Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 74
14. október 2010 FIMMTUDAGUR54
golfogveidi@frettabladid.is
Veiði virðist nokkuð hafa dottið
niður síðustu daga í Varmá í
Hveragerði eftir gott skot í kjöl-
far vatnavaxta um þarsíðustu
helgi. Enginn fiskur hafði verið
skráður í veiðibókina í veiðihús-
inu ofan við Stöðvarhyl frá 6.
október þegar kíkt var í bókina
á þriðjudag. Aðstæður við ána
eru hins vegar prýðis góðar. Til
dæmis lítur út fyrir að seiða-
búskapurinn sé með miklum
ágætum. - gar
Dauft í rénandi vatni:
Veiðin í Varmá
dalar eftir skot
Fyrirkomulag rjúpnaveiða í haust
verður óbreytt frá fyrra ári. Veiði-
tímabilið hefst
29. október og
stendur til 5.
desember. Á
tímabilinu verð-
ur heimilt að
stunda veiðar
á föstudögum,
laugardögum og
sunnudögum.
Sölubann er
áfram í gildi.
Veitt var held-
ur meira af rjúpu í fyrra en áætl-
anir gerðu ráð fyrir. Því er enn
hvatt til hófsamra veiða. - shá
Rjúpnaveiðar 2010:
Fyrirkomulag
veiða óbreytt
Veiðar eru leyfi-
legar í átján daga
í haust.
FL
U
G
A
N
SCANDIC SHADOW ORANGE
MYND/VEIÐIFLUGUR.IS
Scandic Shadow Orange er fluga
sem hefur verið mjög gjöful í
Noregi, Svíþjóð og Danmörku.
Scandic Shadow er sérlega góð
í lituðu vatni eins og Eystri-
Rangá og Blöndu. Þessi fluga er
mjög útbreidd á Norðurlöndum
og hefur sannað sig sem frábær
veiðifluga á Íslandi undanfar-
in ár.
Gjöfull nýliði
A
F
B
A
K
K
A
N
U
M Eystri-Rangá efst með 6.200 laxa veiði
Dammurinn í Blöndu er einn allra besti veiðistaðurinn í ánni og situr ofar-
lega á lista yfir aflahæstu veiðistaði landsins. Svo lýsir Stefán Páll Ágústsson
hjá Lax-á aðstæðum.
„Dammurinn er á svæði 1 og er fyrsti staðurinn sem komið er að þegar
gengið er að ánni sunnan megin. Oft er veiðistaðurinn á öndverðum bakka
einnig nefndur Dammur að norðan, en sá staður heitir raunar Bugur – en
Dammur að norðan hefur fest við hann.
Maðkur hefur reynst vera árangursríkastur í Damminum í gegnum tíðina,
en fluga hefur þó reynst furðu vel þegar hún er brúkuð. Í miklu vatni liggur
vanalega töluvert af laxi ofan á klöppinni sem sést á myndunum, þá er flug-
an sérlega árangursrík. Eins er algengt að fiskur liggi á klöpp í byrjun hverrar
vaktar – þó vatn sé ekki mikið.
Flestir laxar eru þó teknir á maðk og sakkað vel, og síðan er maðkinum
slakað hægt niður meðfram klapparbrúninni. Á myndinni má sjá hvar
veiðimaður hefur sett í lax og er laxinn rétt ofan við aðaltökustaðinn. Vinstra
megin við miðju má sjá hvar Dammurinn grynnist og þar innan við liggja
oft laxar í góðu flugufæri. Í mjög miklu vatni má fá lax til að taka í beygj-
unni sunnan megin. Missi menn lax niður í gilið þá gildir að halda fast við
og reyna að halda laxinum ofarlega í vatninu, í gilinu er steinn eða strýta í
botninum sem slitið hefur marga línuna.“
Veiðistaðurinn – Dammurinn í Blöndu
RÉTTNEFNI Maðkur gefur hér mest en fluga hefur sótt á síðustu árin. MYND/LAX-Á
75.000 RJÚPUR ER VEIÐIRÁÐGJÖF Náttúru-fræðistofnunar fyrir haustið. Það gerir um 15
rjúpur á hvern veiðimann.
50.000 GRÁGÆSIR falla fyrir hendi íslenskra skotveiðimanna á hverju ári. Veiðin á Bret-
landseyjum er um 20.000 fuglar.
Eystri-Rangá var komin í 6.200 laxa veiði þegar Fréttablaðið hringdi á
bakkann í gær. Systir hennar, sú ytri, er líka komin í um sex þúsund
laxa veiði.
Árnar eru tvær þær efstu yfir íslenskar laxveiðiár þetta sumarið,
eins og reyndar undanfarin ár.
VEITT Í VARMÁ Það er víða fallegt við
Varmá. FRÉTTABLAÐIÐ/GARÐAR
Affallið, sem er tær bergvatnsá
sem skilur á milli Austur- og
Vestur-Landeyja, hefur skilað
yfir eitt þúsund löxum í sumar.
Hundrað laxar veiddust þar í
fyrra svo um tíföldun er að ræða.
Leyfðar eru fjórar dagstangir í
ánni. - shá
Affallið í Landeyjum:
Tíföld laxveiði
Hörður Hafsteinsson úr
Mokveiðifélaginu og bróðir
hans fengu sextíu gæsir
og tíu endur eina morgun-
stund. Lykillinn var að
fækka gervigæsunum.
„Þegar morgunflugið kom þá
sveimuðu gæsirnar yfir okkur og
létu sig bara hverfa,“ lýsir Hörður
Hafsteinsson, liðsmaður Mokveiði-
félagsins úr Skagafirði, upphafi
gæsaveiði sem hann fór með Sævari
bróður sínum um þarsíðustu helgi.
Bræðurnir fóru á fætur um
klukkan hálffimm og byrjuðu á
því að stilla upp á milli 130 og 150
gervigæsum á kornakri áður en þeir
komu sér fyrir í skurði með byss-
urnar og biðu eftir að gæsirnar létu
sjá sig í birtingu.
„Það kom heilmikill gæsaflokkur
en það var eins og þær vildu ekki
setjast á akurinn. Þá fékk ég allt í
einu þá hugmynd að taka gervigæs-
irnar og skildi bara fimm stykki
eftir. Það var eins og við manninn
mælt að þá var eins og hver ein-
asta gæs í sveitinni ætti ekki heit-
ari ósk en að setjast hjá þessum
fimm gervigæsum. Við enduðum á
að fá sextíu gæsir og tíu endur og
vorum komnir heim fyrir klukkan
ellefu, heldur betur ánægðir,“ segir
Hörður.
Að sögn Harðar er rjúpuveiðin í
öðru sæti í forgangsröðinni hjá flest-
um liðsmönnum Mokveiðifélags-
ins á eftir stangaveiðinni. „Maður
er farinn að hlakka hrikalega til að
fara á rjúpuna. Eins og reyndar er
með gæsina er gífurlega mikið af
fugli. Sjálfur hef ég veitt rjúpu í um
tuttugu ár og tel að skotveiði á rjúpu
breyti alls engu um stofnstærðina.
Og afi minn segir það sömuleiðis,“
segir Hörður, lítt hrifinn af ströng-
um takmörkunum í rjúpuveiðinni.
Mokveiðimennirnir veiða jöfn-
um höndum á stöng og skotvopn og
eru því að nánast allt árið. „Þetta er
alger geðveiki hjá okkur. Það er eig-
inlega bara yfir allra köldustu mán-
uðina sem við hleypum konunum
okkar upp í,“ segir Hörður í léttum
dúr þótt reyndar megi greina að lýs-
ingin sé ekki fjarri lagi. En kannski
bjóða þeir konunum sínum á alls-
herjar uppskeruhátíð sem þeir hafa
blásið til fyrir alla stangveiðimenn
landsins í Gullhömrum í Reykjavík
um þarnæstu helgi.
gar@frettabladid.is
Gríðarlega mikil gæs
og rjúpa í Skagafirði
MOKVEIÐIMENN Bræðurnir Hörður og Sævar með feikilegan afla úr gæsaveiðinni í
Skagafirði um þarsíðustu helgi. MYND/ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON
Allt sem þú þarft...
Ekki missa af Fréttablaðinu á morgun
Takk útrásarvíkingar!
Lára Björg Björnsdóttir þakkar
útrásarvíkingum fyrir allt sem fer
úrskeiðis. Hún segir frá bloggi sem
varð að bók, baráttunni fyrir ein-
hverfum syni sínum og lífinu í
kreppunni í viðtali í Fréttablaðinu.
EINNIG:
Ris og fall fótboltalandsliðsins
Bergsteinn Sigurðsson skrifar
bakþanka