Fréttablaðið - 23.10.2010, Blaðsíða 65
kvennafrídagurinn ●LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2010 7
„Við ætlum að ganga út klukkan
14.25 og fjölmenna á Silfurtorg á
Ísafirði. Þar ætlum við konur að
kyrja áður en við göngum fylktu
liði í Alþýðuhúsið,“ segir Matthild-
ur Helgadóttir Jónudóttir um dag-
skrá Skottanna á norðanverðum
Vestfjörðum. Þar verður gleði og
baráttudagskrá og meðal þeirra
sem koma fram eru Harpa Odd-
björnsdóttir frá Sólstöfum, Halla
Signý Kristjánsdóttir, fjármála-
stjóri Bolungarvíkurkaupstaðar,
með erindið Sótti enginn karlmað-
ur um?, og Alda Hrönn Jóhanns-
dóttir, settur saksóknari, sem var
stjórnandi rannsóknarinnar í hinu
svokallaða mansalsmáli, og mun
flytja erindi um mansal á Íslandi.
„Við höfum hvatt allar konur
til að sýna samstöðu og klæðast
rauðum sokkum þennan dag hvort
sem þær geta gengið út eða ekki,
því auðvitað er það svo að sumar
konur komast ekki frá vegna vinnu
eða jafnvel veikinda. Konur á
svæðinu hafa prjónað rauða sokka
sem verða seldir til styrktar Sól-
stöfum og ungur „Ekki“-hönnuður,
Marta Sif Ólafsdóttir, hannaði sér-
staka eyrnalokka í tilefni Kvenna-
frídagsins. Karlar á Vestfjörðum
og víðar ætla að sýna lit þennan
dag og klæðast rauðu til að sýna
stuðning við jafnréttisbaráttuna.
Ég á von á því að vestfirskar konur
fjölmenni á Silfurtorgið.“ - sg
Karlar á Vestfjörðum sýna stuðning með
rauðum klæðnaði. MYND/BALDUR PÁLL
Rauðir sokkar verða seldir til styrktar Sólstöfum. MYND/BALDUR PÁLL HÓLMGEIRSSON
Konur jafnt sem karlar
verða í rauðum sokkum
Á kvennafrídaginn ætla aust-
firskar konur að safnast saman á
einum stað, Egilsstöðum, en rútur
munu ferja þær víðs vegar af Aust-
fjörðum. Halla Eiríksdóttir er ein
þeirra sem sjá um að skipuleggja
dagskrána.
„Á kynningarfundi sem Skott-
urnar héldu á Egilsstöðum var
ákveðið að standa fyrir dagskrá
þar. Við sem mættum á fund-
inn tókum að okkur verkefni sem
tengjast deginum,“ segir Halla.
„Leitað var til Alcoa, sem var til-
búið að styrkja kvennafrídaginn
með ferðum frá flestöllum stærri
byggðarlögum á Austurlandi því
ekki eiga allar bíla.“
Klukkan fjögur verður gengið
frá Íþróttahúsinu í Tjarnargarð-
inn, þar sem verður útifundur.
Þær Auðbjörg H. Hrafnkelsdótt-
ir, Elfa Hlín Pétursdóttir, Guðrún
Frímannsdóttir, Ingibjörg Þórðar-
dóttir og Rannveig Þórhallsdótt-
ir verða með ávörp. Vigdís Diljá
Óskarsdóttir syngur ásamt fleiri
konum.
„Ég hvet allar konur á Austur-
landi til að mæta. Þetta er ein-
stakt tækifæri til að koma saman
og sýna samstöðu í baráttu gegn
kynbundnu ofbeldi.“ Þær sem vilja
nýta sér ferðir með rútu geta haft
samband við Hrönn Jakobsdóttur
í síma 470 7911.“
Hittast á einum stað
Rútur halda frá stærstu byggðalögunum á Austurlandi á kvennafrísdaginn.
Samtal þriggja kynslóða um
hvernig kvennabaráttan hefur
þróast síðustu 35 ár verður
stór liður í dagskrá eyfirskra
kvenna sem fram fer í menn-
ingarhúsinu Hofi á Akureyri.
„Við ætlum að ganga út úr vinn-
unni klukkan 14.25 eins og allar
konur á Íslandi og safnast saman
við styttu Þórunnar hyrnu, land-
námskonu Eyjafjarðar. Valgerður
Bjarndóttir mun bregða sér í líki
hennar og verða í broddi fylkingar
er við göngum niður í nýja menn-
ingarhúsið okkar, Hof.“ Þannig
lýsir séra Sólveig Lára Guðmunds-
dóttir upphafi dagskrár kvennafrí-
dagsins á Akureyri.
Þúsund konur komast fyrir í
anddyri Hofs, Fljótinu svokall-
aða, og séra Sólveig Lára vonast
til að fullt verði út úr dyrum. Þar
mun Þórunn hyrna ávarpa hópinn
og segja frá stöðu kvenna gegn-
um aldirnar. Helena Eyjólfsdóttir
ætlar að taka lagið og síðan tekur
samtal þriggja kynslóða við. „Ég er
miðjukynslóðin, rúmlega fimmtug,
og mun leiða samtalið,“ segir séra
Sólveig Lára. „Sigríður Hafstað á
Tjörn í Svarfaðardal, rúmlega átt-
ræð, verður fulltrúi eldri kynslóð-
arinnar og Gréta Ómarsdóttir, tví-
tug, er fulltrúi ungu kynslóðarinn-
ar. Þarna birtist okkar sýn á það
hvernig kvennabaráttan hefur þró-
ast frá því fyrsti kvennafrídagur-
inn var haldinn. Sigríður hélt þá
ræðu á fundi í Sjallanum, ég var
ung menntaskólastúlka í Reykjavík
og Gréta náttúrlega ekki fædd.“
Séra Sólveig Lára segir lagið
Áfram stelpur að sjálfsögðu verða
sungið og eyfirskar konur ætli sér
að eiga skemmtilegan dag saman.
„Þetta snýst ekki um að hafa ein-
hverja stórmerkilega dagskrá held-
ur að konur af öllum kynslóðum
finni samstöðu á þessum degi,“
segir hún.
Þótt kvennafrídagsins fyrir
35 árum verði minnst segir séra
Sólveig Lára hann ekki mega verða
aðalatriði frídagsins í ár. „Ég vona
að konur á öllum aldri finni að
þetta er baráttudagur,“ segir hún
ákveðin og telur langt í land með
að jafnrétti sé náð. „Karlaveldið
tröllríður öllu enn í dag þrátt fyrir
efnahagshrun,“ segir séra Sólveig
Lára. „Konur verða að vakna til
vitundar, taka höndum saman og
skapa nýtt þjóðfélag.“
Ágóðinn af sölu kynjagler-
augnanna fyrir norðan rennur til
Aflsins en það eru samsvarandi
samtök og Stígamót. Séra Sólveig
Lára segir þar starfa kraftmikl-
ar konur sem gaman hafi verið
að kynnast í gegnum undirbúning
þessa dags. - gun
Verða að vakna til vitundar
„Ég vona að konur á öllum aldri finni að þetta er baráttudagur,“ segir séra Sólveig
Lára. MYND/DANÍEL STARRASON