Fréttablaðið - 14.10.2010, Qupperneq 45
FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2010
Goodyear UG 7+.
Afburðadekk við íslenskar
aðstæður. Háþróað dekk
frá Goodyear sem hefur
hlotið 1. sæti í virtum
samanburðarkönnunum
víða um heim.
Heilsársdekk frá Kelly
með góðu stefnumynstri á
frábæru verði. Kelly dekk in
eru í eigu Goodyear og
framleidd undir þeirra
gæðastaðli.
Goodyear Duratrac.
Sterk og endingargóð
jeppa dekk. Munstur
sem virkar vel
við allar aðstæður.
Neglanleg vetrardekk
framleidd af Firestone.
Endingargóð kanadísk
dekk á frábæru verði.
Tilvalin undir jepplinga
og óbreytta jeppa.
Fyrirtækið Klettur starfrækir
öflugt hjólbarðasvið og býður
upp á breitt vöruúrval dekkja,
allt frá mótorhjóladekkjum
upp í dekk fyrir stærstu gerðir
vinnuvéla en aðalmerki Kletts
í dekkjum er Goodyear.
Fyrirtækið er til húsa í Kletta-
görðum 8-10.
Klettur er nýtt fyrirtæki sem
byggir á gömlum grunni. Fyrir-
tækið hét áður Vélasvið Heklu en
var selt úr úr Heklu í sumar og er
því í eigu nýrra aðila með trausta
starfsemi. Klettur er til húsa í
Klettagörðum við Sundahöfn og
er stór heildsali í dekkjum fyrir
fólksbíla, jeppa, sendibíla, vöru-
bíla, vinnuvélar og mótorhjól auk
þess að reka glæsilega dekkjaþjón-
ustu fyrir minni fólksbíla og svo
stærstu gerðir vörubíla.
„Klettur býður upp á mjög
breiða línu dekkja fyrir mótor-
hjól, fólksbíla, lyftara, sendibíla,
vörubifreiðar og svo stærstu
gerðir vinnuvéla. Við erum aðal-
lega heildsalar fyrir hjólbarða-
verkstæði um land allt, en sinn-
um samt smásölumarkaðnum
líka,“ segir Þorgeir Ragnar Páls-
son, vörustjóri hjá hjólbarðadeild
Kletts.
Aðalvörumerki Kletts í hjól-
börðum er Goodyear og Dunlop
og undirmerki frá Goodyear má
fá á góðu verði. Goodyear er stór
framleiðandi í til að mynda vöru-
bíladekkjum sem og í dekkjum
fyrir vinnuvélar en hefur einnig
verið með nokkrar ódýrari línur í
boði til að geta keppt á verðmark-
aðinum, án þess þó að gera minni
kröfur til öryggis og gæða. Good-
year og Dunlop hafa framleitt
hjólbarða í meira en 100 ár.
„Goodyear er flaggskipið okkar
en annað merki sem við erum með
er Winterforce, sem eru kanadísk
dekk framleidd af Firestone. Þau
dekk eru vinsæl undir óbreytta
jeppa og jepplinga en Winterforce-
dekkin henta afar vel við íslensk-
ar aðstæður og eru fáanleg bæði
negld og ónegld á góðu verði. Kelly
og Fulda eru svo undirmerki frá
Goodyear á góðu verði, bæði fram-
leidd í Evrópu. Þessi vörumerki
eru mjög sterk og hafa verið lengi
á dekkjamarkaðinum. Við bjóðum
líka upp á gott úrval lyftaradekkja
frá dönskum birgi.“
Dekk í fólksbíla er hægt að
fá bæði negld og ónegld og Þor-
geir segir miklu skipta að öku-
menn velji dekk sem þeim líði vel
á, geri þá örugga og velja skuli
negld dekk ef bílstjórum líði betur
þannig. „Við reynum að vera leið-
beinandi og leggjum ríka áherslu á
góða þjónustu og að geta aðstoðað
viðskiptavininn fljótt og vel.“
Goodyear er flaggskip
okkar í hjólbörðum
„Við reynum að vera leiðbeinandi og leggjum ríka áherslu á góða þjónustu,“ segir Þorgeir Ragnar Pálsson, vörustjóri hjá hjól-
barðadeild Kletts. Með honum á myndinni eru Eggert Bjarki Eggertsson og Gísli Ólafsson, starfsmenn Kletts. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Klettur rekur þjónustuverkstæði
fyrir hjólbarða í Klettagörðum
sem jafnframt er eitt fullkomn-
asta og stærsta vörubílaverkstæði
á landinu. Húsnæðið býður upp á
að vörubílar geti keyrt í gegn-
um verkstæðið. Auk stórra bif-
reiða eru minni fólksbílar einnig
þjónustaðir á verkstæðinu.
Klettur selur hjólbarða á hjól-
barðaverkstæði um land allt og
er aðalstarfsemi fyrirtækisins
því á heildsölumarkaði. Sölu- og
þjónustusvið Kletts er til húsa
að Klettagörðum 8-10 og er opið
alla virka daga frá klukkan 8 til
17. Hægt er að bóka tíma í síma
590 5190 eða á heimasíðu fyrir-
tækisins; klettur.is og með því að
senda tölvupóst á tires@klettur.is.
Verðlista yfir dekkin er hægt að
nálgast á klettur.is.
Verkstæði Kletts í Klettagörðum
Húsnæðið að Klettagörðum býður upp á að stærstu vörubílar geta ekið í gegnum
verkstæðið þar sem stórar dyr eru báðum megin. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN