Fréttablaðið - 23.10.2010, Blaðsíða 63
LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2010 5kvennafrídagurinn ●
● WOMEN – STOP
WORKING Equality now!
Women are en-
couraged to stop
working at 14.25
October 25th. Women will
march the streets of Reykjavík
under the slogan „Women Strike
back“ to protest also against
gender violence. The march will
start at 15.00 at Hallgrímskirkja
and end at Arnarhóll.
The protest meeting will be
held at Arnarhóll, starting at
16.00. Short speeches will be
held and there will also be a
culture programme.
● KOBIETO - PRZESTAN
PRACOWAC Teraz rownosc!
Zachecamy Was
do zakonczenia pracy
25-tego pazdziernika
o godz 14.25.
25 pazdziernika odbedzie
sie maszer ulicamy Reykjaviku
pod sztandarem „Kobiety
znowu strajkuja“ oraz beda
protestowac przeciwko przem-
ocy w rodzinie.
Marsz rozpocznie sie o godz
15.00 przy Hallgrímskirkja a
zakonczy przy Arnarhóll,
gdzie o godz 16.00 krotkim
przemowienie rozpocznie sie
program kulturalny.
DAGSKRÁ Á ARNAR-
HÓLI:
ÁFRAM STELPUR! – bar-
áttusöngvar í nýrri út-
setningu
Rashida Manjoo um-
boðskona SÞ í ofbeldis-
málum flytur ávarp
Dr. Guðrún Jónsdóttir
stofnandi Stígamóta flyt-
ur ávarp
Rauði þráðurinn –
gjörningur
Þórunn Lárusdóttir
syngur
Svanborg Hilmarsdóttir
frá Samtökum launafólks
flytur ávarp
Hannes og Smári troða
upp
Sigrún Pálína Ingvars-
dóttir flytur ávarp
Gerður Kristný flytur
ljóð
Sigrún Hjálmtýsdótt-
ir syngur við undirleik
Önnu Guðnýjar Guð-
mundsdóttur
Þórdís Elva Þorvalds-
dóttir flytur ávarp
Unnur Birna Jónsdóttir
flytur ávarp
ÁFRAM STELPUR! Að-
alheiður Þorsteinsdótt-
ir, Brynhildur Björnsdótt-
ir, Esther Jökulsdóttir,
Margrét Pétursdótt-
ir, Sigríður Eyrún
Friðriksdótt-
ir, Kristín A.
Ólafsdóttir, Guðrún Al-
freðsdóttir, Sigrún Björns-
dóttir, Steinunn Jóhann-
esdóttir og Anna Kristín
Arngrímsdóttir
- Fundarstýra Guðrún
Jónsdóttir stjórnarfor-
maður Skottanna
DAGSKRÁ KVENNAFRÍDAGSINS Í
REYKJAVÍK 25. OKT. Á ARNARHÓLI
Hittumst á Hallgrímskirkjutorgi klukkan 15. Þar verður tekið á móti
konum með lifandi tónlist, háværu skrafi og skemmtilegum félagsskap.
Þaðan gengið niður Skólavörðustíg og að Hallgerðarhóli (Arnarhóli).
Leikkonan Ólöf Sverrisdóttir opnar ástríkan kvennafaðm og býður gest-
um og gangandi faðmlag.
Elísabet Jökulsdóttir les ljóð eftir sjálfa sig.
Magnea Einarsdóttir kveður gamlar stemmur í
góðum félagsskap á horni Kvennafrívangs (Skóla-
vörðustígs) og Frökenargötu (Njarðargötu).
Raddir íslenskra skáldkvenna fyrr og nú munu heyr-
ast á horni Stúlkustígs (Kárastígs) og Kvennafrívangs (Skólavörðu-
stígs).
Pussy vs. Vagina við Konugötu (Týsgötu). Kelly Baumann og Gintare M.
Prinsessa sem er ekki upp á prinsinn kominn á svölum á horni Konu-
götu (Óðinsgötu) og Kvennafrívangs (Skólavörðustígs). Andrea Katrín
Guðmundsdóttir leikkona.
Innsetning á vegum V-dags samtakanna, þar sem áleitnum spurning-
um verður varpað fram á útbreiddri sæng. Á horni Telpustrætis (Berg-
staðastrætis) og Kvennafrívangs (Skólavörðustígs).
Skáldið að störfum. Í glugga Hárhönnunar á Kvennafrívangi (Skóla-
vörðustíg). Listakonan Dóra Hrund Gísladóttir ásamt aðstoðarmanni.
Konur gefa leyndarmál og loforð á gatnamótum
Kvennafrívangs (Skólavörðustígs) og Frúarvegs
(Laugavegs). Lísbet Harðar Ólafardóttir, Bára Jó-
hannesdóttir Guðrúnardóttir og leikkonan Ólöf
Hugrún Valdimarsdóttir.
Dúndrandi stelpupartí. Á svölum Sólon í Skottustræti (Banka-
stræti) plötusnúður frá The Weird Girls Project undir stjórn Kitty von
Sometime.
Litrík farandverk úr Litrófi íslenskra
kvenna verða til sýnis í glugga B5 í
Skottustræti (Bankastræti).
Ragnheiður Bjarnarson danslista-
kona og stelpur úr Ballettskóla
Eddu Scheving standa fyrir
slæðugjörningi á grasflötinni
við Stjórnarráðið.
Prjónaverkefnið Rauði þráðurinn samanstendur
af 225 metra prjónuðum trefli sem strengdur verð-
ur milli Hæstaréttar og Héraðsdóms Reykjavíkur, sem
hvatning til réttarkerfisins til að setja ábyrgðina sem
fylgir kynferðisbrotum á herðar ofbeldismannanna.
Hugrún R. Hjaltadóttir.
Slippurinn, Mýrargötu 2, Reykjavík:
23. október - MAMMA, ÉG?!
Lilja Katrín Gunnarsdóttir leikkona frumsýn-
ir einleik sinn MAMMA, ÉG?! klukkan 20. Hún
og Svanur Már Snorrason skrifuðu verkið
saman.
Frítt!
24.-25. október - ÁFRAM STELPUR
Söngdagskrá verður 24. október klukkan 18–
19 og 20.30–21.30 og 25. október klukkan
18–19. Fram koma: Aðalheiður Þorsteinsdótt-
ir, Brynhildur Björnsdóttir, Esther Jökulsdóttir, Margrét Pétursdóttir og
Sigríður Eyrún Friðriksdóttir. Kostar 1.975 krónur inn.
25. október - SÖNGPERLUR
Þórunn Lárusdóttir mætir með hljómsveit og syngur eigin útsetningar
á þekktum söngperlum um og eftir konur klukkan 20. Frítt!
Sjá nánar undir viðburðum á - www.nemaforum.com
Guðríðarkirkja, Kirkjustétt 8, Grafarholti
25. október. Einleikurinn Þá mun enginn skuggi vera til sem fjallar um
sifjaspell og afleiðingar þess sýndur klukkan 20.30. Hann er eftir Björgu
G. Gísladóttur og Kolbrúnu Ernu Pétursdóttur leikkonu í leikstjórn
Hlínar Agnarsdóttur. Umræður á eftir.
Hugmyndahús háskólanna, Grandagarði 2, Reykjavík
25. október. Ljósmyndasýning Önnu Maríu Sigurjónsdóttur: Herrar,
menn og stjórar, verður opnuð í Hugmyndahúsi klukkan 17.
LEIKIR OG LIFANDI TÓNLIST Á KVENNAFRÍDAGINN 2010
Rithöfundurinn og skáldið Gerður
Kristný mun hefja upp raust sína og
lesa upp úr nýju ljóðabókinni sinni
Blóðhófni á Arnarhóli á mánudag.
Þó umfjöllunarefni bókarinnar,
sem fjallar um jötunmeyna Gerði
Gymisdóttur, skírskoti til samtím-
ans og stöðu sumra kvenna þá kom
það Gerði skemmtilega á óvart
þegar hún var beðin um að taka
upplesturinn að sér. „Mér finnst
þetta ofboðslegur heiður og það lá
við að ég klökknaði.“
Í Blóðhófni er sagt frá því
þegar frjósemisgoðið Freyr fær
skósvein sinn Skírni til að sækja
Gerði í jötunheima. Hann fellst á
það en Gerður neitar. Þá er henni
hótað öllu illu sem leiðir til þess
að hún lætur undan og fær Skírn-
ir hest og sverð að launum. Sögu-
þræðinum svipar til nútímans enda
ganga konur ennþá kaupum og
sölum víða um heim þó gjaldmið-
illinn sé annar. Gerður segir sög-
una hafa vakið áhuga sinn strax í
barnæsku. „Það sem mig langaði
til að skoða var hvernig tilfinning
það er að horfa á hest og vita að
það hefur verið skipt á manni og
slíkri skepnu. Það hlýtur að vera
alveg glatað.“
Gerður var fimm ára þegar
kvennafrídagurinn var haldinn í
fyrsta skipti. „Ég fór ekki í bæinn
og veit ekkert hvar ég var þenn-
an dag. Mamma mín er hjúkrun-
arfræðingur og einhver þurfti
að sinna sjúklingunum.“ Gerður
hlakkar mikið til að ganga með ís-
lenskum konum niður í bæ enda
rík ástæða til í ljósi uppsagna og
kjaraskerðingar. „Ég vonast til að
finna samstöðuna og hlakka til að
vita hvað gerist innra með okkur.
Það er aldrei að vita hver áhrif-
in verða. Það spratt ýmislegt gott
upp úr kvennafrídeginum fyrir
35 árum eins og framboð Vigdís-
ar Finnbogadóttur svo það verður
fróðlegt að hlusta á ræðurnar og
sjá hvað gerist.“ - ve
Vonast eftir nýju upphafi
Gerður ætlar að vera klædd í takt við
tilefnið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON