Fréttablaðið - 21.10.2010, Page 72
21. október 2010 FIMMTUDAGUR48
sport@frettabladid.is
110 ÍSLENSKA LANDSLIÐIÐ er enn í frjálsu falli á styrkleikalista FIFA. Liðið er í 110. sæti
á listanum sem gefinn var út í gær og fellur um tíu sæti á milli mánaða. Ísland er nú áttunda
versta Evrópuþjóðin í knattspyrnu samkvæmt listanum.
Meira í leiðinniWWW.N1.IS / SÍMI 440 1000
Spennan magnast áfram í N1 deildinni. Við á N1 hvetjum
alla unnendur skemmtilegs handbolta til að mæta nú á
völlinn og styðja sitt lið til sigurs. Góða skemmtun!
BARÁTTA Í
BOLTANUM
N1 DEILD KARLA
Selfoss – Afturelding Selfoss 21. okt. kl. 19:30
Fram – Valur Framhús 21. okt. kl. 19:30
Akureyri – Haukar Höllin Akureyri 22. okt. kl. 19:00
HK – FH Digranes 23. okt. kl. 15:45
N1 DEILD KVENNA
ÍBV – Haukar Vestmannaeyjar 23. okt. kl. 13:00
HK – Grótta Digranes 23. okt. kl. 13:30
Stjarnan – Valur Mýrin 23. okt. kl. 14:00
ÍR – FH Austurberg 23. okt. kl. 16:00
FÓTBOLTI Wayne Rooney sendi frá
sér yfirlýsingu í gær þar sem að
hann staðfesti að hann vilji fara
frá Manchester United.
„Ég hitti David Gill [fram-
kvæmdastjóra United] í síðustu
viku og hann gat ekki gefið mér
þau svör sem ég vildi fá um fram-
tíðarskipan liðsins. Það var þá
sem ég sagði honum að ég myndi
ekki skrifa undir nýjan samning,“
sagði Rooney í yfirlýsingu.
„Hvað mig varðar snýst þetta
allt um að vinna til verðlauna,
eins og félagið hefur alltaf gert
undir stjórn Sir Alex. Ég stend
ævinlega í stórri þakkarskuld við
Sir Alex Ferguson. Hann er frá-
bær stjóri og lærifaðir sem hefur
stutt mig frá fyrsta degi er ég
kom til félagsins frá Everton, 18
ára gamall,“ sagði Rooney.
„Ég óska þess fyrir hönd
Manchester United að hann verði
áfram í starfi að eilífu því hann
er einstakur og snillingur.“ -esá
Yfirlýsing frá Rooney í gær:
Efast um fram-
tíð Man. United
SPILAR HANN AFTUR MEÐ UNITED?
Wayne Rooney. NORDICPHOTOS/GETTY
N1 deild kvenna
Valur-HK 30-19 (14-7)
Mörk Vals: Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 8, Hildi
gunnur Einarsdóttir 6, Ágústa Edda Björnsdóttir
4, Rebekka Rut Skúladóttir 3, Kristín Guðmunds
dóttir 3, Anett Köbli 3, Íris Ásta Pétursdóttir 2,
Karólína B. Gunnarsdóttir 1.
Mörk HK: Elva Björg Arnarsdóttir 5, Elín Anna
Baldursdóttir 3, Elísa Ósk Viðarsdóttir 2, Líney Rut
Guðmundsdóttir 2, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir
2, Tinna Rögnvaldsdóttir 1, Gerður Arinbjarnar 1,
Heiðrún Björk Helgadóttir 1, Harpa Baldursdóttir
1, Salka Þórðardóttir 1.
Iceland Express kvenna
Njarðvík-Fjölnir 90-50 (42-23)
Stigahæstar: Dita Liepkalne 22, Shayla Fields 18
(9 stoðs.), Ína María Einarsdóttir 13, Ólöf Helga
Pálsdóttir 10, Eyrún Líf Sigurðardóttir 9, Heiða
Valdimarsdóttir 8 - Margareth McCloskey 22, Inga
Buzoka 10, Bergþóra Holton Tómasdóttir 6.
Sænski körfuboltinn
Sundsvall Dragons-Uppsala Basket 78-65
Hlynur Bæringsson var með 10 stig, 14 fráköst og
5 stoðsendingar fyrir Sundsvall og Jakob Sigurð
arsonar skoraði 16 stig. Helgi Már Magnússon var
með 6 stig og 6 fráköst í liði Uppsala.
Þýski bikarinn í handbolta
Emsdetten-Huttenberg 35-34
Patrekur Jóhannesson þjálfari Emsdetten.
Hannover Burgdorf-Lemgo 28-25
Vignir Svavarsson skoraði 5 mörk á móti sínum
gömlu félögum, Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði
4 mörk og Hannes Jón ´nsson skoraði 3 mörk.
Rheinland-Kiel 27-32
Sigurgbergur Sveinsson skoraði 9 mörk og Árni
Þór Sigtryggson var með 1 mark fyrir Rheinland.
Aron Pálmarsson skoraði 4 mörk fyrir Kiel.
Bittenfeld-Rhein-Neckar Lowen 28-39
Róbert Gunnarsson skoraði 2 mörk fyrir Rhein-
Neckar Löwen og Ólafur Stefánsson var með eitt.
Arnór Gunnarsson skoraði 2 mörk fyrir Bittenfeld.
ÚRSLIT Í GÆR
FÓTBOLTI Internazionale, Manchest-
er United og Barcelona eru öll í
efsta sæti í sínum riðlum eftir sigra
í 3. umferð Meistaradeildarinnar í
gærkvöldi. Franska liðið Lyon er
hins vegar eina liðið í riðlum A til
D sem er með fullt hús eftir fyrstu
þrjá leikina.
Inter vann 4-3 sigur á Tottenham
í uppgjöri efstu liðanna í A-riðli þar
sem úrslitin réðust í rauninni í upp-
hafi leiks. Inter var komið yfir eftir
rúma mínútu og orðið manni fleiri
sjö mínútum síðar. Inter var síðan
4-0 yfir í hálfleik en Gareth Bale
skoraði þrennu í seinni hálfleik
fyrir tíu manna lið Tottenham.
Gareth Bale gafst ekki upp þrátt
fyrir vonlitla stöðu og skoraði
þrjú stórbrotin mörk í seinni hálf-
leik. Tvö þau fyrstu skoraði hann
með frábærum einleik upp vinstri
vænginn.
„Við vorum einbeitingar-
lausir í upphafi leiks og
erum hreinlega ekki
með á hreinu hvað
gerðist eigin-
lega. Það er
margt jákvætt
sem við getum
tekið úr seinni
hálfleiknum því
við sýndum það
með tíu menn hversu
gott lið við erum
með,“ sagði Bale.
„Það er ekki hægt
að f i n n a
betri vinstri
vængmann
í heiminum
og það eru
öruggleg
ekki marg-
ir leikmenn
í heiminum betri en
hann á þessari stundu,“
sagði Harry Redknapp,
stjóri Tottenham um
hinn magnaða Gar-
eth Bale.
Manchester United er komið með
tveggja stiga forskot í C-riðli eftir 1-
0 sigur á tyrkneska liðinu Bursapor
og 1-1 jafntefli hjá Rangers og Val-
encia í Glasgow. Nani skoraði frá-
bært sigurmark fyrir Manchester
United strax á sjöundu mínútu
þegar hann fékk boltann 40
metrum frá marki, lék í
átt að markinu, lét vaða
á 25 metra færi og bolt-
inn söng í marknetinu.
„Við hefðum getað
gert betur í síðasta
þriðjungnum en þetta
var mjög mikilvæg-
ur sigur fyrir
stuðningsmenn-
ina,“ sagði Alex
Ferguson,
stjóri United.
Barcelona
tók toppsætið
af danska liðinu FC
Kaupamannahöfn
með 2-0 sigri í leik lið-
anna á Nývangi. Lion-
el Messi skoraði bæði
mörkin.
Raúl González skor-
aði tvö mörk í 3-1
sigri Schalke en hann
hefur þar með skorað
á fimmtán tímabilum í
Meistaradeildinni.
ooj@frettabladid.is
Mögnuð þrenna hjá Bale
Gareth Bale skorað þrennu fyrir tíu manna lið Tottenham í 3-4 tapi á móti
Inter í Mílanó. Man. United og Barcelona eru á toppnum í sínum riðlum.
Meistaradeildin í gær
A: Twente-Werder Bremen 1-1
1-0 Janssen (75.), 1-1 Arnautovic (80.)
A: Inter Milan-Tottenham 4-3
1-0 Javier Zanetti (2., 2-0 Samuel Eto’o,
víti (11.), 3-0 Stankovic (14.), 4-0 Eto’o
(35.), 4-1 Gareth Bale (52.), 4-2 Bale
(90.), 4-3 Bale (90.+1)
B: Olympique Lyon-Benfica 2-0
1-0 Jimmy Briand (22.), 2-0 López (52.)
B: Schalke 04-Hapoel Tel Aviv 3-1
1-0 Raúl (3.), 2-0 Raúl (58.), 3-0 José
Manuel Jurado (68.), 3-1 Shechter (90.)
C: Glasgow Rangers-Valencia 1-1
1-0 Maurice Edu (34.), 1-1 Sjálfsm. (43.)
C: Manchester United-Bursaspor 1-0
1-0 Nani (7.)
D: Barcelona-FC Kaupmannah. 2-0
1-0 Lionel Messi (19.), 2-0 Messi (90.)
D: Panathinaikos-Rubin Kazan 0-0
HETJULEG
FRAMMI-
STAÐA
Gareth
Bale með
boltann í
leikslok.