Fréttablaðið - 21.10.2010, Qupperneq 49
FIMMTUDAGUR 21. október 2010 5
Mæðgurnar Hanna Kristín Guð-
mundsdóttir hársnyrtimeistari
og Ásta Sigríður Hannesdóttir
snyrtifræðingur opnuðu hár- og
snyrtistofuna Kristu að Grundar-
stíg 2 þann 21. október árið 1970
og fagnar stofan því fjörutíu ára
afmæli í dag.
Jón Aðalsteinn Sveinsson, betur
þekktur sem Nonni Quest, sonur
Hönnu Kristínar, á og rekur stof-
una í dag og segir það álög á
Kristu-fjölskyldunni að „vera í
hárinu“.
Krista flutti á Rauðarárstíg 18
árið 1975 og þegar Kringlan var
opnuð, 1987 var stofan, sem þá
var ein stærsta hár- og snyrtistofa
landsins, eitt af fyrstu fyrirtækj-
unum til að flytja þar inn og þar er
hún rekin enn þá. Árið 1992 flutti
Ásta til Kanada og var þá snyrti-
stofunni lokað og er Krista síðan
eingöngu hárgreiðslustofa.
Jón Aðalsteinn og kona hans
Guðrún Elísabet Ómarsdóttir
keyptu stofuna 2007 og hafa rekið
hana síðan. „Þetta er algjört fjöl-
skyldufyrirtæki. Öll fjölskyldan er
í hárgreiðslubransanum. Mamma
tekur enn þá fastakúnna, þótt hún
sé hætt hérna á Kristu, og marg-
ar konurnar sem koma til hennar
hafa verið kúnnar hjá henni síðan
áður en Krista opnaði og geta ekki
hugsað sér að fara neitt annað.
Pabbi er heildsali með hárvörur
og systir mín er hárgreiðslusveinn.
Svo er konan mín reyndar lærður
förðunarfræðingur. Hún er ekki
komin í hárið, ekki enn allavega,
en maður veit aldrei hvað gerist
seinna,“ segir Jón og hlær. „Ég
lærði nú samt ekki hjá mömmu,
var ráðlagt að gera það ekki svo
ég lærði í Hafnarfirðinum, en var
farinn að vinna hjá henni hérna á
Kristu strax 1995. Ég stofnaði svo
Quest hársköpun árið 1999 hér í
Kringlunni sem við sameinuðum
Kristu þegar við keyptum hana.“
Spurður hvort börnin hans séu
komin í bransann líka segir hann
að sonur sinn sé reyndar ekki
nema tveggja ára „en ég er strax
farinn að kenna honum að sópa.
Það kemur svo bara í ljós hvort
hann losnar undan fjölskylduálög-
unum.“
Í tilefni dagsins er boðið upp á 40
prósent afslátt í Kristu í dag, við-
skiptavinir fá eitthvað gott með
kaffinu og gert verður enn betur
við þá en vanalega. Lokað verður
á venjulegum tíma í kvöld klukk-
an hálf sjö en klukkan sjö verður
slegið upp kokkteilpartýi þar sem
boðið verður upp á léttar veitingar
og merkisafmælinu fagnað með við-
eigandi hætti. fridrikab@frettabladid.is
Fjölskyldan í hári saman
Hárgreiðslustofan Krista fagnar 40 ára afmæli í dag. Hjónin Jón Aðalsteinn Sveinsson, Nonni Quest, og
Guðrún Elísabet Ómarsdóttir reka þetta gamalgróna fjölskyldufyrirtæki í Kringlunni og bjóða til veislu.
Búinn að kenna syninum að sópa. Hjónin Nonni Quest og Guðrún Elísabet Ómars-
dóttir, eigendur Kristu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Grófir gönguskór hafa
heillað tískuhönnuði
þetta haustið. Í það
minnsta hafa háhæl-
aðir skór sem draga
dám af útliti göngu-
skóa stungið upp koll-
inum víða á nettum
fótum tískumeðvit-
aðra kvenna. Talið er
að sveitastíll á tísku-
sýningum Erdem,
Burberry og
Sportmax
hafi ýtt undir
þessa nýju
tísku-
stefnu.
elleuk.com
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Opið
mán - fös 10-18,
laugardaga 10-16
NÝJAR VÖRUR
Úlpur, kápur,
hattar, húfur
Stór sending af
ullaryfi rhöfnum
ULL • VATT • DÚNN
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, s: 462 3504
NÝ BÚTASAU
MSEFNI, ULL
AREFNI, JER
SEY, JOGGIN
G, FLAUEL, S
AMKVÆMISE
FNI
vertu vinur á facebook
Flottar yfirhafnir
fyrir flottar konur
Nokkrar gerðir -
nokkrir litir
Stærðir 40-58
24h Aqua Booster kremið frá Marbert er algjör rakabomba fyrir
húðina og viðheldur rakastigi hennar. Frískar samstundis og
gefur húðinni aukinn ljóma og mýkt. Inniheldur A, D og
Evítamín ásamt Shea Butter sem bindur rakann í húðinni.
Útsölustaðir:Hagkaup, Apótek Vesturlands, Reykjavíkur Apótek, Nana
snyrtivöruverslun, Lyfjaval Mjódd, Miðbæ Vestmannaeyjum, Betri Líðan og
Laugarnesapótek.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki