Fréttablaðið - 14.10.2010, Page 70
14. október 2010 FIMMTUDAGUR50
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Logi Ólafsson er kominn
aftur í fótboltann tæpum þremur
mánuðum eftir að hann var rekinn
frá KR. Logi skrifaði í gær undir
tveggja ára samning við Selfoss og
mun fá það verkefni að koma Sel-
fossliðinu aftur upp í Pepsi-deild-
ina eftir að liðið féll úr deildinni
í haust.
„Þegar maður er búinn að
standa í þessu í svona mörg ár
þarf þetta að vera svolítið spenn-
andi til þess að maður sé tilbúinn
að snúa aftur,“ sagði Logi. Selfoss
er fimmta meistaraflokkslið karla
sem hann tekur við á farsælum
ferli frá því að hann tók fyrst við
Víkingum fyrir tuttugu árum.
Logi hefur unnið að fram-
faramálum í knattspyrnunni á
Suðurlandi þótt hann hafi ekki
þjálfað þar áður. „Aðkoma mín
að knattspyrnunni á Suðurlandi
hefur verið með þeim hætti að
við erum með Knattspyrnuaka-
demíu í Fjölbrautaskólanum og
margir af strákunum sem spila
með Selfossliðinu í dag hafa
farið þarna í gegn. Ég hef því
fylgst töluvert með þeim og var
þeim líka innan handar þegar
Zoran Miljkovic var ráðinn hing-
að á sínum tíma,“ segir Logi. Auk
þess að þekkja ungu leikmenn
Selfyssinga vel þekkir hann
einnig vel til í þessum lands-
hluta því hann býr á Arnarhóli í
Gaulverjabæjarhreppi.
„Ég er með afdrep hérna fyrir
austan fjall sem er í tíu mínútna
fjarlægð frá Selfossi. Þetta gefur
mér því tækifæri á að vera meira
þar. Númer eitt er samt að mér
finnst þetta vera spennandi verk-
efni frá knattspyrnulegu sjónar-
miði og ég held að það sé hægt að
gera mjög skemmtilega hluti hér,“
segir Logi.
Logi hefur einu sinni tekið við
liði í B-deildinni, þegar hann
gerðist þjálfari FH fyrir sumar-
ið 2000. FH var þá ekki búið að
vera í efstu deild í fimm ár en
undir hans stjórn fór FH-liðið
upp á fyrsta ári og endaði
í 3. sæti í úrvalsdeildinni
árið eftir.
„Ég hef verið svo
lánsamur að gera
eitthvað með öllum
liðum sem ég hef
þjálfað. Ég lít bara
björtum augum
á þetta. Reynsla
mín sem þjálf-
ari í 1. deild er
eitt ár með FH
árið 2000. Ég
var síðan með
þá árið 2001
þar sem við
höfnuðum
í þriðja sæti og hefðum hugsan-
lega getað gert betur. Ég sé ekk-
ert ósvipaða möguleika hér,“ segir
Logi bjartsýnn en hann talar þó
um að bæta einhverjum leikmönn-
um við hópinn. Logi
segir þó mik-
ilvægast að
halda í leik-
mannahóp-
inn sem fékk
eldskírn-
i na meða l
þeirra bestu í
sumar.
„Þessir strákar eru búnir að fá
nasaþefinn af því að spila í efstu
deild og eflaust eru einhverjir að
bera í þá víurnar. Ég vona bara
að félögin fari þá lögformlegu
leið í því og hafi fyrst samband
við stjórnina. Samkvæmt því sem
stjórnarmenn segja mér hefur
ekkert einasta félag haft sam-
band út af þessum leikmönnum,“
segir Logi og bætir við:
„Við vitum það að þegar svona
lagað gerist standa menn saman
um að duga betur og fara beint
upp aftur. Svo getur ýmislegt
komið upp á sem getur ruglað
menn í ríminu og þá er ég að tala
um einhver gylliboð frá öðrum
félögum og svo framvegis. Ég
vona að allir þessir strákar
haldi áfram. Þetta er ungt
lið sem hefur öðlast aukna
reynslu af því að hafa spilað
í efstu deild. Það þarf að gera
atlögu að því að komast upp
aftur. Það er mjög mikilvægt
að halda þessum ungu strákum,“
segir Logi.
„Það er mjög góður andi í þess-
um hópi og þetta eru strákar
sem hafa verið að vinna mjög vel
saman og hafa verið í og við þetta
lið síðan þeir fóru upp úr 2. deild.
Þetta er skemmtilegt verkefni,“
segir Logi að lokum.
ooj@frettabladid.is
Í svipaðri stöðu og með FH 2000
Logi Ólafsson er kominn aftur í boltann eftir aðeins þriggja mánaða fjarveru en hann gerði tveggja ára
samning við Selfoss í gær. Logi vonast eftir því að halda hinum ungu og efnilegu leikmönnum liðsins.
BIRKIR MÁR SVEINSSON , mótastjóri KSÍ, segir ekki ljóst hvernig KSÍ leysi vandamálið sem mun skapast í júní
næsta sumar eftir að íslenska 21 árs landsliðið tryggði sér sæti í úrslitakeppni EM. „Ég get eiginlega rosa lítið sagt. Það
vantar svo margar forsendur til þess að það sé hægt að spá almennilega í þetta,” sagði Birkir í gær. „Við höfum ekki
rætt þessi mál neitt alvarlega og við verðum að skoða, spá og spekúlera fram eftir vetri,“ sagði Birkir í gær.
Meira í leiðinniWWW.N1.IS / SÍMI 440 1000
Hasarinn í N1 deildinni heldur nú áfram. Við á N1 hvetjum
alla unnendur skemmtilegs handbolta til að mæta nú á
völlinn og styðja sitt lið til sigurs. Góða skemmtun!
SPENNAN
MAGNAST!
N1 DEILD KARLA
Valur – HK Vodafone höllin 14. okt. kl. 19:30
FH – Selfoss Kaplakriki 14. okt. kl. 19:30
Afturelding – Haukar Varmá 14. okt. kl. 19:30
Fram – Akureyri Framhús 16. okt. kl. 15:45
N1 DEILD KVENNA
ÍR – ÍBV Austurberg 16. okt. kl. 13:00
Grótta – Haukar Seltjarnarnes 16. okt. kl. 13:30
Fram – Stjarnan Framhús 16. okt. kl. 13:45
FH – Fylkir Kaplakriki 16. okt. kl. 16:00
FÓTBOLTI Tímabilinu hjá kvenna-
liði Vals lauk í gær er liðið féll
úr leik í Meistaradeild Evrópu.
Valsstúlkur gerðu þá jafntefli við
spænska liðið Rayo Vallecano, 1-
1, á heimavelli.
Spænska liðið vann fyrri leik-
inn 3-0 og rimmuna þar með 4-1.
Vallecano komst yfir á 57. mínútu
í gær með marki frá Adriönu
en Valur jafnaði á 88. mínútu er
Maria Galan skoraði sjálfsmark.
„Þetta var mjög erfitt í dag
en við klúðruðum þessu úti. Þar
fengum við tækifæri til þess að
skora og það var dýrt að ná ekki
að setja mark þar,“ sagði Freyr
Alexandersson, þjálfari Vals, en
hann var að stýra liðinu í síðasta
sinn.
„Við sáum það vel í dag að við
erum ekkert með síðra lið en þær.
Ef við hefðum skorað í fyrri hálf-
leik og hleypt þessu upp í smá
vitleysu hefði allt verið hægt í
seinni hálfleik. Því miður ekki
upp hjá okkur.“ - hbg
Meistaradeild kvenna:
Valur úr leik
GRIMM Dagný Brynjarsdóttir á ferðinni í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON