Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 40
 14. OKTÓBER 2010 FIMMTUDAGUR Skútuvogi 6 | 104 Reykjavík | Sími 568 6755 | www.alfaborg.is Vandaður heill sturtuklefi frá Dansani úr gleri. Tilboðsverð 119.900 kr. Stærðir 80x80, 90x90 og 70x90. Baðinnrétting frá Dansani úr Eik. Tilboðsverð 169.900 kr. TRENTO DAMASCO 20X31,6 frá Porcelanosa. Tilboðsverð til 15. nóvember 6.266 kr. fermeterinn. Cubica Blanco 33x100 cm flísar frá Porcelanonsa. Tilboðsverð til 15. nóvember 7.540.kr. fermeterinn Álfaborg er ævintýralegt nafn á verslun enda býður hún ævintýralega mikið úrval af flísum, innréttingum, sturtum, blöndunartækjum og öllu því sem heyrir baðherbergjum til. „Hér fær fólk allt sem tengist baðherbergi á einum stað hvort sem það eru gólfefni, hreinlæt- istæki eða innréttingar og það kunna viðskiptavinir okkar vel að meta,“ segir Ragnar Már Vals- son sölustjóri hjá Álfaborg Skútu- vogi 6. Hann segir stemninguna góða þar á bæ. „Það eru spenn- andi tímar þó að þeir séu öðruvísi en meðan góðærið geisaði,“ segir hann brosandi og kveðst vera full- ur bjartsýni enda sé mikið tekið inn af vörum í Álfaborg og salan sé góð. Inntur eftir nýjungum svarar hann: „Við fáum nýjungar inn mjög reglulega, í öllum vöru- flokkum, allt frá litlum flísum upp í baðinnréttingar. Allskyns gerðir, nýtt útlit, mynstur í flísum og liti. Það er mikið um fallega liti. Við erum samt ekki að taka allt inn á lager heldur höfum góða aðstöðu til að sýna hlutina, svo getur fólk pantað eftir sínu höfði. Innkaupa- mynstrið er öðruvísi en áður.“ Hann segir fólk þolinmóðara að bíða eftir vörum nú en það var fyrir nokkrum árum. „Við getum útvegað vöruna með hraðsendingu á nokkrum dögum en algengast er að afgreiðslufrestur sé þrjár til sex vikur, eftir framleiðendum,“ lýsir hann. Ragnar Már segir innkaupin hafa breyst frá því í góðærinu og að verðlag sé mjög sanngjarnt. Það þakkar hann birgjunum erlendis. „Birgjarnir okkar eru að bjóða aðrar og hagstæðari lausnir en áður sem við skilum svo áfram til okkar viðskiptavina,“ segir hann. Álfaborg verslar með þekkt vörumerki í hreinlætistækjum eins og til dæmis Villeroy & Boch. Einnig flytur hún inn baðinn- réttingar og sturtur frá danska fyrirtækinu Dansani. Sænski gólf- efnaframleiðandinn Tarkett, sem er sá stærsti í Evrópu, er einn af birgjum Álfaborgar að sögn Ragn- ars Más og er með breitt úrval af plastparketi, viðarparketi, linol- eum- og vínyldúkum. „Tarkett er ávísun á gæði og við erum stolt af að geta boðið upp á vörur þaðan,“ segir hann og nefnir líka helstu uppsprettur flísanna í Álfaborg, sem eru Porcelanosa frá Spáni og Imola og Marazzi frá Ítalíu. „Við erum að skipta við fáa, stóra og trausta birgja. Við þá flesta höfum við átt farsæl viðskipti í um og yfir tuttugu ár. Þetta er að okkar mati þýðingarmikið. Við þekkjum þá og þeir okkur. Traustið er svo mikilvægt í dag.“ Traustið er svo mikilvægt „Við erum eiginlega að fá inn nýjungar mánaðarlega. Allskyns gerðir, ný útlit, mynstur og liti,“ segir Ragnar Már Valsson, sölu- stjóri í Álfaborg í Skútuvogi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Nú í haust eru tuttugu ár liðin frá því að Álfaborg hóf innflutn- ing á flísum frá spænska fram- leiðandanum Porcelanosa. Í öll þessi ár hefur Porcelanosa verið óumdeilanlegur yfirburðafram- leiðandi í Evrópu hvað varðar hönnun og nýjungar í flísum. Hjá Álfaborg er breitt úrval af flísum frá Porcelanosa á lager. Þar eru stórar flísar, mál- teknar (jafnstórar), að ógleymdu frábæru úrvali af mósaík. Nú í haust eru að koma þó nokkrar nýjar gerðir. Má þar nefna flís- ar sem líkjast hvítum marmara á ótrúlega eðlilegan hátt auk meiri fjölbreytni í flísum með parketútliti. Í tilefni af tuttugu ára afmæl- inu hefur Álfaborg náð mjög hagstæðum samningum við Por- celanosa og býður 20% afslátt af flísum til 15. nóvember. Þetta gerir það að verkum að þær eru mjög samkeppnishæfar við aðrar flísar á markaðnum. Porcelanosa í 20 ár á Íslandi Flísarnar frá Porcelanosa eru í ótal myndum. Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is s. 512 5411 og Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is s. 512 5439.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.