Fréttablaðið - 14.10.2010, Side 47
FIMMTUDAGUR 14. október 2010 5
Á tískuviku í París er allt-af eitthvað um merki-lega viðburði og að þessu sinni var líklega
það athyglisverðasta opnun
H&M á Champs-Elysée-breið-
götunni, þeirri sem Frakkar af
mikilli og heimsþekktri auð-
mýkt kalla þá „fallegustu í
heimi“. Hin 2.000 fermetra
H&M búð er hönnuð af einum
frægasta arkitekt Frakklands,
Jean Nouvel. Að sjálfsögðu var
mikið um dýrðir við opnunina
og ýmis merkikerti þar á ferð.
Reyndar hefur staðið nokkurt
stapp í kringum þessa búð þar
sem borgarstjórn Parísar taldi
nóg komið af tuskubúð-
um á Champs-Elysée og
hafnaði byggingaleyf-
inu en H&M hafði betur
fyrir dómstólum þrátt
fyrir nokkurra ára
tafir. Reyndar hafn-
aði borgin nú nýver-
ið umsókn Banana
Republic (GAP)
sem ætlaði sér að
komast á Champs-
Elysée.
Stella McCartn-
ey heldur áfram að
skera sig úr hvað
varðar aðra hönnuði
með einstaklega þægi-
legri kventísku. Fyrir-
sæturnar voru á slétt-
botna skóm eins og
reyndar sást á fleiri
tískusýningum að
þessu sinni eins og
hjá Lanvin og Chloé
til dæmis. Spurn-
ing hvort skótískan
á sýningarpöllun-
um sé að breytast?
Hjá McCartney fer
tískusýningin að
vanda fram klukkan
tíu að morgni, eins og
sagt er á tíma tískunn-
ar. Það er því ekkert
kampavín í boði fyrir
gesti heldur aðeins
kaffi og croissant, afskaplega
heilbrigt að hætti Stellu! Bux-
urnar voru víðar með háu mitti
sem er töluvert einfaldara snið
fyrir konur frjálslega vaxnar í
stað lágmittisbuxna, hinna svo-
kallaðra slim sem passa helst
fyrir konur með spýtuvaxtarlag.
Stella er enn og aftur að vinna
úr bernskuminningum sínum í
hippafjölskyldu Lindu og Pauls,
afskaplega ´70. Denímefni er
notað í stuttbuxnapils og mussur
og pastellitir áberandi.
Annar viðburður á tískuviku
var kveðjusýning Jean-Paul
Gaultier hjá Hermès en hann
hefur hannað kvenlínuna í sjö
ár, frá því hann
tók við af Martin
Margiela. Hann
segir það hafa
verið
ánægju-
legan tíma en
nú ætli hann að
einbeita sér
að sínu eigin
tískuhúsi
enda hannar
hann þar sex
tískulínur á
ári. Þemað á
þessari síð-
ustu sýn-
ingu Gault-
iers fjallaði
um lukkudýr tísku-
hússins, hestinn.
Kvenmyndirnar bera
barðastóra hatta við
buxur og leðurstígvél.
Mikið er um leður sem
einkennir tískuhúsið
og helstu litirnir eru
kamel- og tóbaksbrúnt
og konurnar eru líkt og
komnar beint af búgarð-
inum. Gaultier notar einn-
ig krókódílaskinn eins og
svo oft áður. Sá næsti sem
reynir við Hermès í mars
á næsta ári heitir Stephane
Lemaire.
bergb75@free.fr
Denímstúlkur og hattaðir hestasmalar
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Valentino sýndi á sér nýja
hlið á dögunum.
Nýja lína tískurisans Valentino
bar með sér virðuleika og fágun,
þrátt fyrir að nýir hönnuðir
hafi kvatt hugmyndir um lúxus
og glæsileika og sýnt hörku-
legri, dekkri og rokkaðri hlið.
Mest fór fyrir síðdegiskjól-
um úr blúndu og mátti einmitt
sjá breytingu frá fyrri
síðdegiskjólum
Valentinos þar
sem ákveðið yfir-
læti fylgdi nýju
línunni.
Lita-
spjaldið
bar þó ekki
með sér mikl-
ar breytingar,
með dökkum
litum, sand-
l ituðum og
gráum tónum í
bland við ein-
staka rauðan.
-jbá
Rokkaður
yndisþokki
Síðdegis-
kjólar voru
áberandi
í línu
Valentino.
Á vefsíðunni www.
net-a-porter.com er að
finna hátískufatnað frá
helstu tískuhönnuðum
heims. Þar er gaman
að skoða sig um og
hugga sig við að ódýr-
ar verslunarkeðjur eru
fljótar að taka upp ríkj-
andi strauma.
Heimild: www.
net-a-porter.com
• Allir skokkar áður 16990
St. 36-48
Nú 5000
• Skór áður 14990
Nú 5000
• Kápur áður 14990
ath aðeins litlar stærðir
Nú 5000
• Bolakjólar áður 9990
ath stórar stærðir
Nú 5000
Og margt margt fleira
Nýtt kortatímabil
FRÚIN ER ENN Í TILTEKTARSTUÐI
20-80% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM
MOMO KONUR
MOMO MENN
25% afsláttur
Í TILEFNI AIRWAVES
frá fimmtudegi til laugardags
FULL BÚÐ
AF NÝJUM VÖRUM
!"
#
$
%
&'
( !"#"$$ )
*+ $ $,-
/0
$
!
* 12. .
, $
###'454
Útsala
Bonito ehf. | Friendtex | Faxafen 10| 108 Reykjavík
sími 568 2870 – www.friendtex.is
Opið: miðvikudaga – föstudaga 11.00-18.00
laugardag kl. 11.00 - 16.00
í fjóra daga
Nú er hægt að gera góð kaup
hjá
í þrjá daga
Nú er hægt að gera góð kaup
Opið: fimmtud. og föstud. frá 11-18
laugardag 11-16
ATH vörur úr haustlista 2010 eru ekki á útsölu.