Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 80
Mest lesið
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR AF FÓLKI
Keyrði á Lennon
Heimsókn afmælisbarnsins
Seans Lennon til Íslands um
síðustu helgi fór varla framhjá
mörgum. Fyrir tónleika Plastic
Ono Band á laugardaginn var
kappinn á vappi á Laugaveginum
og þar lá við stórslysi. Listamað-
urinn Ragnar Kjartansson, oft
nefndur Rassi prump, var að keyra
á bíl sínum á Laugaveginn og ekki
vildi betur en svo að bíllinn lenti á
Sean. Eða Sean á bílnum, eftir því
á hvernig málið
er litið. Alla
vega urðu
ekki slys á
mönnum
– sem
betur
fer.
Yoko í verslunarferð
Talandi um Lennon-slektið. Móðir
Seans, Yoko Ono, var einnig á
Laugaveginum um liðna helgi og
lét til sín taka í tískuverslunum.
Hún verslaði í Lífsstykkjabúðinni
eins og kom fram í DV
í gær en fór raunar
víðar. Yoko kom
einnig við í verslun-
inni Skörtu þar sem
hún keypti sér
ýmislegt glingur
og leggings.
1 Námumennirnir koma upp
einn af öðrum
2 Undarlegur kvennalisti
3 Sautján komnir upp
4 Gekk berserksgang hjá um-
boðsmanni skuldara
5 Bölmóðurinn of mikill á
Íslandi
Joly kveður með stæl
Eva Joly kvaddi land og þjóð
með stæl í gærkvöldi eftir að hafa
tilkynnt að hún væri hætt störfum
hér á landi. Joly hélt heljarinnar
samkvæmi þar sem helstu stór-
menni þjóðarinnar voru saman
komin til að kveðja hana. Meðal
gesta voru Egill Helgason, Jón
Gnarr, Þorvaldur Gylfason, frú
Vigdís Finnbogadóttir, Ögmundur
Jónasson og Björk Guðmunds-
dóttir, sem að
sjálfsögðu steig
á stokk og söng
lagstúf til heiðurs
vinkonu sinni.
-hdm, sv