Fréttablaðið - 14.10.2010, Qupperneq 66
14. október 2010 FIMMTUDAGUR
Leikritið Fólkið í kjallaranum var frumsýnt
í Borgarleikhúsinu um síðustu helgi. Verkið
er byggt á verðlaunasögu Auðar Jónsdóttur
en leikstjóri er Kristín Eysteinsdóttir. Fullt
hús var á frumsýningunni og var leikurum
og aðstandendum vel tekið.
FÓLKIÐ Á FRUMSÝNINGUNNI
Thor Vilhjálmsson rithöfundur og Kjartan Ragnarsson, leikstjóri og ferðamálafrömuð-
ur, ræddu um landsins gagn og nauðsynjar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Helga Gerður, Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri og María Hrund
Marinósdóttir, markaðsstjóri hjá VÍS.
Jón Oddur Guðmundsson og Frank Hall,
listrænn ráðunautur Borgarleikhússins.
folk@frettabladid.is
Halldór, Lísa og Margrét voru klár í slaginn.
VINNINGAR AFHENTIR Í ELKO LINDUM. 199 KR/SKEYTIÐ.
MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB.
SENDU SMS EST MHV
Á NÚMERIÐ 1900.
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ EINTAK!
Fullt af aukavinningum:
Tölvuleikir · DVD myndir og fleira!
VILTU
EINTAK! 10. HVER
VINNUR!
STRÍÐIÐ ER HAFIÐ!
„STÓRKOSTLEG NETSPILUN...“
- 8,5 AF 10 / GAMESMASTER
„CALL OF DUTY ER KOMINN
MEÐ SAMKEPPNI...“
- OFFICIAL XBOX MAGAZINE
„BESTI NETSPILUNAR-
LEIKURINN Á E3...“
- GAMESPY
„Ég hef farið á stefnu-
mót með nokkrum
nördum um ævina.
Mér líkar vel við
nörda.“
EVA MENDES
Leikkonan ræðir um ástamál
sín þegar hún var yngri. Hún
hefur verið með leikstjóran-
um George Gargurevich frá
árinu 2002.
„Ef ég væri stöðugt
hrædd um að
gera mistök
væri ég ekki
þar sem
ég er í
dag.“
RIHANNA
Söngkonan tjáir
sig um vel heppn-
aðan tónlistar-
feril. „Líkast til vissi ég það í
undirmeðvitundinni að ég
myndi snúa aftur.“
ROBBIE WILLIAMS
Söngvarinn ræðir um endur-
komu sína í strákabandið Take
That.
Sjálfstæðismað-
urinn Illugi
Gunnarsson
og Bryn-
hildur Ein-
arsdóttir
eiginkona
hans.
„Ég er á meðal einhverra 35 höfunda í bókinni. Það
eru margir góðir þarna,“ segir Hugleikur Dagsson.
Teikningar Hugleiks er að finna í ritsafni sem
kvikmyndaframleiðandinn Judd Apatow hefur tekið
saman og gefið út í bókinni I Found This Funny.
Hugleikur er þar á meðal snillinga á borð við Steve
Martin, Jon Stewart, Adam Sandler og Ernest Hem-
ingway sem eiga efni í bókinni – hvort sem það er
fyndið eða ekki.
Apatow er gríðarlega farsæll framleiðandi og
leikstjóri, en eftir hann liggja myndir á borð við
Knocked Up, 40 Year Old Virgin og Superbad.
„Hann sendi mér allt í einu póst,“ segir Hugleikur.
„Hann hafði víst verið búinn að reyna að ná í mig á
Myspace, en ég nota það ekki lengur. Það var mjög
fyndið þegar ég fór á Myspace um daginn og fann
gömul skilaboð frá honum: „Þetta er Judd Apatow“
svo sagði hann: „Í alvöru, þetta er sko Judd Apatow.“
Hann var að fá leyfi til að nota brandara sem ég
hafði teiknað til að setja í ritsafnið sitt. Ég sagði
náttúrulega já, enda er ég mikill aðdáandi Apatow.“
Ágóði bókarinnar rennur til góðgerðarmála,
þannig að það liggur í hlutarins eðli að Hugleikur
fékk ekki greitt fyrir verk sín í bókinni. Sjálfur
bíður Hugleikur eftir sínu eintaki, en forlagið
McSweeney‘s hafði nýlega samband og sagði það
vera á leiðinni. - afb
Hugleikur í flottum selskap
Í GÓÐUM HÓPI Myndir frá
Hugleiki Dagssyni eru í bók-
inni I Found This Funny,
sem framleiðand-
inn Judd Apatow
tók saman.
Gamanmál
Adams Sandler,
Jons Stewart
og Conans
O‘Brien má
einnig finna í
bókinni.