Fréttablaðið - 14.10.2010, Síða 32
14. október 2
Nýtni er ofarlega á blaði í kreppu-
ráðum og Fréttablaðinu lék for-
vitni á að vita hvort fólk væri farið
að nýta fötin sín betur og láta gera
við þau þegar þau færu að slitna.
Hringt var í fjórar saumastofur á
höfuðborgarsvæðinu og bar svar-
endum öllum saman um að við-
skiptin hefðu glæðst til muna eftir
að kreppan skall á.
Í Listasaumi í Kringlunni varð
Ingibjörg Ágústsdóttir, starfs-
maður saumastofunnar, fyrir
svörum. Hún segir það hafa auk-
ist mikið að fólk komi með föt til
að láta gera við þau. Gengur jafn-
vel of langt í því, segir Ingibjörg.
„Stundum eru fötin svo illa farin
að það borgar sig varla að gera
við þau. En fólki þykir kannski
vænt um flíkina, svo við segjum
aldrei að ekki sé hægt að gera við
hana heldur gerum okkar besta.“
Göt á áberandi stöðum eru þó
erfið viðfangs, því eftir því sem
Ingibjörg best veit er ekki lengur
nokkur manneskja á landinu sem
kann kúnststopp svokallað, það er
að stoppa í göt svo það sé varla
merkjanlegt. „Ég vildi svo gjarn-
an að einhver sem les þetta kynni
það og gæfi sig fram,“ segir Ingi-
björg. „Það er mikil þörf fyrir
þessa kunnáttu.“
Auður Þórisdóttir, eigandi
Saumsprettunnar við Aðalstræti,
segist aldrei fá verkefni sem hún
treysti sér ekki til að leysa. „Það
verður kannski ekki alveg eins og
það var, en við förum yfir það með
kúnnanum hvernig hægt er að
leysa vandamálið og höfum aldrei
sent neinn frá okkur með flíkina
óviðgerða.“ Hún segist hafa orðið
vör við gífurlega aukningu í við-
gerðum strax haustið 2008 sem
hafi stigmagnast fram á mitt ár
2009 og haldist nokkuð stöðug
síðan.
Arna Arnfinnsdóttir, annar eig-
andi Saumnálarinnar við Snorra-
braut, tekur í sama streng. Breyt-
ingarnar séu líka öðruvísi en áður,
nú sé fólk meira að halda fötun-
um við, en áður hafi verið algeng-
ara að fólk kæmi með dýrar flík-
ur og léti breyta þeim, þrengja eða
víkka, til að lengja líftímann.
Í Breytt og bætt í Smáralind
segir Gosia Jagusiak, eigandi
stofunnar, að það sé orðið miklu
algengara að fólk komi með föt
í breytingu. Hún hafi til dæmis
breytt pilsi í kjól um daginn. Annað
sem sé mun meira áberandi nú en
áður séu breytingar á jakkafötum
fyrir karlmenn, það hafi heyrt til
undantekninga fyrir kreppu. Erf-
itt sé að segja hvort það sé ódýr-
ara að láta breyta gömlum fötum
heldur en kaupa ný. Það fari eftir
umfangi breytinganna, en hægt sé
að fá kjól þrengdan frá sirka 3.000
krónum svo dæmi sé tekið. - fsb
Leysa hvers
manns vanda
Þegar harðnar í ári skjóta gamlar áherslur upp kollinum og fólk fer
að huga betur að því í hvað aurinn fer. Að láta gera við gömlu fötin í
stað þess að kaupa ný er eitt af því sem margir hafa gripið til.
Miklu algengara er nú en áður að fólk komi með föt til viðgerða og viðhalds á
saumastofum. Arna Arnfinnsdóttir í Saumnálinni reynir að verða við óskum við-
skiptavina eftir fremsta megni eins og starfssystur hennar á öðrum saumastofum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
RENNILÁS SETTUR Í BUXUR STYTTAR
Listasaumur 2.500 kr. 1.800 kr.
Saumsprettan 3.200 kr. 2.200-3.500 kr.
Saumnálin 2.800 kr. 2.000 kr.
Breytt og bætt 2.400 kr. 1.800 kr.
VERÐSAMANBURÐUR
Demantanáman í Kim-
berley í Suður-Afríku
er frægasta demanta-
náma heims. Næstum
helmingur allra dem-
anta sem fundist hafa
er frá Mið- og Suður-
Afríku en einnig hefur
fundist nokkurt magn
í Kanada, Indlandi,
Rússlandi, Brasilíu og
Ástralíu.
visindavefur.is
Varirnar má gera ómótstæðilegar í fjórum skrefum. 1. Notið varasalva til að mýkja
þær. 2. Mótið útlínurnar með varablýanti. 3. Berið náttúrulegan varagloss á varirnar. 4.
Takið ykkur ljósan augnskugga í hönd og berið í hring þar sem varirnar opnast. Þannig
dökknar liturinn eftir því sem nær dregur útlínunum og varirnar virðast fyllri.
Kynning