Fréttablaðið - 23.10.2010, Page 6
6 23. október 2010 LAUGARDAGUR
DÓMSMÁL „Ég lýsi mig saklausan,“
sagði Baldur Guðlaugsson, fyrr-
verandi ráðuneytisstjóri í fjár-
málaráðuneytinu, þegar ákæra á
hendur honum fyrir innherjasvik
var þingfest í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gærmorgun.
Málið hefur nokkrum sinnum
verið tekið fyrir en þetta var í
fyrsta sinn sem Baldur mætir. Með
honum í för var Karl Axelsson,
verjandi hans. Björn Þorvaldsson
frá embætti sérstaks saksóknara
sækir málið. Þetta er annað málið
sem fer fyrir dóm eftir rannsókn
sérstaks saksóknara.
Baldur er ákærður fyrir að
hafa búið yfir innherjaupplýsing-
um þegar hann seldi hlutabréf í
Landsbankanum fyrir rúmar 192
milljónir rétt fyrir bankahrun.
Baldri er gefið að sök að hafa öðl-
ast þessar innherjaupplýsingar á
sex fundum samráðshóps Seðla-
bankans um fjármálastöðugleika
frá miðju ári 2008. Degi áður en
hann seldi bréfin sat hann fund
þar sem skýrt kom fram að það
væri ekki ætlun stjórnvalda að
bjarga hluthöfum banka og ann-
arra fyrirtækja, að því er segir í
ákæruskjali.
Guðjón St. Marteinsson héraðs-
dómari innti Baldur eftir afstöðu
hans til ákærunnar og eftir að
Baldur lýsti yfir sakleysi sínu
spurði Guðjón hvort hann vildi
svara frekar, lið fyrir lið, þeim
ásökunum sem birtast í ákærunni.
„Ég ætla ekki að fara að tjá mig að
öðru leyti,“ svaraði Baldur.
Verjandinn Karl Axelsson ósk-
aði eftir átta vikna fresti til að
skila greinargerð um málið. Dóm-
ari taldi það allt of langan tíma og
sæst var á sex vikna frest. Málið
verður því næst tekið fyrir 10.
desember. Þá verður greinargerð
verjanda lögð fram og vitnalistar
samþykktir.
Guðjón sagðist eiga eftir að taka
afstöðu til þess hvort dómurinn
yrði fjölskipaður eða hvort sér-
fræðingar yrðu fengnir til að setj-
ast í dóminn. Aðeins einu sinni
áður hefur verið dæmt í máli vegna
innherjasvika. Þá var ákærði sýkn-
aður. stigur@frettabladid.is
Ég lýsi mig saklausan
Ákæra á hendur Baldri Guðlaugssyni fyrir innherjasvik var þingfest í gær. Hann
mætti í fyrsta sinn fyrir dóminn og kvaðst saklaus en vildi ekki tjá sig frekar.
Þrátt fyrir að Baldur hafi ekki mætt
fyrir dóminn í eigin máli fyrr en í
gær er hann síður en svo óvanur
því að sitja í réttarsal.
Baldur er lögfræðingur að
mennt og starfaði sjálfstætt sem
slíkur í 22 ár. Á þeim tíma rak
hann fjölda mála fyrir dómi. Áður
starfaði hann fyrir Vinnuveitenda-
sambandið.
Hann var ráðinn ráðuneytisstjóri
í fjármálaráðuneytinu árið 2000.
Vanur réttarsölum
SEGIR EKKI MEIR Baldur vildi ekki tjá sig meira um sakarefnin en svo að lýsa sig saklausan. Hann er sakaður um hafa nýtt sér
innherjaupplýsingar til að forða rúmum 192 milljónum, bundnum í hlutabréfum, frá því að brenna upp í hruninu. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA
Sanngirnisbætur
Innköllun
(Síðari birting)
Í samræmi við ákvæði laga nr. 47/2010 um sanngirnisbætur fyrir
misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007
og tóku gildi hinn 28. maí 2010, hefur sýslumann-inum á Siglufirði
verið falið að gefa út innköllun, fara yfir kröfur og gera þeim sem
eiga rétt á bótum skrifleg sáttaboð. Skal sýslumaður eftir því sem
kostur er fjalla samtímis um allar kröfur er lúta að sama heimilinu.
Á grundvelli þessa er nú kallað eftir kröfum frá þeim sem
dvöldu á:
Vistheimilinu Breiðavík
Hér með er skorað á alla þá sem dvöldu á vistheimilinu Breiðavík
einhvern tíma á árabilinu 1952-1979 og urðu þar fyrir illri meðferð
eða ofbeldi sem olli varanlegum skaða, að lýsa kröfu um skaðabætur
fyrir undirritaðri fyrir 27. janúar 2011. Kröfu má lýsa á eyðublaði
sem er að finna á vefnum www.sanngirnisbætur.is og hjá tengiliði
vegna vistheimila.
Allar kröfur skulu sendar sýslumanninum á Siglufirði, Gránugötu
4-6, 580 Siglufirði.
Verði kröfu ekki lýst fyrir 27. janúar 2011 fellur hún niður.
Bent er á að unnt er að leita aðstoðar tengiliðar vegna vist-
heimila við framsetningu og skil á bótakröfu. Aðstoð tengiliðar er
að kostnaðarlausu. Skrifstofa tengiliðar er að Tryggvagötu 19, 101
Reykjavík. Sími tengiliðar er 545 9045.
Siglufirði 22. október 2010
Ásdís Ármannsdóttir sýslumaður
VIÐSKIPTI Athafnamaðurinn Róbert
Wessman hefur höfðað mál gegn
Novator, fyrirtæki Björgólfs Thors
Björgólfssonar, og krefst 4,6 millj-
arða króna.
Róbert var forstjóri Actavis,
áður Delta, frá árinu 1999 til árs-
ins 2008. Róbert og Björgólfur
Thor hafa deilt um ástæður þess
að Róbert hætti en Björgólfur Thor
hefur sagt að áætlanir hafi ekki
staðist og því hafi Róbert verið
vikið úr starfi. Róbert hefur haldið
því fram að hann hafi sjálfur vilj-
að hætta.
Róbert hefur nú höfðað mál gegn
Novator Pharma Holding og Novat-
or Pharma í Lúxemborg, dótturfé-
lögum Novator, fjárfestingarfélags
Björgólfs Thors, vegna vangreiddr-
ar árangurstengdrar þóknunar,
samkvæmt stefnu sem fréttastofa
Stöðvar 2 hefur undir höndum.
Ragnhildur Sverrisdóttir, tals-
maður Björgólfs Thors, segir að
engar forsendur hafi verið til að
greiða árangurstengdar greiðslur
til Róberts þar sem þær byggðust á
árangri sem ekki náðist. Hún segir
hins vegar að Róbert sé skuldugur
bæði Actavis og Björgólfi Thor.
- ÞÞ
Róbert Wessman höfðar mál gegn Novator og krefst 4,6 milljarða króna:
Wessman í mál við Björgólf
NÁNIR SAMSTARFSMENN Deilur Róberts
og Björgólfs Thors hafa staðið lengi en
eru með stefnu Róberts komnar á nýtt
og alvarlegra stig. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
LÖGREGLUMÁL Karlmennirnir fjór-
ir, sem handteknir voru í fyrra-
dag vegna rannsóknar lögreglu á
framleiðslu fíkniefna, eru grun-
aðir um að hafa bæði framleitt
amfetamín og marijúana.
Einn mannanna hefur áður
komið við sögu hjá lögreglu hér
vegna fíkniefnamáls.
Mennirnir voru úrskurðaðir í
gæsluvarðhald til 4. nóvember að
kröfu lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu. Þeir eru allir litháísk-
ir ríkisborgarar á þrítugs- og fer-
tugsaldri. Þeir voru handteknir í
Reykjavík og Grímsnesi í fyrra-
dag. Rannsókn lögreglu snýr að
ætlaðri framleiðslu fíkniefna,
sölu þeirra og dreifingu. Við hús-
leitir var lagt hald á amfetamín
og kókaín og mun magn hvorr-
ar tegundar hafa verið undir
kílói. Þá fundust um tvö kíló af
marijúana, sem grunur leikur
á að mennirnir hafi framleitt.
Loks fann lögregla um sex millj-
ónir króna í reiðufé sem er álit-
ið að sé afrakstur fíkniefnasölu.
Lögregla tók einnig í sína vörslu
ýmis önnur verðmæti sem grunur
leikur á að séu, minnsta kosti að
hluta, þýfi, svo og tæki sem talin
eru tengjast framleiðslu á amfet-
amíni og marijúana.
- jss
Einn fjögurra í gæsluvarðhaldi hefur komið við sögu vegna fíkniefnamáls.
Grunaðir um framleiðslu á
marijúana og amfetamíni
MARIJÚANA Mennirnir eru grunaðir um
að hafa framleitt maríjúana.
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi
eða fengið sendan daglegan tölvupóst
með blaði dagsins. Nánari upplýsingar á:
visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU
VIÐSKIPTI Sala á stórum hlut í
tryggingafélaginu Sjóvá er á
lokastigi. Samið var um verð og
framkvæmd á afhendingu hluta-
bréfa í sumar og er aðeins eftir að
undirrita kaupsamning. Kaupend-
ur funduðu með eigendum Sjóvár
í Seðlabankanum í gær. Fundað
verður aftur í næstu viku.
„Viðræður hafa gengið vel,“
segir Heiðar Már Guðjónsson,
fjárfestir sem fer fyrir hópi fjár-
festa í kaupunum. Á meðal þeirra
eru Ársæll Valfells, lífeyrissjóðir,
og Arion banki. Heiðar vildi ekki
tjá sig um verðið sem samið hafi
verið um né ástæðu þess að málið
hafi dregist. - jab
Salan á Sjóvá á lokastigi:
Búið að semja
um verðið
JAPAN, AP Japanski bílaframleið-
andinn Toyota hefur ákveðið að
innkalla 1,53 milljónir bifreiða
vegna galla. 740 þúsund þessara
bifreiða eru í Japan, 599 þúsund
í Bandaríkjunum, en hinar í Evr-
ópuríkjum og víðar um heim.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Toyota hefur þurft að innkalla
seldar bifreiðar vegna galla, en
undanfarið ár hefur fyrirtækið
kallað inn meira en tíu milljónir
bifreiða.
Gallarnir núna tengjast bremsu-
vökva og eldsneytisdælu. - gb
Toyota viðurkennir fleiri galla:
Innkallar meira
en milljón bíla
KJÖRKASSINN
Ertu hlynnt(ur) einkarekinni
heilbrigðisþjónustu?
JÁ 35,4%
NEI 64,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Viltu að tekin verði upp kennsla
í heimspeki í grunnskóla?
Segðu skoðun þína á visir.is
HAÍTÍ Mikill fjöldi fólks hefur lát-
ist vegna kóleru á Haítí undan-
farna daga. Yfir 1500 manns hafa
sýkst.
Heilbrigðisstarfsmenn og
forseti landsins hafa stað-
fest kólerufaraldur norðan við
höfuð borgina Port-au-Prince.
Forsetinn René Préval segir að
ríkisstjórn hans vinni að því að
útbreiðsla sjúkdómsins verði
heft. Óttast hefur verið að farald-
ur af þessu tagi brytist út allt frá
því jarðskjálfti reið þar yfir í jan-
úar. Þetta er í fyrsta sinn í heila
öld sem kólerufaraldur brýst út í
landi í eða við karabíska hafið.
- þeb
Fjöldi fólks hefur látist:
Kólerufaraldur
brýst út á Haítí