Fréttablaðið - 14.10.2010, Page 56
36 14. október 2010 FIMMTUDAGUR
BAKÞANKAR
Charlotte
Böving
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. sett, 6. samanburðartenging, 8.
skordýr, 9. ar, 11. ryk, 12. dramb, 14.
krapi, 16. drykkur, 17. bar, 18. kerald,
20. fisk, 21. bylgja.
LÓÐRÉTT
1. erindi, 3. frá, 4. planta, 5. auð, 7.
gagn, 10. eldsneyti, 13. yfirbreiðsla,
15. elds, 16. blekking, 19. til.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lagt, 6. en, 8. fló, 9. ryk,
11. im, 12. stolt, 14. slabb, 16. te, 17.
krá, 18. áma, 20. ál, 21. liða.
LÓÐRÉTT: 1. vers, 3. af, 4. glitbrá, 5.
tóm, 7. nytsemi, 10. kol, 13. lak, 15.
báls, 16. tál, 19. að.
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Í Riverdance
æfingabúðunum
Er Maggi
heima?
Bíddu
aðeins
Björn.
MAGGI! BJÖRN
ER KOMINN!
Björn?
Hvaða
Björn?
Björn
Borg!
Björn
Borg!
Sniðugur
kall!
FWAP
SLUURP! SMJATT! SMJATT!
SMJATT!
Sagðistu ekki
hafa keypt í
matinn í dag?
Oooooojjjjjjj! Könguló! Köngulær eru það
ógeðslegasta í
öllum heiminum!
Þetta er ekki
könguló.
Þetta er
hárflóki af
pabba úr
sturtunni.
Næst þegar þú sérð
könguló segðu henni þá
að ég taki þetta til baka.
BANNAÐ
AÐ LEGGJA
í einelti
Það er ekki óvenjulegt að í sambandi sem staðið hefur um nokkurt skeið
dragi úr líkamlegri ástríðu með tímanum.
Við tölum ekki mikið um það, vegna þess
að það er víst mælikvarði á árangur að
gera það oft.
EINHVERS staðar las ég að ástin væri
ekki tilfinningar eða erótík, heldur stærð-
fræði! Sambönd fara af stað með dás-
amlegt flæði af plúsum, en smám saman
tínast mínusarnir inn. Og ef mínusarn-
ir verða plúsunum fleiri hættum við
saman.
ÁSTIN er sem sagt reikningur sem
þarf helst að koma út í plús.
ÞETTA eru engin ný sannindi. Við
vitum öll að við kjósum heldur
plúsa en mínusa.
EN hvað er plús? Gáfaðir sál-
fræðingar segja að plús sé
það sama og nánd. Að líkam-
leg og andleg nálægð og
væntumþykja sé það sem
við leitum að í maka. En
með nándinni og væntum-
þykjunni verðum við ber-
skjölduð. Og því fylgir ótt-
inn við að missa.
ÞEGAR við óttumst að missa lokum við
fyrir heiðarleikann. Sérstaklega þann
heiðarleika sem felur í sér mínusa og
getur þar af leiðandi sært makann. Jafn-
vel hrakið hann/hana frá okkur. Eða við
lokum á heiðarleika og einlægni makans,
vegna þess að við viljum ekki heyra af
mínusum okkar. Til þess að komast hjá
sárindum lokum við fyrir trúnaðinn. En
þegar við þorum ekki að deila hugsun-
um og tilfinningum, líka þeim neikvæðu,
hvert með öðru, útilokum við nándina.
Jafnvel þótt hún sé það sem við þráum
mest.
SÁLFRÆÐINGAR segja að skortur á heið-
arleika valdi sjálfsagt ákveðinni fjarlægð,
en á móti verði sambandið oftar í jafnvægi
og án stórra tilfinningasveiflna.
ÞAÐ þýðir líka að ástríða og þrá víkja
fyrir kurteislegum samskiptum, sem ein-
kennast jafnvel bæði af ást og tillitsemi.
EF blása á lífi í ástríðuhita verðum við
hins vegar að þora að deila okkar innstu
hugsunum og tilfinningum á opinn og
kærleiksríkan hátt. Það getur sært, en við
getum líka valið að vaxa.
PLÚS eða mínus… við þurfum bæði!
Plús eða mínus?