumflýjanlega
koma niður á samkeppnishæfni og
lífskjörum íslensku þjóðarinnar til
framtíðar.
Forgangsröðun háskólanáms á villigötum
Menntamál
Gunnar Guðni
Tómasson
forseti tækni- og
verkfræðideildar
Háskólans í Reykjavík
Sigurður Magnús
Garðarsson
forseti umhverfis- og
byggingarverkfræði-
deildar Háskóla Íslands
Tækninám hér á landi hefur verið gott
og íslenskir nemendur hafa staðið sig vel
í námi og starfi í öðrum löndum. Með
minnkandi fjárveitingum verður þó æ
erfiðara að viðhalda þessum árangri.
4,0
2,0
0,0
-2,0
-4,0
-6,0
-8,0
-10,0
-12,0
-14,0
Pr
ós
en
t
Breyting framlaga pr. ársnemanda 2010-2011
Fé
la
gs
ví
si
nd
i
Tö
lv
un
ar
fræ
ði
Ke
nn
ar
an
ám
H
jú
kr
un
Tæ
kn
in
ám
+
ra
un
ví
si
nd
i
Læ
kn
is
fræ
ði
Ta
nn
læ
kn
in
ga
r
Segjum að það séu 20% líkur á að þú hafir sjúkdóm sem versn-
ar og versnar ef ekkert er að gert
og geti að lokum örkumlað þig eða
dregið til dauða. Myndirðu vilja
vita hvort þú bærir þennan sjúk-
dóm eða ekki? Eða hvernig finnst
þér að frétta að á meðal íslenskra
reykingamanna 40 ára og eldri séu
18% með lungnasjúkdóm sem heit-
ir langvinn lungnateppa og er nú að
skjótast upp í efstu sæti yfir dánar-
orsök fólks á Vesturlöndum? Sjúk-
dóm sem á alvarlegri stigum kallar
geysilega fötlun og lífsgæðaskerð-
ingu yfir fólk, en hefur hingað til á
vægari stigum þótt svo ómerkileg-
ur að læknar hafa sjaldnast fyrir
því að greina hann, jafnvel þótt
það verði auðveldlega gert með
einföldu blástursprófi. Þessi 18%
tala er niðurstaða íslenska hluta
fjölþjóðlegrar rannsóknar á far-
aldursfræði langvinnrar lungna-
teppu og var birt í Læknablaðinu
fyrir þremur árum. Sem betur fer
var helmingur aðeins með sjúk-
dóminn á byrjunarstigi, en samt
er ógnvænlegt að 9% allra yfir fer-
tugu skuli búa nokkuð örugglega
við skert lífsgæði og færni.
En hvað er langvinn lungna-
teppa? Það er sjúkdómur sem
einkennist af viðvarandi bólgu í
berkjum lungnanna og mismik-
illi skemmd loftskiptavefsins sem
veldur þeirri blöðrumyndun sem
kölluð er lungnaþemba. Það hægir
á loftflæði um lungun og viðvar-
andi skerðing á fráblástursgetu
kemur fram. Óeðlileg mæði, lang-
stæður hósti, ekki síst með slím-
uppgangi, öndunarerfiðleikar og
surg eða píp í brjósti geta verið
einkenni þessa sjúkdóms, og þó
að slík einkenni séu sem betur fer
engin sönnun fyrir sjúkdómi eru
þau gild ástæða til að láta mæla
hjá sér lungnastarfsemina með
blástursprófi.
En hvers vegna þetta fálæti um
svo algengan og alvarlegan sjúk-
dóm? Menn hafa sagt að ekki þurfi
að greina sjúkdóm sem ekkert væri
við að gera annað en að þeir sem
enn reyki hætti, því öllum er hvort
sem er hollast að hætta að reykja,
strax. En við þennan hugsunarhátt
veður að gera alvarlegar athuga-
semdir. Það er ekki rétt að ekkert
sé hægt að gera, þó að vissulega
finnist ekki nein töfralækning sem
gerir lungun heil á ný. Reglubundin
hreyfing og þjálfun bætir færni og
líðan á öllum stigum sjúkdómsins.
Lyf eru til sem bæta öndunargetu.
Næringarástand hefur mikla þýð-
ingu um framvindu sjúkdómsins og
reykleysi má styðja á ýmsan hátt,
með lyfjum, fræðslu og stuðningi.
Það hefur sýnt sig með æ skýrari
hætti að langvinn lungnateppa er
ekki bara sjúkdómur lungna held-
ur gætir um allt. Vöðvar og bein
rýrna, hjarta og æðakerfi farnast
verr og andleg heilsa er lakari en
hjá öðrum, svo eitthvað sé nefnt.
Hreyfing, góð næring og auðvitað
reykleysi eru því mikilvæg forvörn
gegn framgangi sjúkdóms sem
læðist lymskulega að fólki og nær
oft að ganga ótrúlega langt áður en
gripið er til aðgerða. Þess vegna
er mikilvægasta röksemdin fyrir
því að greina langvinna lungna-
teppu sem fyrst sú, að sá sem ekki
þekkir ástand sitt er sviptur tæki-
færinu til að bregðast sjálfur við
vandanum. Öndunarmælar eru
til á nær öllum heilsugæslustöðv-
um á Íslandi og bendi ég fólki á að
kanna möguleika á slíkri mælingu
á heilsugæslustöðinni sinni.
Nú er barist fyrir því um allar
jarðir að greina langvinna lungna-
teppu fyrr, með því að bjóða
almenningi blásturspróf. Fólk
yfir fertugu sem hefur einkenni
frá öndunarfærum eða hefur
reykt meira en 10-20 ár ævinnar
er hvatt til að fara í blásturspróf.
Liður í þessari baráttu er alþjóð-
legur dagur öndunarmælinga,
14. október. Af því tilefni býður
hjarta- og lungnarannsóknarstofa
Reykjalundar gestum og gangandi
upp á ókeypis blásturspróf þennan
dag á milli kl. 10 og 14. Þar verð-
ur að auki starfsfólk lungnasviðs
tiltækt og gefur ráðleggingar um
hreyfingu og þjálfun, næringu,
reykleysi og meðferð langvinnr-
ar lungnateppu. Verið velkomin,
því fyrst er að vita hvar sá stendur
sem vísa skal veginn.
Eru lungun í lagi?
Heilbrigðismál
Hans Jakob
Beck
yfirlæknir lungnasviðs á
Reykjalundi
Hreyfing, góð næring og auðvitað
reykleysi eru því mikilvæg forvörn
gegn framgangi sjúkdóms sem læðist
lymskulega að fólki og nær oft að
ganga ótrúlega langt áður en gripið er til aðgerða.
Útvarpsþátturinn Harmageddon
Ég var í dag, miðvikudaginn 12. október
2010, í viðtali í þættinum Harmageddon
á FM 977. Stjórnendurnir vildu óðir og
uppvægir gera upp hrunið og finna söku-
dólga, ekki síst í Sjálfstæðisflokknum. Ég
svaraði því til, að mikilvægast væri að
læra af mistökunum, svo að halda mætti
fram á við og upp á við. Til þess yrði auðvitað að vita
og greina, hver mistökin væru. [...] Ég andmælti því, að
setja mætti alla undir sama hatt og Jón Ásgeir og klíkuna
í kringum hann. Fjöldi íslenskra auðmanna og banka-
manna eru hinir mætustu. Hverri þjóð er nauðsynlegt að
eiga menn, sem skapa auð með dugnaði og fyrirhyggju.
Hverri þjóð er nauðsynlegt að eiga öfluga banka og góða
bankamenn. Ég minnti á, að lýðskrumarar reyna ætíð að
gera sér óvini: Nasistar réðust á Gyðinga, kommúnistar
á „auðvaldið“. Nú er reynt að gera alla auðmenn og
alla bankamenn að glæpamönnum, vegna þess að Jón
Ásgeir og klíkan í kringum hann misnotaði frelsið.
http://www.pressan.is/pressupennar/HannesHolm-
steinnGissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Umvafin hagræði
með raunhæfum lausnum
Borgartúni 37 | 105 Reykjavík | Sími 516 1000 | skyggnir.is
Hafðu samband við söluráðgjafa Skyggnis til að fá frekari upplýsingar.
Síminn er 516 1000 og netfangið: sala@skyggnir.is
Við skilum þér skýrum og mælanlegum ávinningi með lausnum okkar
og ráðgjöf. Hagræðing með Rent A Prent prentþjónustu, sýndarvæðingu
netþjóna og miðlægri stjórnun útstöðva þýðir aukna hagkvæmni, betri
nýtingu, minni orkunotkun og lægri kostnað.
Við umvefjum þig hagræði
Skyggnir - Rekstrarþjónusta án aukareikninga.
H
2
H
Ö
N
N
U
N