Fréttablaðið - 23.10.2010, Blaðsíða 86
23. október 2010 LAUGARDAGUR
Bókmenntir ★★★
Leyndarmál annarra
Þórdís Gísladóttir
Útgefandi: Bjartur
Íslendingabók
Gagnagrunnurinn segir að eitt sinn
hafi verið uppi karlmaður
á Íslandi sem hét Ruth
og að Elís hafi framan af verið karl-
mannsnafn.
Er það nokkuð órökrétt?
Er þetta ljóð? Og ef svo er, hvað
gerir þetta að ljóði? Verður prósi
ljóð ef honum er skipt upp í mislang-
ar línur? Er það gamaldags og úrelt
að ætlast til þess að ljóð hafi hrynj-
andi, myndmál, seið og galdur?
Sennilega.
Menn hafa reyndar rifist um það
hvað geri ljóð að ljóði síðastliðin níu-
tíu ár, eða svo, án þess að komast
að nokkurri niðurstöðu. Og á þess-
um póst-póstmódernísku tímum er
þeirri kenningu haldið fram – í fullri
alvöru að því er virðist – að ef höf-
undur safni saman textum í bók og
kalli hana ljóðabók, þá sé innihald-
ið ljóð. Gott og vel. En það skýtur
svolítið skökku við að verðlaun sem
kennd eru við Tómas Guðmundsson,
einn mesta lýríker íslenskrar tungu,
skuli veitt fyrir texta sem ekki vott-
ar fyrir ljóðrænu í.
Bók Þórdísar Gísladóttur, Leynd-
armál annarra, sem verðlaunin hlaut
í ár, er skemmtilega skrifuð, ekki
vantar það. Kaldhæðnar og grát-
broslegar stemningar úr Reykjavík-
urlífi samtímans, sem oftar en ekki
fá lesandann til að glotta meinlega,
Tómas og dularfulla ljóðrænuhvarfið
„Ég hlustaði á þessa plötu í tætl-
ur þegar ég var lítil, því þetta var
uppáhaldsplatan mín,“ segir Bryn-
hildur Björnsdóttir, ein fimm söng-
og leikkvenna sem munu flytja
hljómplötuna Áfram stelpur í heild
sinni í Slippsalnum NemaForum á
sunnudag og mánudag. Tilefnið er
35 ára afmæli kvennafrísins.
Hljómplatan Áfram stelpur kom
út hinn 24. október árið 1975 í til-
efni kvennafrídagsins, en á henni
sungu íslenskar leik- og söngkon-
ur á borð við Steinunni Jóhannes-
dóttur og Kristínu Á. Ólafsdóttur
baráttusöngva kvenna. Brynhildur
segir plötuna og boðskap hennar
hafa ratað inn á mörg heimili og
söngvana hafa síast inn í nokkr-
ar kynslóðir, enda sé margt í þeim
sem höfði til barna. „Þegar ég fór
að rifja plötuna upp eftir að ég
varð fullorðin uppgötvaði ég aftur
hvað þessi lög eru skemmtileg, en
líka hvað frábærir textarnir eiga
sorglega vel við enn þann dag í
dag. Unga stelpan sem á sér þann
draum æðstan að vera barnsmóð-
ir einhvers, lögfræðingurinn sem
missir af lestinni þegar hún verður
ólétt, það er ansi margt sem hefur
lítið sem ekkert breyst.“
Tónleikarnir fara fram á sunnu-
dag klukkan 18 og 20.30 og mánu-
dag klukkan 17.30 og 19.30 að Mýr-
argötu 2. Hægt er að kaupa miða í
forsölu á nemaforum.web.is. - kg
Flytja Áfram stelpur í heild
ÁFRAM STELPUR 2010 Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Esther Jökulsdóttir, Margrét Péturs-
dóttir, Brynhildur Björnsdóttir og Sigríður Eyrún Friðriksdóttir. MYND/HARI
eða jafnvel skella upp úr. Og Reykja-
víkurskáldið Tómas hefði eflaust
kunnað að meta húmorinn, næmnina
og samlíðanina með náunganum
sem bera textann uppi. Sums staðar
verður textinn þó full klisjukenndur,
eins og í ljóðinu Glamúrskortur, sem
lýkur á þessa leið:
Stelpur mínar, verið ekki leiðar þótt
þið sitjið aleinar heima
í nýjum undirfötum með opna hvít-
vínsflösku og snakk í skál
á meðan maðurinn ykkar er einhvers
staðar á djamminu!
Takið því af skilningi og þolinmæði,
að öðrum kosti endið þið sem ein-
stæðar mæður,
útgrátnar með aukakíló í pínulítilli
íbúð
eða heima hjá vinkonu ykkar sem
er lúser.
Og munið umfram allt að hamingjan
er lífrænt ræktuð
Og fæst í heilsubúðunum!
Hér er náttúrlega deilt á útlits-
upphafningu samtímans og þá kröfu
sem haldið er að konum að þær eigi
hið fullkomna heimili, mann og börn
og rækti heilsuna umfram annað,
en að mínu mati mistekst sú ádeila.
Kafnar í klisjunum.
Flestir textarnir gefa þó ferskari
sýn á hversdagslíf í Reykjavík og
draga fram bæði það grátbroslega
og sérstaka í borgarlífinu.
Þórdís hefur fullt vald á orð-
unum, þar er hvorki of né van, og
næmt auga fyrir umhverfinu. Text-
inn Sumt gott í lífinu er ókeyp-
is, sem lýsir gönguferð í gegnum
miðbæinn að morgni dags, morar í
skemmtilegum myndum og skondn-
um mannlýsingum, sem lesandinn
upplifir bæði sem kunnuglegar og
framandi. Húmorinn er vopn í bar-
áttunni við gráma hversdagsins, en
um leið gefur hann þessum alkunnu
aðstæðum nýja vídd.
Þórdís hefur ekki sent frá sér
bók áður, en hún hefur verið
afkastamikill bloggari í mörg ár
og þar hefur hún meðal annars lagt
áherslu á skyndimyndir úr mann-
lífinu. Vonandi lætur hún ekki hér
staðar numið en heldur áfram að
varpa nýju ljósi á borgarlífið með
skrifum sínum. Svo við höldum
okkur við Tómasarviðmiðunina þá
er hér kannski uppsprottið hið nýja
Reykjavíkurskáld. Bloggið er jú hið
nýja ljóðform, ekki satt?
Friðrika Benónýsdóttir
Niðurstaða: Vel skrifaðar, skemmti-
legar smámyndir úr borgarlífinu, en
ljóðrænan er af skornum skammti.
NÝ
SENDING FRÁ
YFIRHAFNIR
BUXUR
PEYSUR
BOLIR Í ÚRVALI
páskaferð
í metropolitan-óperuna
í new york 21. - 26. APRÍL 2011
Farið verður á eftirfarandi óperusýningar:
Il Trovatore eftir Giuseppe Verdi
Stjórnandi er James Levine og í aðalhlutverkum eru Sondra
Radvanovsky, Dolora Zajick, Marcelo Álvarez, Dmitri Hvorostovsky
og Stefan Kocán.
Valkyrjan eftir Richard Wagner
Stjórnandi er James Levine og í aðalhlutverkum eru Deborah Voigt,
Eva Maria Westbroek, Stephanie Blythe, Jonas Kaufmann,
Bryn Terfel og Hans-Peter König.
Fararstjórar eru Tómas H. Heiðar, formaður Vinafélags Íslensku
óperunnar, og Edda Jónasdóttir, starfsmaður Íslensku óperunnar
og Vinafélagsins. Boðið verður upp á ýmsa aðra menningartengda
viðburði í ferðinni.
Skráning hefst mánudaginn 25. október. Edda Jónasdóttir veitir
nánari upplýsingar og annast skráningu. Vinsamlegast sendið
tölvupóst á edda@opera.is. Upplýsingar um ferðina er einnig að
finna á www.opera.is undir „Vinafélagið“.
Vinafélag Íslensku óperunnar stendur fyrir