Fréttablaðið - 14.10.2010, Síða 40
14. OKTÓBER 2010 FIMMTUDAGUR
Skútuvogi 6 | 104 Reykjavík | Sími 568 6755 | www.alfaborg.is
Vandaður heill
sturtuklefi frá
Dansani úr gleri.
Tilboðsverð
119.900 kr.
Stærðir 80x80,
90x90 og 70x90.
Baðinnrétting
frá Dansani úr Eik.
Tilboðsverð
169.900 kr.
TRENTO
DAMASCO
20X31,6 frá
Porcelanosa.
Tilboðsverð til
15. nóvember
6.266 kr.
fermeterinn.
Cubica Blanco
33x100 cm flísar
frá Porcelanonsa.
Tilboðsverð til
15. nóvember
7.540.kr.
fermeterinn
Álfaborg er ævintýralegt nafn
á verslun enda býður hún
ævintýralega mikið úrval af
flísum, innréttingum, sturtum,
blöndunartækjum og öllu því
sem heyrir baðherbergjum til.
„Hér fær fólk allt sem tengist
baðherbergi á einum stað hvort
sem það eru gólfefni, hreinlæt-
istæki eða innréttingar og það
kunna viðskiptavinir okkar vel
að meta,“ segir Ragnar Már Vals-
son sölustjóri hjá Álfaborg Skútu-
vogi 6. Hann segir stemninguna
góða þar á bæ. „Það eru spenn-
andi tímar þó að þeir séu öðruvísi
en meðan góðærið geisaði,“ segir
hann brosandi og kveðst vera full-
ur bjartsýni enda sé mikið tekið
inn af vörum í Álfaborg og salan
sé góð. Inntur eftir nýjungum
svarar hann: „Við fáum nýjungar
inn mjög reglulega, í öllum vöru-
flokkum, allt frá litlum flísum upp
í baðinnréttingar. Allskyns gerðir,
nýtt útlit, mynstur í flísum og liti.
Það er mikið um fallega liti. Við
erum samt ekki að taka allt inn á
lager heldur höfum góða aðstöðu
til að sýna hlutina, svo getur fólk
pantað eftir sínu höfði. Innkaupa-
mynstrið er öðruvísi en áður.“
Hann segir fólk þolinmóðara að
bíða eftir vörum nú en það var
fyrir nokkrum árum. „Við getum
útvegað vöruna með hraðsendingu
á nokkrum dögum en algengast er
að afgreiðslufrestur sé þrjár til
sex vikur, eftir framleiðendum,“
lýsir hann.
Ragnar Már segir innkaupin
hafa breyst frá því í góðærinu og
að verðlag sé mjög sanngjarnt. Það
þakkar hann birgjunum erlendis.
„Birgjarnir okkar eru að bjóða
aðrar og hagstæðari lausnir en
áður sem við skilum svo áfram til
okkar viðskiptavina,“ segir hann.
Álfaborg verslar með þekkt
vörumerki í hreinlætistækjum
eins og til dæmis Villeroy & Boch.
Einnig flytur hún inn baðinn-
réttingar og sturtur frá danska
fyrirtækinu Dansani. Sænski gólf-
efnaframleiðandinn Tarkett, sem
er sá stærsti í Evrópu, er einn af
birgjum Álfaborgar að sögn Ragn-
ars Más og er með breitt úrval af
plastparketi, viðarparketi, linol-
eum- og vínyldúkum. „Tarkett er
ávísun á gæði og við erum stolt af
að geta boðið upp á vörur þaðan,“
segir hann og nefnir líka helstu
uppsprettur flísanna í Álfaborg,
sem eru Porcelanosa frá Spáni og
Imola og Marazzi frá Ítalíu. „Við
erum að skipta við fáa, stóra og
trausta birgja. Við þá flesta höfum
við átt farsæl viðskipti í um og
yfir tuttugu ár. Þetta er að okkar
mati þýðingarmikið. Við þekkjum
þá og þeir okkur. Traustið er svo
mikilvægt í dag.“
Traustið er svo mikilvægt
„Við erum eiginlega að fá inn nýjungar mánaðarlega. Allskyns gerðir, ný útlit, mynstur og liti,“ segir Ragnar Már Valsson, sölu-
stjóri í Álfaborg í Skútuvogi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Nú í haust eru tuttugu ár liðin
frá því að Álfaborg hóf innflutn-
ing á flísum frá spænska fram-
leiðandanum Porcelanosa. Í öll
þessi ár hefur Porcelanosa verið
óumdeilanlegur yfirburðafram-
leiðandi í Evrópu hvað varðar
hönnun og nýjungar í flísum.
Hjá Álfaborg er breitt úrval
af flísum frá Porcelanosa á
lager. Þar eru stórar flísar, mál-
teknar (jafnstórar), að ógleymdu
frábæru úrvali af mósaík. Nú í
haust eru að koma þó nokkrar
nýjar gerðir. Má þar nefna flís-
ar sem líkjast hvítum marmara
á ótrúlega eðlilegan hátt auk
meiri fjölbreytni í flísum með
parketútliti.
Í tilefni af tuttugu ára afmæl-
inu hefur Álfaborg náð mjög
hagstæðum samningum við Por-
celanosa og býður 20% afslátt af
flísum til 15. nóvember. Þetta
gerir það að verkum að þær
eru mjög samkeppnishæfar við
aðrar flísar á markaðnum.
Porcelanosa í 20 ár á Íslandi
Flísarnar frá Porcelanosa eru í ótal myndum.
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is s. 512 5411 og Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is s. 512 5439.